Fréttablaðið - 13.05.2017, Blaðsíða 16
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
7-
14
49
Allir velkomnir
Skráning á raudikrossinn.is
Hælisleitendur
á Íslandi
Hvernig er ferlið þegar só er um hæli?
Hvað gerir Rauði krossinn fyrir
hælisleitendur?
Áshildur Linnet verkefnastjóri og Arndís A.K.
Gunnarsdóttir lögfræðingur hjá Rauða krossinum
fjalla um ferlið við það að sækja um hæli á Íslandi.
Hvar byrjar fólk, hvernig líður því, hvaða aðstoð fær
það og hvar endar það? Þessum spurningum og fleiri
verður svarað á fyrirlestri miðvikudaginn 17. maí
kl. 8.30–9.30 í húsi Rauða krossins, Efstaleiti 9.
Sala fasteigna frá
588 9090 . www.eignamidlun.is . Grensásvegi 11 . 108 Reykjavík
Laugavegur 28b
101 Reykjavík
Höfum fengið í einkasölu heildareignina við Laugaveg 28B, Reykjavík.
413,9 fm hús sem stendur á 234 fm eignarlóð með nýtingarhlutfall 3,9.
í dag er rekinn verslun á jarðhæð og veitingarstaður á efri hæð húsins.
Húsið skiptist í 222 fm verslunarhúsnæði á jarðhæð og 191,8 fm á
2. hæð og í risi. Það er veitingahúsnæði og skrifstofur.
Í dag er húsnæðið í leigu til tveggja leigutaka.
Óskað er eftir tilboðum í eignina.
Nánari uppl. veitir:
Kjartan Hallgeirsson
Löggiltur fasteignasali
kjartan@eignamidlun.is
824 9093 / 588 9090
Dómsmál Mannréttindadóm-
stóll Evrópu mun á fimmtudaginn
kveða upp dóm í máli Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar og Tryggva Jóns-
sonar gegn íslenska ríkinu.
Málið snýst um það að þeir Jón
Ásgeir og Tryggvi telja að brotið
hafi verið gegn mannréttindum
þeirra með því að þeim hafi verið
refsað tvisvar vegna sama atviks.
Í tengslum við rannsókn Baugs-
málsins rannsökuðu skattayfir-
völd skattskil þeirra Jóns Ásgeirs
og Tryggva fyrir árin 1998-2002.
Leiddi rannsóknin til hækkunar á
álögðum sköttum þeirra og ákvað
yfirskattanefnd 25 prósenta álag á
skattana. Þeir Tryggvi og Jón telja
að með 25 prósent álaginu hafi
þeim verið gerð refsing vegna þess-
ara atvika. Síðan voru þeir dæmdir
í Hæstarétti vegna brota á skatta-
lögum.
„Þetta snýst um það hvort það
hafi verið heimilt að refsa tvisvar,
annars vegar fyrir stjórnvöldum og
hins vegar fyrir dómstólum,“ segir
Gestur Jónsson,verjandi þeirra. – jhh
Dæmt í máli Jóns Ásgeirs
og Tryggva gegn ríkinu
Þetta snýst um það
hvort það hafi verið
heimilt að refsa tvisvar.
Gestur Jónsson,
verjandi Jóns Ás-
geirs og Tryggva
TÆKNI Gíslatökuhugbúnaður olli
miklum glundroða víða um heim
í gær. Talið er að búnaðurinn eigi
rætur að rekja til Þjóðaröryggis-
stofnunar Bandaríkjanna (NSA).
Afleiðingar tölvuárásarinnar
voru þær að minnst tugþúsundum
tölva var haldið í gíslingu af þrjót-
unum. Á skjáum þeirra birtust
skilaboð sem tjáðu notandanum
að ef hann reiddi fram 300 doll-
ara, andvirði rúmlega 30 þúsund
íslenskra króna, fengi hann gögn
og tölvu sína til baka. Yrði upp-
hæðin ekki greidd innan tveggja
daga myndi upphæðin tvöfaldast.
Þess var krafist að rafræni gjald-
miðillinn BitCoin yrði brúkaður
til verksins. Heimildir herma að
gjaldmiðillinn hafi streymt inn á
netveski þrjótanna í kjölfarið.
Meðal tölva sem var haldið í
gíslingu með þessu móti má nefna
tölvur breska heilbrigðiskerfisins,
NHS, sem voru ónothæfar vegna
þessa. Lamaðist kerfið algerlega.
Aðgerðum var slegið á frest, ekki
var unnt að útskrifa sjúklinga eða
gera nokkurn skapaðan hlut.
Forritið skaut upp kollinum í
minnst 74 löndum. Útlit er fyrir að
þrjótarnir hafi náð valdi á flestum
tölvum í Rússlandi og Taívan en
það birtist einnig í Bandaríkjun-
um, Bretlandi, Úkraínu, Tyrklandi,
Þýskalandi, Japan og Spáni. Í síðast-
nefnda landinu herma heimildir
að kerfi orkurisans Iberdrola og
veitufyrirtækisins Gas Neutral hafi
lamast.
Sérfræðingar og áhugamenn um
tækni hafa rakið forritið til tölvu-
þrjóta sem kenna sig við Shadow
Brokers. Í síðasta mánuði láku þeir
á netið forriti sem á rætur sínar að
rekja til NSA og hafði áður verið
notað af stofnuninni.
Áður höfðu þrjótarnir reynt að
selja búnaðinn á uppboði. Þá var
haft eftir sérfræðingunum að hug-
búnaðurinn væri „raunverulegur
en gamall“. Í kjölfar árásarinnar í
gær sendi tölvuöryggisfyrirtækið
Check Point frá sér yfirlýsingu um
að þarna væri á ferðinni uppfærð
útgáfa af eldra forriti.
„Þetta er netárás á fyrirtæki og
stofnanir í Evrópu af áður óþekktri
stærðargráðu,“ segir netöryggis-
hönnuðurinn Kevin Beaumount í
samtali við BBC.
„Við vitum af árásinni og net-
öryggisráðið vinnur nú að lausn
málsins,“ sagði Theresa May, for-
sætisráðherra Bretlands. „Það er
ekkert sem bendir til þess að upp-
lýsingum um sjúklinga hafi verið
stolið og við munum gera allt sem
í okkar valdi stendur til að tryggja
að það gerist ekki.“
Hugbúnaðarins varð fyrst vart
klukkan 15 að íslenskum tíma í
gær og hélt hann áfram að dreifa
sér um heiminn fram eftir kvöldi og
inn í nóttina. Ekki liggur ljóst fyrir
nákvæmlega hve margar tölvur
urðu fyrir árásinni.
johannoli@frettabladid.is
Netþrjótar yfirtóku
tugi þúsunda tölva
Starfsemi stofnana og fyrirtækja víðsvegar um heim lamaðist í gær eftir að
gíslatökuhugbúnaður (e. ransomware) skaut upp kollinum. Notendur lentu í
því að ekki var hægt að nota tölvur nema gegn greiðslu lausnargjalds.
Breska heilbrigðiskerfið NHS var nánast ónothæft í gær vegna árásarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
VENEsÚElA Lyfjafræðingurinn Luis
Lopez tók í gær við sem heilbrigðis-
ráðherra Venesúela. Hann tekur við
af kvensjúkdómalækninum Anton-
ietu Caporale sem gegnt hafði emb-
ættinu í fjóra mánuði.
Caporale var ýtt úr stjórninni af
forsetanum Nicolas Maduro eftir
að tölfræði um ástand heilbrigðis-
kerfis landsins skaut upp kollinum.
Slík tölfræði hefur ekki verið gefin út
síðustu tvö ár.
Tölurnar, sem komu frá heilbrigð-
isráðuneytinu, sýna að ungbarna-
dauði í landinu hefur aukist um 30
prósent og sængurkvennadauði um
65 prósent frá því að slík tölfræði var
síðast gefin út. Þá fjölgaði malaríu-
tilfellum um 76 prósent á milli ára.
Kreppan í Venesúela hefur nú
varað í rúm fjögur ár og verða áhrif
hennar víðtækari með hverjum
deginum sem líður. Verðbólga er í
hæstu hæðum og skortur er á mat-
vælum og helstu nauðsynjavörum.
Þá stefnir allt í að lyfjaskortur verði
í landinu en heilbrigðisstarfsmenn
áætla að 85 prósent lyfja séu að verða
uppurin. – jóe
Heilbrigðisráðherranum sparkað
Nicolas Maduro lét Antonietu Caporale taka pokann sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
1 3 . m A í 2 0 1 7 l A U G A R D A G U R16 f R é T T I R ∙ f R é T T A B l A ð I ð
1
3
-0
5
-2
0
1
7
0
3
:5
6
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
D
9
-2
A
1
4
1
C
D
9
-2
8
D
8
1
C
D
9
-2
7
9
C
1
C
D
9
-2
6
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K