Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1994, Page 26

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1994, Page 26
lýsingar séu gefnar, sérstaklega ef eitt á ekki yfir alla að ganga, einnig að skuldarinn leiti sér aðstoðar manns sem nýtur trausts, ef árangur á að nást. Reyndar verður jafnræðið sjaldnast fullkomið við ráðstafanir sem þessar, enda er það kannski helsti kosturinn við þessa aðferð að ekki hvílir lagaskylda á skuldaranum að gæta jafnræðis, eins og ef um nauðasamning er að ræða. Þess ber þó að geta hér að við opinberan nauðasamning mega einstakir kröfuhafar gefa meira eftir að kröfum sínum en aðr- ir. Það er fátítt að opinberir aðilar eða fjármálastofn- inir taki þátt í niðurfærslu krafna með þessum hætti. Hér er því fyrst og fremst um leið að ræða, ef nægi- legt er að fá niðurfellingu hjá öðrum aðilum, eða ef skuldir við framangreinda, sérstakleg hið opinbera, eru það stór hluti skulda að illmögulegt reynist að ná fram tilskyldum meirihluta til samþykktar nauða- samnings, en sjaldgæft er að opinberir aðilar greiði atkvæði sitt með nauðasamningsfrumvarpi. Þá tel ég að undanfarið hafi gætt meiri tregðu meðal kröfu- hafa til að fara þessa leið vegna þess að þeir telja fordæmisgildi slíkra samninga meira gagnvart öðr- um skuldurum sínum, e.t.v. í sömu atvinnugrein sem á í erfiðleikum, en ef um opinberan nauða- samning er að ræða. Veiting greiðslufrests og leng- ing hans er auðvitað angi af þessu, enda geta opin- berir nauðasamningar gengið útá það að kröfur séu greiddar að fullu, en greiðsluskilmálum sé breytt. A því sviði má hins vegar telja þessa leið auðrataðri, en ef um niðurfellingu á að vera að ræða. 3. Aðgerðir með heimild dómstóla. Nú er því oft svo varið að annað hvort eru for- sendur til að ná frjálsum samningum ekki til staðar, eða að yfirvofandi eða byrjaðar innheimtuaðgerðir lánardrottna gera það að verkurn að nauðsynlegur friður og festa í rekstrinum næst ekki, nema að dómstólar heimili annað hvort greiðslustöðvun eða tilraunir til nauðasamnings við kröfuhafa. Ég ætla nú í stuttu máli að gera grein fyrir helstu atriðum þessara tveggja leiða, en hvor um sig gefur reyndar tilefni til miklu ítarlegri umfjöllunar en hér gefst rúm til. í báðum tilvikum tel ég að gríðarlegu máli skipti að bæði lögmaður og endurskoðandi komi til leiks og að samvinna þessara aðila skipti miklu fyrir árangur. Bæði er að þekking beggja er að mínu áliti nauðsynleg, auk þess sem þessar stéttir njóta báðar nokkurs trausts, enda þótt ekki fari hjá því að miklu skiptir hverjir veljist til starfans. Markmið og réttaráhrif þessara tveggja leiða er mismunandi. Þannig gefur greiðslustöðvun svigrúm til að meta stöðuna og vinna að úrbótum. Undirbún- ingur greiðslustöðvunar þarf heldur ekki að taka ýkjá langan tíma. Undirbúningur nauðasamningstil- rauna er hins vegar viðurhlutameiri, enda þurfa menn þá að hafa mótaðar tillögur um úrbæturnar og til hvaða aðgerða verður gripið. Það er því alls ekki sama hvor leiðin er valin. Það er heldur alls ekki sjálfgefið að skilyrði séu til greiðslustöðvunar, enda þótt heimila ætti nauðasamningstilraunir. 3.1. Greiðslustöðvun. Helstu skilyrði til að leita greiðslustöðvunar koma fram í 10. gr. 1. 21/1991. Þau eru að skuldar- inn eigi í verulegum fjárhagsörðugleikum, hann vilji freista þess að koma nýrri skipan á fjármál sín og að hann hafi ráðið lögmann eða löggiltan endurskoð- anda til að aðstoðar sig við það. Ekkert er því til fyr- irstöðu að aðstoðarmennirnir séu tveir, enda getur það verið ráðlegt þegar um viðamikinn eða flókinn rekstur er að ræða. I slíkum tilvikum gæti verið til- valið að velja til starfans lögmann og löggiltan end- urskoðanda. Beiðnin verður að uppfylla ákveðin formskilyrði, s.s. að vera skrifleg, að þar komi skýr- lega fram hver óskar greiðslustöðvunar og hver sé aðstoðarmaður skuldarans. í beiðninni eða í gögn- um sem henni fylgja skal koma fram ítarleg greinar- gerð um það hvað valdi fjárhagserfiðleikunum, í hverju þeir felist og hvemig skuldarinn hyggst leysa úr þeim. Þá þarf að fylgja yfirlýsing löggilts endur- skoðanda um að bókhald skuldarans sé í lögboðnu formi, sé um bókhaldsskyldan aðila að ræða. Hér er það skuldarinn sjálfur sem ræður hver er aðstoðar- maðurinn, en við nauðasamningstilraunir er það dómarinn sem skipar umsjónarmann. Hlutverk um- sjónarmann§ er þó allólík hlutverki aðstoðarmanns- ins, eins og vikið verður að síðar. Aðstoðarmaður- inn verður þó að uppfylla ákveðin almenn skilyrði, svo sem um aldur, að hann sé lögráða og að bú hans sé ekki undir gjaldþrotaskiptum. Þá má hann heldur ekki sjálfur, eða neinn sem honum er nákominn, hafa hagsmuna að gæta af fjárhagslegum málefnum skuldarans. í nefndri 10. gr. er ekkert um það fjallað hvort greiðslustöðvun er fær sé málefnum skuldarans þannig varið að honum sé skylt að gefa bú sitt upp til gjaldþrotaskipta, á því er hins vegar tekið í 4. tl. 12. gr. laganna, en þar segir að dómara beri að synja um greiðslustöðvun sé skuldaranum sýnilega þegar orðið skylt að krefjast gjaldþrotaskipta á búi sínu vegna ákvæða 64. gr., sem fyrr var vitnað til. Það má því fullyrða að greiðslustöðvun er ekki fær fyrir- tækjum sem þannig er ástatt fyrir, skv. strangri túlk- un laganna. Ég tel þó að ekki hafi alltaf verið farið eftir þessu skilyrði, m.a. þegar því er lýst yfir í beiðni um heimild til greiðslustöðvunar að úrræðin felist í nauðasamningi við kröfuhafa. Hins vegar má ætla að komi fram mótmæli frá kröfuhöfum við 26

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.