Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2016, Blaðsíða 4
Vikublað 1.–3. mars 20164 Fréttir
Með skráninga-
númerið TF-GAY
Í byrjun mars 2016 mun fyrsta
Airbus A330-300 breiðþota WOW
air koma til landsins og mun hún
bera skráningarnúmerið TF-GAY.
Síðar á árinu munu svo
bætast við flotann tvær Airbus
A330-300 vélar og munu þær
heita TF-LUV og TF-WOW.
Tvær Airbus A321 fengu
nafnið TF-MOM og TF-DAD síð-
astliðið vor og tvær Airbus A320
voru nefndar TF-SIS og TF-BRO.
Núna í febrúar bættust svo við
TF-SON og TF-KID.
Með þessari viðbót mun
WOW air auka sætaframboð sitt
um 127% á árinu, í 1,9 milljónir
sæta en á síðasta ári var sæta-
framboð félagsins 837 þúsund
sæti. Allar ellefu flugvélarnar
verða skráðar á flugrekstrarleyfi
WOW air en til samanburðar þá
voru aðeins tvær flugvélar skráð-
ar á leyfi WOW air í fyrrasumar.
Samlíking til
skammar
Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra segir til skammar að
bera nýgerðan búvörusamning
við fyrsta Icesave-samninginn.
Árni Páll Árnason, formaður
Samfylkingarinnar, gagnrýndi
samninginn á Alþingi á mánu-
dag og sagði hann festa í sessi
einokun Mjólkursamsölunn-
ar. Kostnaðurinn væri um 200
milljarðar króna og hann slag-
aði því upp í fyrsta Icesave-
samninginn. Útgjöldin væru
örugg en hagræðingin fugl í
skógi. Með samningnum væri
verið að festa einokun Mjólkur-
samsölunnar í sessi. Bjarni
svaraði því til að samlíkingin
væri vitlaus og að hann nennti
ekki að taka þátt í umræðum á
þeim nótum.
Kominn í hlaupaskóna
n Össur metur kapphlaupið til Bessastaða n Mögulegt samráð kvenna
Ö
ssur Skarphéðinsson, þing-
maður Samfylkingarinnar,
er sterklega orðaður við for-
setakosningarnar í vor. Öss-
ur er staddur erlendis og
náði DV ekki sambandi við hann
hvorki símleiðis né í gegnum Face-
book. Samt mátti sjá að Össur var
„online.“ Afar sterkur orðrómur er
á sveimi þess efnis að Össur sé nú
þegar búinn að ráða kosningastjóra.
Maður sem er í innsta hring Össur-
ar lýsti því svona þegar staðan var
borin undir hann: „Fjöldi fólks hef-
ur hvatt Össur til að gefa kost á sér.
Hann hefur á móti beðið það fólk
um að hugsa málið með sér.“
Össur er búinn að reima á sig
hlaupaskóna og er í startholunum
í kapphlaupinu um Bessastaði. Það
er ekki þar með sagt að hann muni
bjóða sig fram. Staðan er tekin og
metin frá einni viku til annarrar.
Orðrómurinn sem DV hefur heyrt
varðandi Össur er að hann hafi
ráðið reyndan almannatengil til
að stjórna kosningabaráttu sinni.
Þeir einstaklingar sem DV leitaði
til vegna þessa orðróms vildu ekki
tjá sig undir nafni en neituðu stað-
fastlega að hafa tekið slíkt hlutverk
að sér.
Össur einn veit
Einar Karl Haraldsson er einn af
nánum samstarfsmönnum og vin-
um Össurar. DV spurði hann hvort
hann væri að vinna með Össuri að
framboði. Fyrst var löng þögn. Svo
varð enn lengri þögn. Og svo kom
svarið: „Ég er á kafi í öðrum verkefn-
um en hef áhuga á forsetakjöri eins
og aðrir, bæði hér og í Bandaríkjun-
um. Mér vitanlega hefur Össur ekki
tekið neina ákvörðun. Og hann einn
getur sagt til um sín áform.“
Það er taugatitringur í kringum
framboð Össurar og það er skiljan-
legt á þessum tímapunkti. Tímasetn-
ing og stöðumat er mjög mikil vægt
og jafnvel svo að það getur ráðið
úrslitum. Sterkar konur hafa verið
nefndar til sögunnar sem möguleg-
ir frambjóðendur. DV hefur ítrekað
nefnt þessi nöfn. Katrín Jakobsdóttir,
þær Nordalssystur – Ólöf og Salvör,
Þorgerður Katrín og fleiri.
Kvennasamráð?
Össur Skarphéðinsson er metinn
sterkur frambjóðandi og heyrst hef-
ur úr stuðningsmannaliði þeirra
kvenna sem nefndar eru hér að
framan að mögulega þurfi að koma
til samráðs kvenna um einn öfl-
ugan kost gegn Össuri. „Það geng-
ur ekki að þrjár öflugar konur klóri
augun hver úr annarri í samkeppni
við Össur. Þá er skynsamlegra að
sammælast um einn frambjóðanda
til að koma í veg fyrir að við fáum
áfram miðaldra karlhlunk á Bessa-
staði.“ Þetta eru orð stuðningsaðila
eins kvenframbjóðanda sem liggur
undir feldi og metur stöðuna.
Stuðningsfólk við einstaka
mögulega frambjóðendur vill ekki
koma fram undir nafni. Það er lið-
ur í pókernum þessa dagana. Stóru
nöfnin sem munu bítast um þetta
embætti eru ekki komin fram. Það
er hins vegar ljóst að víða hafa
hlaupaskórnir verið teknir fram og
Össur er ekki einn um að vera bú-
inn að reima þá á sig. Tíminn einn
mun leiða í ljós hver þeirra kvenna
sem nefndar eru hér að framan
mun tylla sér startblokkirnar við
hlið hans. Og verða þær fleiri en
ein? Nú gildir að þjófstarta ekki.
Kapphlaupið er hins vegar við það
að hefjast. n
Eggert Skúlason
eggert@dv.is „Það gengur
ekki að
þrjár öflugar
konur klóri augun
hver úr annarri í
samkeppni við
Össur
Kapphlaupið að hefjast Ef Össur tekur skrefið til fulls þá er ljóst að hann er stærsta nafnið til þessa og hann verður á fyrstu braut. Katrín Jakobsdóttir er hitt stóra nafnið, sem margir
horfa til. Mynd SaMSEtt Mynd/dV
Töpuðu 118 milljónum
Í
slandspóstur tapaði 118 milljón-
um króna á árinu 2015. Er það
nokkur aukning frá árinu áður
þegar fyrirtækið tapaði 43 millj-
ónum króna. Tap ársins 2013 voru
119 milljónir.
Rekstrartekjur póstsins voru 7,6
milljarðar króna sem er 4,4 prósenta
hækkun frá árinu 2014. Handbært fé
frá rekstri var 222 milljónir króna en
454 milljónir árið áður.
Árituðum bréfum fækkar enn á
milli ára, eða um 6 prósent, en fjöldi
pakka og þyngri sendinga eykst
hins vegar. „Ástæður óásættanlegr-
ar afkomu á síðasta ári, líkt og árin
á undan má rekja til fækkunar bréfa
í einkarétti en magn þeirra hef-
ur dregist saman um 33% á síðustu
fimm árum. Þá hefur dreifinet póst-
þjónustunnar stækkað um rúm 3,3%
á sama tíma með fjölgun íbúða- og
atvinnuhúsnæðis sem leitt hefur til
aukins kostnaðar,“ segir Ingimundur
Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts.
DV greindi frá því í september að
Íslandspóstur hefði lánaði dóttur-
félagi sínu ePósti ehf. 55,6 milljónir
króna í fyrra en eldra lán til félags-
ins upp á 247 milljónir verður ekki
endurgreitt. Fyrirtækið hefur einnig
lánað dótturfélaginu á þessu ári en
vildi ekki gefa upp hversu mikið. Það
kemur að auki ekki fram í ársreikn-
ingi félagsins.
EPóstur var rekinn með 79 millj-
óna tapi í fyrra og móðurfélagið hef-
ur tapað alls 162 milljónum á síðustu
tveimur árum. n astasigrun@dv.is
Mikið tap Þrátt fyrir taprekstur lánaði Ís-
landsbanki dótturfélagi sínu háar fjárhæðir.
Hæ sæti hvað
færð þú að borða?
Smáralind • Kringlunni • Reykjanesbæ • sími 511 2022 • www.dyrabaer.is