Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1970, Blaðsíða 8
6.
megi ekki hafa fleirl aðstoöarmenn en svo, að hann geti fylgzt
nákvaanlega með starfi þeirra og beri fulla ábyrgð á störfum
aðstoðarmanna sinna. í 14. gr. er sagt að ef dómari ákveði,
að endurskoðun bókhalds og reikninga skull fram fara, þá skuli
fá tll þess starfs löggilta endurskoðendur, sá þeirra kostur.
Þá vil ég geta nokkurra lagaákvæða, þar sem rætt er um
endurskoðendur, enda þótt það þurfi ekki að vera löggiltir
endurskoðendur, en í framkvæmd munu þaö oft vera löggiltir
endurskoðendur, er framkvæma þau störf, sem þar um ræðir.
Lög nr 77/1921, um hlutafélög, gera ráð fyrir, að h.já
hverju hlutafélagi séu tveir kjörnir endurskoðendur. Um skyldur
þelrra er fjallað í 34. grein og segir, að endurskoðendur megi
ekki vera í stjórn félagsins og þeir skuli vera lögráða og með
óflekkað mannorð og fjár síns ráðandi. Þá segir, að þeim sé
skylt að sannprófa það, að reikningum beri saman viö bækur fé-
lagsins enda eigi þeir aðgang að öllum bókum og skjölum félags-
ins og er stjórninni skylt að veita þeim allar upplýsingar,
sem þeir nauðsynlega þurfi til starfa síns.
Þá vil ég benda á ákvæði í lögum um hlutarútgerðarfélög
nr. 44/1940. Þar segir um endurskoðendur þeirra félaga, að þeir
skuli sannprófa reikninga-félagsins og bera þá saman við bækur
þess og að þelr hafi aögang að öllum bókum og skjölum á hvaða
tíma, sem er og sé stjórninni skylt að veita þær upplýsingar,
sem taldar séu nauðsynlegar vlð framkvæmd starfa þeirra. Enn-
fremur er sagt, að það sé skylda endurksoðenda, að hafa eftir-
llt með starfrækslu fyrlrtækisins yfirleitt. Verði þeir varir
vlð misferli, sem þeir álíta, að félaginu stafi hætta af,
skull þeir hlutast til, að bót verði á ráöin svo fljótt, sem
þörf krefur. Takist það elgi, skuli þeir krefjast fundar í
félaginu og bera málið þar upp tll úrlausnar. Endurskoðendur
beri ábyrgð fyrir aðalfundi. Svipuð ákvæði eru í 22. gr. í
samvlnnufélagalögum nr. 46/1937.
Þess er val að gæta, að hér er ekki um að ræða löggilta
endurskoðendur, heldur menn, sem sérstaklega eru kjörnir af
félagssamtökum til aö endurskoða reikninga. Þrátt fyrir það,
verður að hafa í huga að ætla veröur, að í þessum greinum