Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1970, Blaðsíða 21
í lögum nr. 51/1964 tekur ekki. til B - liðar 15. gr. laga
nr. 55/1964, sbr. lög nr. 90/1965. Var þvf óheimilt a6 synja
um þann frádrátt taps vegna 20$ fyrningarafskrifta, sem um
er deilt í þessu máli.
Ber því að dæma aðaláfrýjanda til þess að greiöa gagn-
áfrýjanda kr. 103-822.00 með 7$ ársvöxtum frá 24. ágúst 1967
til greiðsludags og málskostnað í héraði og fyrir Hæstarátti,
er þykir hæfllega ákveðinn kr. 45.000.00.
Dómsorð:
Aðaláfrýjandi, Gjaldheimtan í Reykjavík, greiðl gagn-
áfrýjanda, Fylki h.f., kr. 103.822.00 ásamt 7$ ársvöxtum frá
24. ágúst 1967 til greiðsludags og málskostnaö í háraði og
fyrir Hæstarátti, kr. 45-000.00.
Dóminum ber að fullnægja að viðlagðri aðför að lögum.