Ráðunautafundur - 15.02.1990, Side 224
-214-
Eftirfarandi tafla sýnir helstu niðurstöður úr þessari rannsókn.
Meðaltal N(l) SE(E) N(2) SE(M) R2
Meltanleiki (vitro) 66,8 467 0,85 100 1,65 0,93
Prótein 16,7 467 0,32 100 0,68 0,98
Tréni ADF 33,2 467 0,58 100 1,18 0,96
Tréni NDF 47,6 467 0,73 100 1,75 0,98
Lignin 7,7 467 0,28 100 0,59 0,91
N er fjöldi sýna við stöðlun (1) og fjöldi mældra gilda (2) SE(E) skekkja í efnagreiningu SE(M) skekkja
í mælingu með NIR.
Þessi rannsókn er tilgreind hér sem dæmi um árangur með NIR mælingum, en
aragrúi greina hefur birst um slíkar mælingar í gróffóðri. Sumar, jafnvel nýlegar
*
rannsóknir, gefa upp mun lakari ákvörðun á ofangreindum þáttum, jafnvel er skekkja
svo mikil að mælingin nálgast að vera ónothæf. Oftast stafar það af því að ekki hefur
verið staðið rétt að meðhöndlun sýnanna, þau séu of fá og fleira þess háttar.
Til fróðleiks verða taldar upp mælingar á gróffóðri (ekki tæmandi listi) sem
mældar hafa verið með NIR aðferð við skilgreindar aðstæður:
Meltanleiki, prótein, tréni (Weende, ADF, NDF, MAD), sellulósi, hemisellulósi, lignin,
fita, kolvetni, vatn, carotine, kalsíum, magnesíum, fosfór, kalí, nítrat, aska, alkalóíðar
og tegundasamsetning (grös).
STAÐA NIR-MÆLINGA HÉRLENDIS
Fylgst hefur verið með þróun þessarra mælinga um árabil, en lengi voru of margir
óvissuþættir í framkvæmd þessarra mælinga þannig að erfitt var að réttlæta
tækjakaup, enda um dýra fjárfestingu að ræða. Þó var tvívegis sótt um styrk úr
Vísindasjóði (árin 1983 og 1986) til vinnu við samanburð á meltanleika gróffóðurs með
Tilley og Terry aðferð og öðrum aðferðum svo sem NIRS. Bæði skiptin var
umsóknum synjað.
Síðla árs 1988 fékkst heimild til að panta nýtt NIR mælitæki og voru þau kaup
styrkt af Rannsóknasjóði. Keypt var gerðin Pacific Scientific 6250 (scanning
monochromator). Þó tækið kæmi í hús síðastliðið vor var af ýmsum ástæðum ekki fyrr
en í byrjun nóvember síðastliðinn sem tækið var endanlega tilbúið til notkunar ásamt
tölvu og nýjum endurbættum hugbúnaði frá Infrasoft International (USA).
Nú stendur yfir vinna við stöðlun fyrir heyefnagreiningar og nú þegar hægt að