Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2016, Blaðsíða 28
Vikublað 26.–28. apríl 201620 Lífsstíll
Leður, Latex og Losti í amsterdam
n stærsta blætisball í evrópu fór fram í amsterdam á dögunum n dV var á staðnum og lýsir því sem fyrir augu bar n Flengingar, munnmök og hópkynlíf
W
asteland er risastórt
blætisball (fetish-partí)
sem haldið er tvisvar
á ári í Amsterdam. Þar
koma saman 3.000–
4.000 perrar, dansa, drekka, daðra,
stunda BDSM-leiki og jafnvel venju-
legt kynlíf eina kvöldstund.
Blaðakona DV hafði spurnir af
viðburði þessum í heimsókn hjá vin-
konu sem búsett er í borg syndanna,
Amsterdam. Henni þótti með öllu
ótækt að ég hefði aldrei mætt, enda
væri um að ræða stærsta blætis-
ball í allri Evrópu. Auðvitað ákvað
ég að skella mér strax og færi gafst
og líta inn í lostafenginn latexheim
þar sem fólk kastar frá sér áhyggjum
og klæðnaði hversdagsins og leyfir
órunum að taka yfir.
Bart á bílnum
Bart kemur og sækir blaðamann.
Hann er mjög hollenskur í útliti,
hávaxinn, ljóshærður með krullur.
Hann er fasteignabraskari, nýlega
skilinn því konan hans var ekki sam-
mála þeim lífsstíl sem hann vildi til-
einka sér. „Mér finnst gaman að
fara í stór danspartí, og reyni að gera
það alla vega tvisvar í mánuði. Ég fæ
mér líka ecstasy einu sinni í viku,
hún fílar hvorugt. Svo vil
ég eiga kærustur, eða hitta
þær konur sem mig langar
til hverju sinni.
Hún var alls
ekki til í opið
samband.“
Já, misjafnt
er mannanna
bölið, hugsa ég, og spyr
hann hvort hann sakni
stundum fjölskyldulífs-
ins. „Jú, reyndar geri ég
það,“ segir Bart, og rennir
flíspeysunni niður, „auðvitað
var notalegt að hafa fjölskyldu
og stöðugleika, en hitt er
bara of mikilvægt fyr-
ir mig.“ Hann segir
mér að eiginkonan
hafi ekki verið hið
minnsta ævintýra-
gjörn í kynlífi: „Við
stunduðum ágætis
kynlíf, en allt var afar venjulegt. Ég
nýt mín betur núna þegar ég fæ að
stunda fetish-partí og klúbba, og
hleypa út drottnaranum innra með
mér.“ Bart er 49 ára. Grár fiðringur?
Kannski.
Leður og jólakjóll
Við keyrum á staðinn sem er í verk-
smiðjuhverfi í útjaðri borgarinn-
ar. Bart er ennþá í flíspeysu og
kakí buxum en hefur tekið leður-
buxur með sér í poka. „Þetta er ein-
falt fyrir mig. Ég fer bara í leðrið og
það dugar.“ Blaðakona er í gegn-
sæjum blúndukjól sem hún notaði
tvenn síðustu jól, en að þessu sinni
hefur hún látið hjá líða að klæða sig
í undirkjólinn sem hingað til hefur
verið notaður með honum. Í stað
þess er hún í ósköp látlausum svört-
um nærfötum og sokkaböndum
undir, og með fallegt fjaðraskraut
um hálsinn. Dálítið eins og vonda
stjúpa Mjallhvítar.
Gleymdi einhver pungbindinu?
Utandyra loga eldar og rauður
bjarmi lýsir upp iðnaðarhúsnæðið,
sem gæti allt eins verið á Völlun-
um í Hafnarfirði. Við göngum inn í
fortjald og förum í röð, sem minn-
ir helst á öryggisleitina á Leifs-
stöð. Leitað er í töskum og sýnileg
eitur lyf gerð upptæk. Ég kemst inn
án vandkvæða. Næst göngum við
inn í sal þar sem hugguleg tónlist
ómar frá plötusnúði sem hefur stillt
sér upp við hliðina á sölubás þar
sem hægt er að kaupa ýmiss kon-
ar klæði. Svona ef einhver skyldi
hafa gleymt pungbindinu heima,
eða vanti skyndilega písk til að
flengja einhvern ódælan gest. Við
kaupum okkur aðgang að læstum
skápum þar sem fjöldinn allur af
„blætlum“ er að leggja lokahönd
á klæðnað kvöldsins. Sumir eru
naktir að bera á sig olíu eða jafnvel
glimmer, aðrir fá hjálp til að reima
á sig leðurbrynju eða korsett. Eftir-
væntingin er nánast áþreifanleg.
Dyratíkurnar ströngu
Klæðnaður er lykilatriði á
Wasteland. Á heimasíðu við-
burðarins er lögð áhersla á að
fólk klæðist því sem flokkast getur
undir blætisbúninga (fetish-klæðn-
að). Undir það fellur leður, plast,
latex, burlesque, goth, einkennis-
búningar, keðjur, kaðlar, dýra-
búningar, klæðskipti og að sjálf-
sögðu nekt. Dyravarsla er ströng,
og í höndum svokallaðra dyratíka
Tveir fyrir einn Krúnurakaðir og
skeggjaðir, vöðvastæltir og vel klæddir.
Þessir tveir lögðu mikið í búningana og
áttu miklum vinsældum að fagna.
MynDir Mieke JacoBs
ragnheiður eiríksdóttir
ragga@dv.is
Látlaust Hún byrjaði kvöldið í háum skóm,
en var komin í þægilega gírinn þarna.
Latexmaður og leðurkona Hann var klæddur eins og frönsk þjónustustúlka, hún
hörkuleg í leðri.
sætur rass! Þessi ákvað að
sýna rassinn, sumir gengu lengra
og voru hreinlega allsberir.
Voffi Nokkrir blætishundar voru
á staðnum. Þessi kraup yfirleitt
við fætur „eiganda“ síns. Hlýðinn
hundur!