Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1970, Blaðsíða 7
5.
undlr dómstálana. Tekiö er fram, að löggiltir endurskoðendur
sæti sömu viðurlögum fyrir brot í starfi sem sýslunarmenn og
þelr megi eigi hafa fleiri aöstoðamenn en svo, að þeir geti fylgzt
nákvaamlega með starfi þelrra og þeir beri fulla ábyrgð á störfum
aðstoöarmannanna.
Lög nr. 9/1926 voru numin ur gildi með lögum nr. 89/1953
um löggilta endurskoðendur. Er þar gerð nokkur grein fyrir
hvernig skuli hagað menntun löggiltra endurskoðenda. í 6. grein
segir að lögglltlr endurskoðendur hafi réttindi og skyldur
opinberra sýslunamanna, þar á meðal þagnarskyldu. Samkv. 8. gr.
eru löggiltir endurksoðendur skyldaðir til að tllkynna ráðherra
á hvaða stöðum þeir reki skrifstofur. Þá er svo boðið í 9- gr.,
að ákveði dómari, að endurskoðun bóka eða reikninga skuli fram
fara, skuii til þess starfs kveð.ja löggiltan endurskoðanda ef
hans sé kostur. í 10. gr. segir, að ráðherra ákveði, að fengnum
tillögum stjórnar, félags löggiltra endurskoðenda, hvort
enaurskoðendastarf sé samrýmanlegt öðru starfi eða starfrækslu
fyrirtækis.
Samkv. lögum þessum var sett reglugerð nr. 217/1953 og
fjallar III. kafli þeirrar reglugerðar um réttindi og skyldur
löggiltra endurskoðenda. í reglugerðarákvæðum þessum er rætt um
helt endurskoðenda og starfshelti, ennfremur er þar tekið fram,
að löggiltir endurskoðendur hafi réttindi og skyldur opinberra
starfsmanna, þar á meðal þagnarskyldu um það, sem leynt skuli
fara. í 11. grein er tekið fram, að löggiltur endurskoðandi megi
starfa hvar sem er á landinu, en tilkynna skuli hann ráðherra
hvar hann hafi skrifstofu. í 12. grein er tekið fram, að
löggiltum endurskoðanda, sé skylt að vinna störf þau, sem honum
séu falin með kostgæfni og eins fljótt og auðið sé. álit sitt
og niðurstöður skuli hann byggja á nákvæmri rannsókn og öllum
gögnum, sem fáanleg séu, enda sé aðilum, er hlut eiga að máli,
skylt að velta endurskoðanda allar upplýsingar, sem hann telur
nauðsynlegar og varða framkvaamd starfa hans. Þá er tekið fram,
að löggiltur endurskoðandi geti ekki framk mt endurskoðun hjá
þeim stofnunum, elnstaklingum eða félögum, þar sem skyldleiki
hans eða persónulegur hagnaður geti haft áhrlf á álit hans eða
úrskurð og skeri ráðherra úr, ef ágreiningur verður um það
atriði. Enn er tekið frarn í 15* grein, að löggiltur endursknðandi