Fréttablaðið - 13.05.2017, Blaðsíða 37
Við fengum þá
hugmynd búa til
nám sem væri góð blanda
af fræðilegum grunni og
verklegri framkvæmd.
Þór Hauksson
Kristín Baldursdóttir og Þór Hauksson eru umsjónarmenn námslínunnar For-
ysta til framfara. Mynd/EyÞór
Hugmyndin að námslínunni varð til í samtali okkar Kristínar en við höfðum
orðið vör við óskir bæði Endur-
menntunar og fólks í kringum
okkur um kennslu fyrir stjórn-
endur í því að innleiða breytingar
á vinnustöðum,“ segir Þór Hauks-
son, verkefnalóðs á þróunarsviði
Landsvirkjunar og formaður
Verkefnastjórnunarfélags Íslands,
en hann er umsjónarmaður náms-
línunnar Forysta til framfara ásamt
Kristínu Baldursdóttur, innri
endurskoðanda Landsbankans.
„Stöðugar kröfur eru gerðar
til fyrirtækja og stofnana um að
bregðast hratt við og tileinka sér
breytingar. Á þeim forsendum
ræddum við hvernig best væri að
styðja stjórnendur í að takast á við
stöðugar og oft á tíðum umtals-
verðar breytingar. Við fengum
þá hugmynd að búa til nám sem
væri góð blanda af fræðilegum
grunni og verklegri framkvæmd.
Þetta myndum við gera með því að
blanda saman leiðtogakenningum
og kenningum um breytinga-
stjórnun við verkefnastjórnun,“
lýsir Þór.
dýpka skilning
„Námið er ætlað stjórnendum sem
vilja ná aukinni færni í stjórnun.
Við vinnum meðal annars með
að dýpka skilning stjórnenda á
umhverfinu sem þeir vinna í, á
sjálfum sér, á samstarfsfólki sínu
og hvernig þeir geti fengið það til
að eiga í uppbyggilegu samstarfi.
Fólk lærir að móta framtíðarsýn og
stefnu og hvernig markvisst megi
innleiða hana,“ segir Kristín og
bendir á að verkefnastjórnin komi
sterk inn í síðastnefnda liðnum
enda sé hún í eðli sínu breytinga-
stjórnun.
Fyrir fólk í fullri vinnu
Námið er ætlað stjórnendum í
fullri vinnu. Námið spannar sex
mánaða tímabil og fer kennsla
fram einu sinni í mánuði. Á föstu-
dögum frá klukkan 13 til 17 og á
laugardagsmorgnum frá klukkan
9 til 13.
Þór og Kristín segjast finna
mikinn áhuga meðal stjórnenda
sem vilji endurnýja sig og þróa sig
í starfi.
Kennslan er byggð upp með
fyrirlestrum og verkefnavinnu.
„Í hverri lotu leggjum við áherslu
á afmarkað umfjöllunarefni og
fléttum saman umfjöllun um
stjórnun og leiðtogahæfni saman
við hagnýtar aðferðir verkefna-
stjórnunar. Við biðjum fólk að
koma með raunhæf verkefni,
síðan er þátttakendum skipt niður
í hópa sem velja eitt verkefni að
vinna með. Þeir fá þjálfun í að
beita kenningum og aðferðum sem
til umfjöllunar eru hverju sinni við
að leysa verkefnin,“ lýsir Kristín.
Hún segir enga heimavinnu
fylgja náminu en þau Þór leggi hins
vegar fram leslista og komi með
ábendingar um efni sem áhugavert
sé fyrir þátttakendur að kynna sér.
Verkefnastjórnun
má nýta víða
Viðbúið er að þátttakendur í
náminu komi úr ólíkum áttum sem
Þór og Kristín telja afar jákvætt.
„Oft lærir fólk ekki minna af sam-
nemendum sínum og reynslu-
heimi þeirra en af kennurunum,“
segir Kristín glaðlega.
Hún mun sjálf einbeita sér að
stjórnenda- og leiðtogafærni og
fara yfir fyrirtækjamenningu,
breytingastjórnun, sjálfsrækt og
hópefli meðan Þór tekur fyrir verk-
efnastjórnun. „Verkefnastjórnun er
ung faggrein og í stöðugri þróun.
Fólk er að vakna til vitundar um að
hægt sé að nýta þessa aðferðafræði
á mörgum sviðum, bæði í stórum
verklegum framkvæmdum sem
og breytingum innan fyrirtækja,“
segir hann.
Kynningarfundur 23. maí
Kynningarfundur á námslínunni
Forysta til framfara fer fram í
Endurmenntun Háskóla Íslands,
Dunhaga 7, þriðjudaginn 23. maí
klukkan 18. Þar geta áhugasamir
komið, kynnt sér námið, og spurt
Kristínu og Þór nánar út í það.
Umsóknarfrestur í námið er til 5.
júní 2017.
Nánari upplýsinga má leita á www.
endurmenntun.is
ný námslína
sem eykur
færni í stjórnun
Forysta til framfara er ný námslína hjá
Endurmenntun Háskóla Íslands. Henni er
ætlað að styðja stjórnendur í að ná auk-
inni færni í stjórnun, meðal annars með
aðferðafræði verkefnastjórnunar.
TAKTU
SKREFIÐ
SKAPAÐU ÞÍNA EIGIN FRAMTÍÐ
Á GRUNNSTIGI
LEIÐSÖGUNÁM Á HÁSKÓLASTIGI
STAÐNÁM – FJARNÁM
NÁM Í UNDIRSTÖÐUATRIÐUM HUGRÆNNA ATFERLISFRÆÐA
NÁM TIL LÖGGILDINGAR FASTEIGNA- OG SKIPASALA
STAÐNÁM – FJARNÁM
ÖKUKENNARANÁM TIL ALMENNRA RÉTTINDA
Á FRAMHALDSSTIGI
JÁKVÆÐ SÁLFRÆÐI
SÉRFRÆÐINÁM Í HUGRÆNNI ATFERLISMEÐFERÐ
FYRIR SÁLFRÆÐINGA OG GEÐLÆKNA
NÁMSLÍNUR ÁN EININGA
FJÁRMÁL OG REKSTUR
STAÐNÁM – FJARNÁM
FORYSTA TIL FRAMFARA
– LEIÐ STJÓRNENDA TIL AUKINS ÁRANGURS
HUGRÆN ATFERLISFRÆÐI FYRIR LÆKNA
HUGUR OG HEILBRIGÐI – GERÐU GOTT LÍF BETRA
STUÐNINGUR VIÐ EINSTAKLINGA ÚT FRÁ FJÖLSKYLDUSÝN
VIÐURKENNDUR BÓKARI
STAÐNÁM – FJARNÁM
KYNNINGARFUNDUR 23. MAÍ
UMSÓKNARFRESTUR TIL 5. JÚNÍ
NÁMSRÁÐGJÖF OG UPPLÝSINGAR:
SÍMI 525 4444 ENDURMENNTUN.IS
NÁMSBRAUTIR Á HAUSTMISSERI:
KynnInGArBLAÐ 3 L AU G A r dAG U r 1 3 . m a Í 2 0 1 7
1
3
-0
5
-2
0
1
7
0
3
:5
6
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
D
9
-A
0
9
4
1
C
D
9
-9
F
5
8
1
C
D
9
-9
E
1
C
1
C
D
9
-9
C
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K