Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1970, Síða 16

Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1970, Síða 16
Fræðsluráðstefna Evrópusambands Lðgglltra Endurskoðenda f London 1971. Félagl Lögglltra Endurskoðenda hefur borizt bréf frá Evrópusambandi Löggiltra Endurskoðenda um að ákveðið hafi verið að halda fræðsluráðstefnu á þess vegum í London dagana 4. - 8. október 1971. Fræðsluefnl ráðstefnunnar hefur yfirskriftina nÞróun endur- skoðunarstarfsins á áttunda áratug þessarar aldar" Efninu er skipt í eftirfarandi flokka: 1. Þróun starfsins síðustu árin. 1. ) Nám, þjálfun, slðareglur og hlutleysi. 2. ) Frjálsræði til að leysa af hendl störf innan landa, sem eru meðlimir sambandsins. 2. Endurskoðun á áttunda áratug aldarinnar. 1. ) NÚtíma tækni. 2. ) Rafreiknar. 3. Ráðgefandi þjónusta fyrlr stjórnendur fyrirtækja og önnur þjónusta fyrir umbjóðendur. Gert er ráð fyrir að haldnir verði hópfundir og síðan sam- eiginlegar umræður um niðurstöður hópfunda. Þátttakendum verður raðað í hópa eftir því hvaða tungumál þeir kjósa sér ( þ.e. enska, þýzka eða franska). Auk fundanna verður opinber móttaka gesta að kvöldi mánu- dagsins 4. október, sameiginlegur kvöldverður þriðjudaginn 5. október og dansleikur fimmtudaginn 7. október. Mögulegt verður fyrir þátttakendur að vera við óperusýningar, balletsýningar, leiksýningar og hljómleika, að kvöldi þriöjudagslns 5. okt. og mlðvikudagsins 6. okt. Þátttökugjald verður að öllum líklndum um £4o - £45 fyrir hvern þátttakanda og £25 - £3o fyrir konur þeirra. Innifalið í þátttökugjaldinu er kostnaður við fundarhöldin (þar meó taldir vinnupappírar, sem sendir verða þátttakendum fyrir ráðstefnuna), opinbera móttökuathöfnin og kvöldverðurinn 5* okt. og sérstök dagskrá fyrir konur þátttakenda. Þátttökugjöld fyrir dansleikinn að meðtöldum kvöldverði verður um £8 fyrir hvern einstakling.

x

Tímarit um endurskoðun og reikningshald

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um endurskoðun og reikningshald
https://timarit.is/publication/1257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.