Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2016, Síða 6
Vikublað 1.–3. mars 20166 Fréttir
Einkaþota á hjólum
fyrir lúxusfErðamEnn
Þ
að var hugmyndin, að
hafa þetta eins og einka-
þotu á hjólum,“ segir Ingi
Svavars son sem, ásamt
föður sínum Svavari Jóns-
syni, rekur ferðaþjónustufyrirtækið
Arctic Exclusive, sem býður upp
á glæsilegan nýjan sérsmíðaðan
bíl sem þeir fengu afhentan í síð-
ustu viku. Bíllinn er hugsaður fyrir
vel stæða ferðamenn sem vilja að-
eins það besta. Feðgarnir munu fara
með þá í skoðunarferðir um land
allt í fáheyrðum lúxus. Ingi segir
þá hafa séð tækifæri í lúxusferða-
mennsku hér á landi og tekið það.
Krafa um meiri lúxus
„Þetta er það sem þekkist úti í heimi.
Allur lúxusinn sem er í einkaþotun-
um er kominn í bílana. Þetta hefur í
rauninni ekki verið í boði hér á landi
en við erum alltaf að reyna að vera
öðruvísi og sáum þarna tækifæri,“
segir Ingi aðspurður um fararskjót-
ann. Eins og sjá má á meðfylgjandi
myndum þá er bifreiðin búin öllum
þeim lúxus sem hugsast getur og
minnir um margt á einkaþotu.
„Þessir „high-end“ ferðamenn
sem koma til Íslands þekkja þetta
annars staðar frá og lá því beinast
við að koma þessum lúxus hingað,“
segir Ingi og aðspurður segir hann
að þeir hafi fundið fyrir þessari eftir-
spurn. Þeir hafi verið með annan
eldri bíl sem þeir fengu áramótin
2013–2014 sem útbúinn er fyrir lúx-
usakstur af þessu tagi.
„Okkur fannst vera krafa um
meiri lúxus en það. Það eru að rísa
hér fimm stjörnu hótel og það þarf
að sinna þeim markaði. Sá mark-
aður þekkir ekkert annað en það
besta. Vel stæðir ferðamenn sem
vilja ekki vera í stórum rútum með
stærri hópum heldur í sínum eigin
hópi og njóta þeirra þæginda. Við
ætlum okkur ekki að vera stærstir
en við ætlum að vera bestir. Höfum
ekki áhuga á að vera með hundrað
bíla, bara gera það vel sem við erum
að gera enda erum við bara tveir í
þessu feðgarnir. Það er mikið undir
og ekkert risafyrirtæki á bak við okk-
ur. Við viljum hafa þetta lítið, þægi-
legt og gera þetta vel.“
Hugmyndin sé síðan að bjóða
þessum einstaka kúnnahóp upp á
ferðir um landið sem sérsniðnar
verða að þeirra þörfum og óskum.
Hannaður eftir þeirra höfði
Feðgarnir hönnuðu bílinn, sem er
Mercedes Benz Sprinter í grunninn,
eftir sínu höfði en hann var sérút-
búinn fyrir þá af fyrirtæki í Þýska-
landi. Það fól í sér að þeir völdu það
sem þeir vildu hafa í bílnum og við
því var orðið með sérlega glæsileg-
um árangri eins og sjá má. Bifreiðina
fengu þeir afhenta í lok síðustu viku
en aðspurður segir Ingi að kaup-
verðið sé trúnaðarmál en af íburði
hennar að dæma er ljóst að þessi
sérsmíði hefur kostað skildinginn.
Meðal þess sem þarna er að
finna eru sjö leðurklædd lúxussæti.
Tveir 32 tommu flatskjáir, Apple
TV, þráðlaust net, HDMI tengingar
fyrir fartölvur og skjái, vinnu- og
veitingaborð, rafmagnstengi fyr-
ir alla farþega, loftkæling, ísskápur,
mini-bar, öllum ljósum og búnaði er
stýrt með iPad-spjaldtölvu svo eitt-
hvað sé nefnt. Þá bendir Ingi á að í
bílnum sé búnaður til fundarhalda
og hann henti því fyrirtækjum sem
eru að taka á móti erlendum gestum
sem vilji nýta tímann vel frá Keflavík
til Reykjavíkur. n
n Feðgar svara eftirspurn í ferðaþjónustu með nýjum sérhönnuðum lúxusbíl
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is „Okkur fannst vera
krafa um meiri
lúxus en það. Það eru
að rísa hér fimm stjörnu
hótel og það þarf að
sinna þeim markaði.
Flotinn stækkar Fyrir áttu feðgarnir bílinn til vinstri á mynd sem útbúinn er með miklum
þægindum. Þeir fundu hins vegar fyrir kröfum um meiri lúxus og keyptu því svarta Mercedes-
Benz Sprinter bílinn til hægri. Mynd ÞorMar Vignir
Feðgar í
lúxusferðum
Svavar Jónsson og
Ingi Svavarsson
eru mennirnir á
bak við Arctic
Exclusive.
Mynd ÞorMar Vignir
Öllu stýrt með
iPad Hægt er
að velja úr úrvali
lýsingarmöguleika,
alltaf eftir stemm-
ingunni. Hægt
er að draga fyrir
skyggðar rúðurnar.
Til að svala þorsta Farþegar Arctic Exclusive geta vætt
kverkar sínar með veigum úr mini-barnum sem er að finna í
þessum sjö sæta lúxusvagni.
Náttúrulegar
hágæða
gæludýravörur