Fréttablaðið - 13.05.2017, Page 37

Fréttablaðið - 13.05.2017, Page 37
 Við fengum þá hugmynd búa til nám sem væri góð blanda af fræðilegum grunni og verklegri framkvæmd. Þór Hauksson Kristín Baldursdóttir og Þór Hauksson eru umsjónarmenn námslínunnar For- ysta til framfara. Mynd/EyÞór Hugmyndin að námslínunni varð til í samtali okkar Kristínar en við höfðum orðið vör við óskir bæði Endur- menntunar og fólks í kringum okkur um kennslu fyrir stjórn- endur í því að innleiða breytingar á vinnustöðum,“ segir Þór Hauks- son, verkefnalóðs á þróunarsviði Landsvirkjunar og formaður Verkefnastjórnunarfélags Íslands, en hann er umsjónarmaður náms- línunnar Forysta til framfara ásamt Kristínu Baldursdóttur, innri endurskoðanda Landsbankans. „Stöðugar kröfur eru gerðar til fyrirtækja og stofnana um að bregðast hratt við og tileinka sér breytingar. Á þeim forsendum ræddum við hvernig best væri að styðja stjórnendur í að takast á við stöðugar og oft á tíðum umtals- verðar breytingar. Við fengum þá hugmynd að búa til nám sem væri góð blanda af fræðilegum grunni og verklegri framkvæmd. Þetta myndum við gera með því að blanda saman leiðtogakenningum og kenningum um breytinga- stjórnun við verkefnastjórnun,“ lýsir Þór. dýpka skilning „Námið er ætlað stjórnendum sem vilja ná aukinni færni í stjórnun. Við vinnum meðal annars með að dýpka skilning stjórnenda á umhverfinu sem þeir vinna í, á sjálfum sér, á samstarfsfólki sínu og hvernig þeir geti fengið það til að eiga í uppbyggilegu samstarfi. Fólk lærir að móta framtíðarsýn og stefnu og hvernig markvisst megi innleiða hana,“ segir Kristín og bendir á að verkefnastjórnin komi sterk inn í síðastnefnda liðnum enda sé hún í eðli sínu breytinga- stjórnun. Fyrir fólk í fullri vinnu Námið er ætlað stjórnendum í fullri vinnu. Námið spannar sex mánaða tímabil og fer kennsla fram einu sinni í mánuði. Á föstu- dögum frá klukkan 13 til 17 og á laugardagsmorgnum frá klukkan 9 til 13. Þór og Kristín segjast finna mikinn áhuga meðal stjórnenda sem vilji endurnýja sig og þróa sig í starfi. Kennslan er byggð upp með fyrirlestrum og verkefnavinnu. „Í hverri lotu leggjum við áherslu á afmarkað umfjöllunarefni og fléttum saman umfjöllun um stjórnun og leiðtogahæfni saman við hagnýtar aðferðir verkefna- stjórnunar. Við biðjum fólk að koma með raunhæf verkefni, síðan er þátttakendum skipt niður í hópa sem velja eitt verkefni að vinna með. Þeir fá þjálfun í að beita kenningum og aðferðum sem til umfjöllunar eru hverju sinni við að leysa verkefnin,“ lýsir Kristín. Hún segir enga heimavinnu fylgja náminu en þau Þór leggi hins vegar fram leslista og komi með ábendingar um efni sem áhugavert sé fyrir þátttakendur að kynna sér. Verkefnastjórnun má nýta víða Viðbúið er að þátttakendur í náminu komi úr ólíkum áttum sem Þór og Kristín telja afar jákvætt. „Oft lærir fólk ekki minna af sam- nemendum sínum og reynslu- heimi þeirra en af kennurunum,“ segir Kristín glaðlega. Hún mun sjálf einbeita sér að stjórnenda- og leiðtogafærni og fara yfir fyrirtækjamenningu, breytingastjórnun, sjálfsrækt og hópefli meðan Þór tekur fyrir verk- efnastjórnun. „Verkefnastjórnun er ung faggrein og í stöðugri þróun. Fólk er að vakna til vitundar um að hægt sé að nýta þessa aðferðafræði á mörgum sviðum, bæði í stórum verklegum framkvæmdum sem og breytingum innan fyrirtækja,“ segir hann. Kynningarfundur 23. maí Kynningarfundur á námslínunni Forysta til framfara fer fram í Endurmenntun Háskóla Íslands, Dunhaga 7, þriðjudaginn 23. maí klukkan 18. Þar geta áhugasamir komið, kynnt sér námið, og spurt Kristínu og Þór nánar út í það. Umsóknarfrestur í námið er til 5. júní 2017. Nánari upplýsinga má leita á www. endurmenntun.is ný námslína sem eykur færni í stjórnun Forysta til framfara er ný námslína hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Henni er ætlað að styðja stjórnendur í að ná auk- inni færni í stjórnun, meðal annars með aðferðafræði verkefnastjórnunar. TAKTU SKREFIÐ SKAPAÐU ÞÍNA EIGIN FRAMTÍÐ Á GRUNNSTIGI LEIÐSÖGUNÁM Á HÁSKÓLASTIGI STAÐNÁM – FJARNÁM NÁM Í UNDIRSTÖÐUATRIÐUM HUGRÆNNA ATFERLISFRÆÐA NÁM TIL LÖGGILDINGAR FASTEIGNA- OG SKIPASALA STAÐNÁM – FJARNÁM ÖKUKENNARANÁM TIL ALMENNRA RÉTTINDA Á FRAMHALDSSTIGI JÁKVÆÐ SÁLFRÆÐI SÉRFRÆÐINÁM Í HUGRÆNNI ATFERLISMEÐFERÐ FYRIR SÁLFRÆÐINGA OG GEÐLÆKNA NÁMSLÍNUR ÁN EININGA FJÁRMÁL OG REKSTUR STAÐNÁM – FJARNÁM FORYSTA TIL FRAMFARA – LEIÐ STJÓRNENDA TIL AUKINS ÁRANGURS HUGRÆN ATFERLISFRÆÐI FYRIR LÆKNA HUGUR OG HEILBRIGÐI – GERÐU GOTT LÍF BETRA STUÐNINGUR VIÐ EINSTAKLINGA ÚT FRÁ FJÖLSKYLDUSÝN VIÐURKENNDUR BÓKARI STAÐNÁM – FJARNÁM KYNNINGARFUNDUR 23. MAÍ UMSÓKNARFRESTUR TIL 5. JÚNÍ NÁMSRÁÐGJÖF OG UPPLÝSINGAR: SÍMI 525 4444 ENDURMENNTUN.IS NÁMSBRAUTIR Á HAUSTMISSERI: KynnInGArBLAÐ 3 L AU G A r dAG U r 1 3 . m a Í 2 0 1 7 1 3 -0 5 -2 0 1 7 0 3 :5 6 F B 1 2 8 s _ P 0 9 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C D 9 -A 0 9 4 1 C D 9 -9 F 5 8 1 C D 9 -9 E 1 C 1 C D 9 -9 C E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 2 8 s _ 1 2 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.