Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1994, Qupperneq 7

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1994, Qupperneq 7
og því, hvernig það greiðist. Enn er unnt að stofna hlutafélag með afar litlu hlutafé og litlar kröfur eru um það hvemig það greiðist. Þessu þarf hvom tveggja að breyta og full efni em til að hækka kröfur um lágmarkshlutafé og jafnframt tryggja að það greiðist inn með peningum en ekki vinnu eða óljós- um réttindum eins og oft hefur verið. Slíkt ætti a.m.k. í öllu falli að koma skýrt fram við skráningu. í annan stað þarf að tryggja að viðskiptamenn eigi aðgang að reikningum starfandi hlutafélaga. Al- menningshlutafélögum hefur að sönnu verið skylt að senda Hlutafélagaskrá ársreikning, en því hefur ekki verið fylgt eftir og engin þjónusta hefur verið á þessu sviði hjá skránni. Þá eru engin efni til að binda upplýsingaskylduna við lítinn hóp hlutafé- laga; hættan á tjóni vegna greiðslufalls er ekki síst hjá litlu félögunum, sem oft hafa takmarkað aðhald frá hluthöfunum. Að líkindum væri heppilegast að gera Hlutafélagaskrána að sjálfstæðri stofnun með þátttöku samtaka fyrirtækja, þannig að hún geti jafnhliða annast lögboðna skráningu og eftirlit og hins vegar vinnslu kennitalna úr ársreikningum hlutafélaga til upplýsingar þeim sem eftir leita. M.a. á grundvelli þessara upplýsinga gætu fjármála- ráðgjafar þróað mat á öryggi og greiðsluhæfi eins og víðast gerist erlendis. Auk þessa er fullt tilefni til þess að skylda stjómir félaga til að gera hluthöfum og Hlutafélagaskrá viðvart ef eigið fé félags minnk- ar um tiltekið hlutfall eða fer niður fyrir tiltekin mörk. Þá er enn ótalin nauðsyn á því, að auka kröfur um bókhald og reikningsskil og herða viðurlög við brotum. Svik í viðskiptum eru ekki einkamál skatt- yfirvalda eða þeirra annarra sem málið varðar bein- línis, því svikin veikja fjárhagsgrundvöll þeirra sem fyrir verða og grafa auk þess undan trausti í við- skiptum. Hvort tveggja hamlar uppbyggingu at- vinnulffs. Því eru það almennir hagsmunir atvinnu- lífsins að herða eftirlit af þessum toga, bæði stofn- analegt og markaðslegt s.s. með ríkari kröfum um aðgang almennings að upplýsingum um fjárhag fyr- irtækja, sem rekin eru með takmarkaðri ábyrgð. Ábyrgð stjórnenda Fram á síðustu ár hefur loðað við, að stjórnir hlutafélaga væru ekki mjög virkar í stjórnun, eftirliti eða stefnumótun félaga. Hlutverk þeirra væri „að ráða og reka framkvæmdastjóra“. Um ábyrgð stjómenda á rekstri hlutafélaga er réttarstaðan um margt óljós af dómum. Þeir fáu dómar sem fallið hafa varpa hins vegar ljósi á mikilvægi þess að skil- greina og skerpa reglur um hlutverk, skyldur og á- byrgð stjómamianna. Lögfesting skarpari reglna um þessi efni eru auk heldur til þess fallin að efla stjómun fyrirtækja og gera stjórnir þeirra virkari í stefnumótun og eftirliti. Danir hafa nýverið lögfest skyldu stjórna hlutafélaga til að setja sér starfsreglur til að undirstrika enn mikilvægi stjórnanna. Þá eru einnig full efni til þess að setja skorður við því, að menn geti óhindrað stofnað til nýrra hlutafé- laga eftir þrot annarra. Hugmyndir af þeim toga munu vera í nýju frumvarpi til hlutafélagalaga, sem kynntar hafa verið í ríkisstjórn. Staða framkvæmdastjóra hlutafélaga hefur einnig breyst, því dómstólar hafa skerpt mat sitt á skaða- bóta- og refsiábyrgð þeirra vegna tjóns sem þeir kunna að hafa bakað öðrum í störfum sínum. Þannig hafa framkvæmdastjórar og stjórnarmenn verið gerðir ábyrgir fyrir því, að hafa ekki skilað gjöldum til lífeyrissjóðs, sem haldið hafi verið eftir af laun- um starfsmanna. Reglur hegningalaga um fjárdrátt og skilasvik geta því komið meira við sögu á næst- unni en verið hefur. Ábyrgðasjóður launa er fjármagnaður með launa- tengdu iðgjaldi atvinnurekenda og er ætlað er að á- byrgjast launþegum greiðslu vangreiddra launa og bóta vegna tapaðra launa á uppsagnarfresti, auk ið- gjalds í lífeyrissjóðs. Því hefur verið hreyft, að eðli- legt sé að sjóðurinn sæki til endurgreiðslu þá stjóm- endur gjaldþrota fyrirtækja persónulega, sem ekki hafa gert eðlilegar ráðstafanir til að takmarka tjón með uppsögnum ráðningarsamninga og þannig fellt greiðsluskyldu á sjóðinn. Raunar þykjast menn oft hafa séð þess dæmi, að launþegum hafi verið haldið við störf beinlínis með vísan til þess, að „ríkisá- byrgðin“ muni borga launin og þótt rekstri hafi ver- ið hætt, þá hafi ráðningu ekki verið slitið, svo starfs- menn fengju sem mest út úr sjóðnum. Margt mælir með því, að þeir sem staðnir verða að slíku fram- ferði ábyrgist sjálfir fjárhagslegar afleiðingar en ekki aðrir atvinnurekendur með hækkuðum iðgjöld- um. Sömu sjónarmið eiga við um skil á lífeyris- sjóðsiðgjöldum launþega. Fleiri dæmi má taka til um breytt viðhorf til sak- næms atferlis stjórnenda félaga með takmarkaða á- byrgð. Þannig má ætla að þeir stjórnendur sem leita eftir lánsfé eða vörum að láni eftir að þeim má vera ljóst, að ekki verði staðið í skilum, verði eftirleiðis oftar gerði ábyrgir. Vera má, að hliðstæð sjónarmið geti komið til að því er varðar meðferð skiptastjóra á þrotabúum, því vandséð er hvernig það mátti standast lög, þegar efnt var til „Útsölu aldarinnar“ á vörulager stórverslunar á síðasta ári, sem að stórum hluta samanstóð af ógreiddum vörum annarra fyrir- 7

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.