Svava - 01.03.1899, Síða 17
—401 —
meðal liffæranna: t. d. lifrin, sem skilur úr og dregur
saman gallið. Starf þessara líffæra er að safna saman
dreifðum og útþyntum efnum úr blóðinu og, loggja þau
til hliðar, má gjarnan segja, með því að láta þau verða
fyrir ýmis konar tilbreytiugum og senda þau síðan hring-
inn um kring í líffærakeriinu. Vöðvataugarnar safna
saman hreifingunni, en skila henni aftur þegar þær
verða fyrir espandi áhrifum. Græna litarefnið í jurtun-
um dregur í sig kolefnið úr kolsýru gufuhvolfsins og
safnar því saman í jurtinni sem viðarmauki, tré og lín-
sterkju. Þannig getur ef til vill átt sér stað með heil-
ann. Samansöfnunarlíffæri, eins og hann er, safnar sam-
an fijóöngum til frumefna sálarinnar, sem dreifðir eru
um alt andrúmsloftið, sameinar þá og geymir til að
mynda úr þeim einstaklingseðli mannsins. Sabatíer út.
listar þessa fram úr skarandi skemtilegu getgátu með
því að benda á alla tilbreytni taugatækjanna frá hinum
ómerkilegustu hylfum til aðallíffæranna. Taugakerfið er
auðugt af tæjum, sem dreifðar eru meðal annara efna ólíkr-
ar tegundar. Sama tilfellið er einmitt með rafmagnaða
álinn, hrökkálinn, sem eins og allir vita, framleiðir hreint
rafmagn. Það er safnbúr af rafraagui, það er að skilja
afli, som að mörgu leyti er merkilega líkt taugaaflinu.
Svava. III. 9. h.
26