Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1970, Blaðsíða 10

Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1970, Blaðsíða 10
ö. elnungls einn aðili hafði fengiö reikninga þessa, en sá vissi um að fasteignin var talin séreign konu A. Hins vegar kamur fram í dóminum, að talið er, að hér hafi verið rangt að farið. Þá vil ég benda á dóm Hsestaréttar frá 19. des. 1932. Þar var endurskoðandi fyrirtækis, sem oröiö var gjaldþrota, ákærður fyrir þátttöku í óheimilli elgnayfirfærslu, eftir að gjaldþrotið áttl elgi fyrir skuldum. Endurskoðandinn var hins vegar sýknaður, þar sem ekki kom fram að hann hefði neltt gert annað, en að semja efnahagsreikninga, en látið eignayflrfærsluna afskiftalausa. íóur en ég skil við þennan þátt, þá langar mig til að benda á ákv. 5- málsgr. 13. gr. laga nr. 43/1964 um breytingu á lögum nr. 70/1962 um tekju og eignarskatt, en þar segir,: "Hver sá, sem í atvlnnuskyni að3toðar við ranga eða villandi skýrslu til skattyfir- valda skal sekur um allt að helming fyrir þær fjárhæðir, sem hann undanskilur með hinni röngu eða villandl skýrslu. RÍkisskattstjóri ákveður sektina nema hann eða hlnn seki óski að málinu sé víáað til dómstólanna." Þetta ákvæði er alveg nýtt og hefur aldrei á það reynt, en með hliðsjón af því, að löggiltir endurskoðendur hljóta að aðstoða menn mjög við skýrslugjafir til skattyfirvalda, þá þótti mér rétt að benda sérstaklega á þetta ákvæði. Ég vil á það benda, að vitan- lega mundi það oft vera þannig, að sá, sem aðstoðar við rangar og villandi skýrslugerðir til yfirvalda værl með því sekur í hlutdeild í refsiveröum verknaði og gæti oróiö daand refsing samkv. ákv. hegningarlaganna, enda væri þetta gert i blekkingarskyni. Ég hefi nokkra ástæóu til að ætla, að hlð nýja ákvæði skattalaganna verði skilið rýmra en hegningarlagaákvæðln, enda er hér heimilt að af- grelöa brotið saunkv. yflrvaldsákvörðun og refslngin eða sektin mlðast vlð þau verðmæti, sem undan skyldi draga með hinnl röngu eða vlllandl skýrslugerð eins og í greininni segir, þ.e.a.s. þetta kemur einungis til í því tilfelli að verið sé að draga fé undan réttmætrl skattlagningu. Þar sem þessu ákv. hefur aldrei verlð beitt enn, er nokkuð erfitt að segja um hvernig framkvaand munl verða. Hér að framan hefur aðallega verið höfð í huga refsiábyrgð endurskðanda, en vitanlega geta þeir með vangæzlu í störfum sínum fellt á sig fébótaábyrgð. Orðið skaðabótaskyldir gagnvart þeim, er treyst höfðu verkum þeirra, sem reyndust gölluð og orsökuðu tjón. Fébótaábyrgð endurskoðenda myndi byggjast á saknaanisreglunnl (culpa) Fébótaábyrgðin kæmi því aðeins til, að endurskoóandinn hefði við starf sitt hagað sér á ólögmætan, saknæman hátt, sem valdið hefði tjóni. Hann verður aö hafa brotið gegn því, sem krefjast verður

x

Tímarit um endurskoðun og reikningshald

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit um endurskoðun og reikningshald
https://timarit.is/publication/1257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.