Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2016, Qupperneq 22
Vikublað 26.–28. apríl 20166 Heitir pottar og gufuböð - Kynningarblað
Heitir pottar í sérflokki og
val um kröftugt vatnsnudd
Á. Óskarsson: Sömu vatnsdælur knýja pottanuddið og notaðar eru á sundstöðum
Á
Óskarsson ehf. hefur sér-
stöðu meðal þeirra sem selja
heita potta hér á landi þar
sem fyrir tækið þjónar sund-
laugum landsins með dælur
og ýmsan búnað. Fyrirtækið er einnig
hið eina á Íslandi sem sérhæfir sig
í byggingu sundlauga og uppsetn-
ingu hreinsikerfa. Um allt land er að
finna sundlaugar, vatnsrennibraut-
ir og annan sundlaugatengdan bún-
að og leiktæki frá Á. Óskarssyni og
síðastliðið haust afhenti fyrirtæk-
ið Færeyingum sína fyrstu 50 metra
sundlaug. Það er áhugavert fyrir þá
sem leggja mikið upp úr góðu vatns-
nuddi að vatnsdælur sem knýja nudd
í heitum pottum frá Á. Óskarssyni
eru sömu gerðar og vatnsdælur sem
knýja nuddið á opinberum sund-
stöðum víða um landið. Kaupendur
heitra potta frá Á. Óskarssyni sem
vilja nudd geta því gengið að kraft-
miklu og framúrskarandi vatnsnuddi
vísu í sínum pottum.
Á. Óskarsson hefur hátt í 40 ára
reynslu í sölu á heitum pottum og
er fyrirtækið því að öllum líkindum
með þeim reynslumestu á þessu
sviði hér á landi. Fyrirtækið býður
upp á potta í hæsta gæðaflokki, með
eða án nudds, fyrir heimili og sum-
arbústaði. Einnig býður Á. Óskars-
son upp á potta í nokkrum stærðum
og gerðum fyrir almenningslaugar,
líkamsræktarstöðvar, hótel og ferða-
þjónustuaðila. Fyrirtækið selur enn
fremur lagnaefni, stúta, niðurföll,
ristar og annað sem þarf fyrir hita-
veituskeljar og steypta potta.
Krafla er ein vinsælasta
pottaskelin sem Á. Óskarsson býður
upp á. Hún er rúmgóð og glæsi-
leg í alla staði og fáanleg í bláum
eða grænum yrjóttum lit. Hönnun
pottsins er einstaklega vel heppnuð
og eru sætin afliggjandi og vel löguð
þannig að þægilegt er að sitja í þeim
og láta líða úr sér. Þessi pottur hent-
ar vel fyrir heimilið, sumarbústað-
inn og ferðaþjónustuaðila.
Annar stórglæsilegur pottur er
Askja sem er hringlaga með yfir-
fallsrennu. Hann rúmar allt að sex
fullorðna og, eins og aðra potta,
er hægt að fá hann með kröftugu
vatnsnuddi líkt og sundlaugargestir
á Íslandi eiga að venjast. Enn fremur
er hægt að fá pottinn með loftnuddi
og hann er fáanlegur með hand-
riðum úr ryðfríu stáli. Askja hentar
vel fyrir hótel, ferðaþjónustuaðila,
líkams ræktarstöðvar og sundstaði.
Pottaskeljarnar frá Á. Óskarssyni
eru sjálfberandi og sérstaklega
þykkar og sterkbyggðar. Þær eru
framleiddar úr trefja- og akrýlplasti
en það efni veitir pottum besta
gæðastimpilinn því það hvorki upp-
litast né rispast auðveldlega og það
verður hvorki lint né stamt við hita-
breytingar. Að auki hrindir það frá
sér óhreinindum og auðveldar því
þrif í alla staði.
Hægt er að lesa meira um heita
potta frá Á. Óskarssyni á heimasíð-
unni www.oskarsson.is
Á. Óskarsson ehf. er til húsa að
Þverholti 8 í Mosfellsbæ og þangað
er tilvalið að koma til að skoða pott-
ana og fá góð ráð. Opið er virka daga
frá kl. 9 til 12 og 13 til 17. n
Sími: 566-6600
Heimasíða: www.oskarsson.is
Netfang: oskarsson@oskarsson.is
Skemmtilegar
vatnsrennibrautir við
sundlaugina á Hellu
frá Á. Óskarssyni.
Á. Óskarsson býður
upp á kraftmikið nudd
líkt og býðst í mörgum
almenningslaugum.
Pottaskelin
Krafla er
glæsileg og
fáanleg í
tveimur litum
Á. Óskarsson afhenti
Færeyingum sína
fyrstu 50 m sund-
laug haustið 2015
Borg í Grímsnesi
skartar 25 m sundlaug,
vaðlaug, heitum pott-
um og vatnsrennibraut
frá Á. Óskarssyni