Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1994, Blaðsíða 25

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1994, Blaðsíða 25
Bjarni Þór Óskarsson, hdl. ÚRRÆÐI FYRIRTÆKJA í VERULEGUM FJÁRHAGSERFIÐLEIKUM. 1.Inngangur Grein þessi er byggð á fyrirlestri sem haldinn var 19. nóvember s.l. á haustráðstefnu Félags löggiltra endurskoðenda. Viðfangsefnið eru helstu úrræði fyrirtækja sem eiga í verulegum fjárhagserfiðleik- um. Er þar fyrst og fremst litið til aðgerða sem sér- staklega eru heimilaðar af dómstólum, það er greiðslustöðvun og tilraun til nauðasamnings. Rétt- arreglurnar um þessi úrræði eru í lögum nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. Reglur fyrrnefndra laga um gjaldþrotaskipti o.fl. gera ráð fyrir því að fyrirtæki sem þannig er komið fyrir, að ekki verði séð að það geti staðið við fjár- skuldbindingar sínar, eftir því sem þær falla í gjald- daga, sé skylt að gefa upp til gjaldþrotaskipta, sbr. 64. gr. laganna. Þetta er þó ekki skylt ef sennilegt verður talið að þessir greiðsluörðugleika líði hjá innan skamms tíma. Lögin gefa reyndar enga vís- bendingu um það hvað þessi tími má vera langur, það verður því að meta í hverju tilfelli. Þessi skylda er þó aðeins til staðar að aðilar séu bókhaldsskyldir. Sé þessari lagaskyldu ekki fullnægt gæti það valdið stjómendum fyrirtækisins bæði refsi- og bóta á- byrgð, enda þótt lítt hafi reynt á þá ábyrgð fram að þessu hérlendis. 2. Aðgerðir án atbeina dómstóla: Fyrstu hugmyndir þeirra sem eiga í fjárhagserfið- leikum snúast trúlega um útvegun nýs fjármagns, eða að semja um lengri gjaldfrest á skuldbindingum sínum. Ég mun ekki eyða miklum tíma í þessi atriði, en tel þó rétt að minnast á þau stuttlega. Þannig gæti komið til skoðunar að fá aukið hlutafé, eða sam- bærilegar innborganir í fyrirtæki sem ekki eru rekin sem hlutafélög. Hlutafélagalögin gera reyndar einnig ráð fyrir því að mögulegt sé að taka lán þar sem kröfuhöfum sé heimilt að breyta kröfum sínum í hlutafé síðar, en það er sjálfstætt umfjöllunarefni sem ekki verður frekar vikið að. Skuldbreytingar hvers konar gætu einnig falið í sér lausn, helst þó að sjálfsögðu með þeim hætti að gjaldfrestur yrði veitt- ur, eða hann lengdur. Þá mætti einnig hugsa sér breytingu á venjulegu lánsfé í víkjandi lán eða lán með skilyrtri endurgreiðslu. Hér er rétt að staldra aðeins við og gera grein fyrir báðum þessum hug- tökum, en nokkurar ónákvæmni virðist oft gæta, um það hvað er átt við í þessum tilfellum. Lán er víkj- andi ef greiðsluskylda víkur fyrir greiðslum til ann- ara kröfuhafa, ýmist aðeins sumra eða allra, við gjaldþrotaskipti. Þessi skilningur á sér stoð í 4. tl. 114. gr. 1. 21/1991. Lán með skilyrtri endugreiðslu er aftur á móti lán sem ekki á að greiða af, nema að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þau skilyrði geta verið margvísleg, s.s. að hagnaður sé af rekstri, velta fari yfir ákveðið lágmark, að áður hafi verið greitt af tilteknum skuldbindingum o.s.frv. Lán get- ur hæglega verið bæði víkjandi og með skilyrtri endurgreiðslu. Hvort tveggja getur orðið til þess að greiða fyrir því að greiðslufrestur fáist hjá öðrum lánardrottnum, eða að nýtt fjármagn fáist að láni. Um nýtt lánsfé tel ég ekki ástæðu til að hafa mörg orð, en auðvitað getur oft falist lausn með því. Hér má þó benda á framansagt um víkjandi lán og lán með skilyrtri endurgreiðslu, en slíkt lánsfé getur greitt verulega fyrir skuldbreytingum, söfnun nýs lánsfjár eða hlutafjár. Frjálsir samningar við lánardrottna um lækkun krafna er oft það sem dugir. Þar gildir að sjálfsögðu samningafrelsið, enda mönnum almennt jafn heimilt að gefa eignir sínar og að njóta þeirra með öðrum hætti, enda segir máltækið að sælla sé að gefa en þiggja, þótt þeirrar sælu sjáist reyndar sjaldan merki við þessar aðstæður. Hér skiptir oftast miklu að jafnræðis sé gætt með kröfuhöfum og að réttar upp- 25

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.