Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2016, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2016, Síða 22
Vikublað 1.–3. mars 201614 Sport B rimbrettakonan Silvana Lima segist ekki láta nokkrar hindranir stöðva sig í að ná árangri í íþrótt sinni. Hún er besta brimbrettakona Brasilíu en hefur átt í mjög miklum erfiðleikum með að tryggja sér styrkt- araðila. Ástæðan er sú að Silvana þótti ekki nógu myndarleg og fyrir- sætuleg til að fá auglýsingasamninga. Fyrstu 13 ár ferilsins voru því erfið og fjárhagslegar áhyggjur þjökuðu hana. En hún neitaði að láta það stöðva sig og nú er hún á hátindi ferilsins. Í umfjöllun BBC um Silvönu segist hún finna frelsi í vatninu, það er tilfinning sem hún sé tilbúin til að fórna öllu fyrir. Hún segir frá upp- vaxtarárunum og erfiðleikunum og hvernig hún komst á toppinn ein með sjálfri sér. Finnur frelsið „Ég er frjáls þegar ég er í sjónum. Það er alveg ólýsanleg tilfinning,“ segir hún. Hún var sjö ára þegar hún byrj- aði að æfa og er þrítug í dag. „23 ár í sjónum. Ég hef átta sinnum verið valin besti brimbrettakappinn í Brasilíu, tvisvar sinnum verið önnur best í heiminum,“ segir hún. „Fjölskylda mín bjó í kofa á ströndinni. Ég ímyndaði mér að það væri áhugavert að búa í alvöru húsi, venjulegu húsi, og eiga nágranna. Fyrsta brimbrettið mitt var planki. Ég fann sjálf út hvernig ég gat gert gat á hann og fest á það ugga,“ segir hún um upphafið. Hún er meðvituð um að hún hafi þurft að leggja mikið á sig til að ná árangri. „Ég hef mætt mörgum hindrun- um frá barnæsku en ég hef komist yfir þær. Það fylgir mér samt alltaf, og ég held að það sé gott. Það er gott fyrir fólk að bíta á jaxlinn. Ég hugsa um fortíðina, hvað ég fékk ekki upp í hendurnar og hvar ég stend í dag. Það gerir mig að betri íþróttamanni.“ Róttæk Silvana er vön að æfa með strákum og segir að hún hafi ætlað að verða jafn- góð og strákarnir á brettinu. „ Fyrir vikið er ég ákveðin og róttæk þegar ég keppi,“ segir hún og segist taka áhættu. Til að stunda íþróttina hafa flestir brimbrettakappar fengið styrkt- araðila, sem gera þeim kleift að ferðast um heiminn, æfa og keppa. Vinnings- fé kemur svo að góðum notum. Silvana lenti í miklum erfiðleikum vegna þess að henni gekk illa að fá styrktaraðila. „Ég lít ekki út fyrir að vera fyrir- sæta. Ég er ekki skvísa. Ég er brim- brettakappi, ég er atvinnumaður. En íþróttavörufyrirtækin horfa á konur sem keppa á brimbretti og vilja fá konur sem eru bæði brimbretta- kappar og módel. Ef þú lítur ekki út fyrir að vera fyrirsæta, þá situr þú eftir án styrktaraðila. Það kom fyrir mig,“ segir hún. „Þú ert útilokuð, þeir geta verið án þín.“ Silvana segir karlmenn í sömu íþrótt ekki glíma við sömu vandamál- in. „Ég gæti farið í brjóstastækkun, litað á mér hárið og sett í mig linsur svo augun virðist blá. En það væri svo skrítið, enginn myndi þekkja mig. Það væri ekki ég. Ég gekk á milli fyrirtækja og reyndi að fá styrktar- samninga eins og ég er. Ég fékk alltaf nei. Þá fékk ég þá hugmynd að hefja ræktun á frönskum bolabítum. Það hjálpaði mér að borga fyrir ferða- lögin. Ég vann mót á Nýja-Sjálandi þökk sé hvolpunum. Þeir borguðu brúsann,“ segir hún. Ræktunin gerði henni kleift að ferðast um heim- inn, vinna mót og fá þannig vinn- ingsfé og vekja athygli. Núna er hún þekkt, hefur vakið athygli fyrir árang- ur sinn sem íþróttakona og hefur fyr- ir vikið ekki þurft að breyta sjálfri sér eða prinsippum sínum. Á sama tíma hefur líf hennar breyst til hins betra, á hennar forsendum. „Það að vera brimbrettakona hefur breytt lífi mínu algjörlega. Það hefur líka gefið mér tækifæri til að aðstoða fjölskyldu mína. Á þessu ári hefur allt breyst varðandi styrktar- aðila. Það var frábært. Mjög stór og mikilvægur styrktaraðili er núna að baki mér. Ég held að ég sé að standa mig vel og ég vil gera meira.“ n astasigrun@dv.is Nei var ekki svar Silvana Lima neitaði að breyta sér til að fá styrktarsamninga Bjó í kofa Hundaræktun gerði Silvönu kleift að æfa og keppa. Mynd EPA Vesturhrauni 5 Garðabæ S: 530-2000 Bíldshöfða 16 Reykjavík S: 530-2002 Tryggvabraut 24 Akureyri S: 461-4800 Bætiefni www.wurth.is - www.facebook.com/wurthisland BENSÍN BÆTIEFNI Fyrir allar bensínvélar með eða án hvarfakúts · Hreinsar bensíndælu, leiðslur og innspýtingarkerfi. · Kemur í veg fyrir botnfall í soggrein, túðum, ventlum og ventlasætum. · Minnkar eldsneytisnotkun · Lengir líftíma hvarfakúts og súrefnisskynjara. · Tryggir nákvæma stjórnun eldsneytisloka. · Kemur í veg fyrir tæringu í elds- neytiskerfi og sprengirými. · Kemur í veg fyrir stíflaða ventla. · Bætir útblásturinn og minnkar losun út í umhverfið. DÍSEL BÆTIEFNI Fyrir allar díselvélar þ.m.t. common rail og öðrum olíuverkum · Hreinsar eldsneytiskerfi og brennslukerfi. · Bætir útblásturinn og minnkar losun út í umhverfið. · Kemur í veg fyrir botnfall í túðum, ventlum og ventlasætum. · Minnkar eldsneytisnotkun. · Tryggir nákvæma stjórnun eldsneytisloka. · Kemur í veg fyrir tæringu í eldsneytisgeymi. · Minnkar bank í mótor. Inniheldur yfirborðsvirk efni, tæringar- og ryðvörn. Inniheldur yfirborðsvirk efni, tæringar- og ryðvörn. SÓTAGNASÍUHREINSIR Hreinsiefni til að hreinsa kolefni og sótagnir úr sótagnasíum. · Losar um og fjarlægir kolefn- isagnir úr sótagnasíu. · Ekki þarf að taka kút úr við hreinsun. · Sparar peninga þar sem ekki þarf að skipta um sótagnasíu. (þetta fer eftir ástandi á sótagnasíu) · Efnið er ekki eldfimt. · Málm- og öskulaus formúla · Gufar upp án þess að skilja eftir sig óhreinindi fyrir allar vélar Láttu þér ekki vera kalt Sími 555 3100 www.donna.is hitarar og ofanar Olíufylltir ofnar 7 og 9 þilja 1500W og 2000 W Keramik hitarar með hringdreifingu á hita Hitablásarar í úrvali Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.