Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1994, Side 27

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1994, Side 27
veitingu greiðslustöðvunar, en slíkt kemur helst til í þinghaldi sem ákveðið er við veitingu heimildarinn- ar, eins og vikið verður að á eftir, megi gera ráð fyr- ir höfnun. Það helgast kannski líka af þeirri ástæðu að synjun um veitingu heimildar til greiðslustöðv- unar verður ekki skotið til Hæstaréttar, öfugt við það sem gildir sé heimildin veitt. Réttaráhrif greiðslustöðvunarinnar eru margvís- leg. Þau sem kannski mestu máli skipta eru þau að ekki verður gengið að eignum skuldarans á meðan að greiðslustöðvun varir, né verða þær seldar nauð- ungarsölu. Þá verða vanefndaúrræði ekki virk á greiðslustöðvunartímanum, utan það að dráttarvextir falla á, auk dagsekta og févíta. Sama á við um þving- unarúræði stjórnvalda. Hins vegar breytir heimild til greiðslustöðvunar ekki ástandi, t.d. lokun, sem hefur verið komið á fyrir uppkvaðningu úrskurðarins. Þá eru heimildir til greiðslu skulda og efnda annara fjár- skuldbindinga verulega takmarkaðar. Með 1. 21/1991 urðu verulegar breytingar á fram- kvæmd. Þannig verður greiðslustöðvun nú aldrei veitt til lengri tíma en 3ja vikna í upphafi. Fyrir lok þess tíma þingar dómarinn í málinu og tekur afstöðu til beiðni skuldarans um framlengingu greiðslu- stöðvunarinnar, komi hún fram. Aður en til þess þinghalds kemur þarf skuldarinn að halda fund með kröfuhöfum sínum, en til hans skal aðstoðarmaður- inn boða alla þekkta lánardrottna, með útbomu á- byrgðarbréfi, símskeyti eða á annan sannanlegan hátt. Aðrir en kröfuhafar eða umboðsmenn þeirra eiga ekki rétt til fundarsetu. Þetta er nýmæli, sem ætlað er að stuðla að því að kröfuhöfum sé unnt að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og fái jafn- framt upplýsingar um stöðu mála og hvað skuldar- inn hyggst fyrir. A fundinum er reyndar ekki gert ráð fyrir neins konar atkvæðagreiðslu, en með þessu verða kröfuhafarnir með óbeinum hætti virkari þáttakendur en áður var, enda ber aðstoðarmannin- um að leita eftir afstöðu lánardrottna til þeirra að- gerða sem fyrirhugað er að grípa til. A þessum fundi ber aðstoðarmanninum jafnframt að leggja fram tæmandi og sundurliðaða skrá um eignir og skuld- bindingar skuldarans. I eignalistanum skal andvirði hverrar eignar áætlað og skuldbindingar skulu reiknaðar út miðað við frestdag. Hér er um all skamman frest að ræða og þarf því skjótra aðgerða við, en á þessum tíma má jafnframt gera ráð fyrir mikilli vinnu við það að ákveða hvað sé heimilt að gera í rekstrinum, auk þess sem erfiðir samningar við viðsemjendur fyrirtækisins koma oft til, sérstaklega í ilóknum og margbrotnum rekstri. Hlutverk endurskoðanda er mikilvægt á þessum tíma, en ekki síður lögmanns vegna þeirra álitaefna sem leysa þarf úr. Að loknum þessum 3 vikum leggur skuldarinn fram beiðni um framhald greiðslustöðvunarinnar, sé talin ástæða til slíks. Þá geta kröfuhafar gert athuga- semdir sínar, telji þeir að ekki beri að veita áfram- haldandi greiðslustöðvun. Með beiðni skal leggja fram þau gögn sem lögð voru fram á kröfuhafafund- inum, sönnun fyrir boðun fundarins, fundargerð að- stoðarmannsins og greinargerð hans um hvernig hafi verið staðið að aðgerðum á greiðslustöðvunar- tímanum og hverjar ráðstafanir verði gerðar, ef beiðnin verður tekin til greina. Telji dómari skilyrði vera til að framlengja greiðslustöðvunina getur hann framlengt hana í allt að 3 mánuði, en lengst getur greiðslustöðvun staðið í 6 mánuði frá því þinghaldi sem ákveðið er við upphaflega veitingu greiðslu- stöðvunarinnar. Áður en greiðslustöðvun verður framlengd aftur þarf þó að halda fund með kröfu- höfum með sama hætti og lýst var að framan. Það má vera Ijóst að verulegu skiptir að þau gögn sem kynnt eru séu rétt og trúverðug og ekki síst að fyrirhugaðar ráðstafanir séu þess eðlis að kröfuhafar sjái tilgang með áframhaldi greiðslustöðvunarinnar. Það er enda eðlilegt þar sem greiðslustöðvunin hef- ur veruleg áhrif á réttarstöðu kröfuhafanna, þar sem með greiðslustöðvuninni er girt fyrir möguleika þeirra til að krefjast efnda á kröfum sínum. Verulegar takmarkanir eru lagðar á rétt skuldar- ans til að ráðstafa réttindum sínum, til að stofna til fjárskuldbindinga og til að greiða skuldir sínar með- an á greiðslustöðvun stendur. Þó er ekkert af þessu fortakslaust bannað, sé ákveðnum reglum fylgt og sé skilyrðum fullnægt. Reglur þessar er að finna í 19. til 22. gr. 1. 21/1991. Þar er einnig að fínna regl- ur um það í hvað verja má eignum skuldarans. Sam- þykki aðstoðarmannsins þarf að liggja fyrir svo heimilt sé að ráðstafa réttindum, s.s. að selja eignir, og til að stofna til nýrra fjárskuldbindinga. Þær fjár- skuldbindingar sem þannig er stofnað til á greiðslu- stöðvunartímanum njóta hins vegar góðrar stöðu í kröfuröðinni, en þær raðast sem búskröfur. Greiðsla skulda er aðeins heimil að svo miklu leiti sem víst er að þær fengjust greiddar við gjaldþrotaskipti, eða telja má víst að það sé nauðsynlegt til að varna verulegu tjóni. Niðurstaðan er því sú að ekki er ráðlegt að óska heimildar til greiðslustöðvunar ef telja má sýnilegt að skuldaranum beri að gefa bú sitt upp til gjald- þrotaskipta. Greiðslustöðvun er eðlileg ráðstöfun ef lánardrottnar hafa byrjað innheimtuaðgerðir eða þær eru yfirvofandi. Nauðsyn ber til að strax í upphafi sé reynt að gera nokkra grein fyrir því til hvaða ráð- stafana fyrirhugað sé að grípa, enda þótt slíkar hug- myndir þróist vitanlega á greiðslustöðvunartímanum og að þessar ráðstafanir séu raunhæfar og trúverð- 27

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.