Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2016, Side 32
24 Menning Vikublað 26.–28. apríl 2016
Sjálfstætt
starfandi
apótek
í Glæsibæ
Opnunartími: Virka daga frá kl. 8.30-18.00
Laugardaga frá kl. 10.00-14.00
Okkar markmið er að veita þér og þínum
framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf
Fylgist með okkur á Facebook.com/Lyfsalinn
Uppakomur • Leikir • Tilboð
515 7900 | alskil@alskil.is | alskil.is
E
gill Sæbjörnsson, Gjörninga-
klúbburinn og Margrét Blön-
dal eiga möguleika á að verða
valin til þátttöku fyrir hönd
Íslands á 57. Feneyjatvíær-
ingnum sem fer fram á næsta ári.
Þau hafa verið valin til að vinna að
nánari útfærslu á tillögum sínum
um framlag til tvíæringsins í sam-
starfi við sýningarstjóra.
29 tillögur frá listamönnum
og sýningarstjórum bárust Kynn-
ingarmiðstöð íslenskrar myndlist-
ar í vor, en þetta er í annað skipti
sem kallað var eftir tillögum frá
listamönnunum og sýningarstjór-
unum sjálfum. Fagráð fór í kjölfar-
ið yfir allar tillögurnar og hefur nú
valið þrjá umsækjendur sem munu
á næstu sex vikum vinna að nánari
útfærslu verk efnanna fyrir lokavalið
sem verður kynnt í byrjun júní. Þau
munu fá 250 þúsund krónur hvert
til að vinna áfram að verkefninu og
koma því á framkvæmdastig sem
mun svo hefjast um leið og lokaval
hefur átt sér stað.
Egill Sæbjörnsson mun vinna
með sýningarstjóranum Stephanie
Böttcher að tillögu sinni, Gjörninga-
klúbburinn, sem er skipaður Eirúnu
Sigurðardóttur, Jóní Jónsdóttur og
Sigrúnu Hrólfsdóttur, vinnur með
sýningarstjórunum Nadim Samman
og Önju Henckel, þá mun Margrét
Blöndal vinna með sýningarstjóran-
um Alfredo Cramerotti.
Fagráð KÍM sem valdi tillögurnar
er skipað Björgu Stefánsdóttur,
framkvæmdastjóra KÍM, Hlyni
Hallssyni, safnstjóra Listasafnsins á
Akureyri, og Sirru Sigrúnu Sigurðar-
dóttur listamanni. Gestir nefndar-
innar voru Aðalheiður Guðmunds-
dóttir, listheimspekingur og fagstjóri
fræðigreina í myndlistadeild Lista-
háskóla Íslands, og Ólafur Ólafsson
myndlistarmaður. n
Egill, Margrét eða Gjörninga-
klúbburinn fara til Feneyja
B
rynja Cortes Andrésdóttir
hlaut um helgina Íslensku
þýðingaverðlaunin 2015 fyrir
snörun skáldsögunnar Ef að
vetrarnóttu ferðalangur eftir Italo
Calvino úr ítölsku yfir á íslensku.
Bókin kom fyrst út árið 1979 en það
er bókaforlagið Ugla sem gefur ís-
lensku þýðinguna út.
Í rökstuðningi sínum sagði dóm-
nefndin: „Ef að vetrarnóttu ferða-
langur er póstmódernískt ævin-
týri þar sem Italo Calvino
leikur sér með lesandann
og gerir hann að hetju í
bók sem fjallar um lestur
bóka, sem er skáldskapur
um skáldskapinn. Þýðing
Brynju Cortes Andrés dóttur
er leikandi og ljóðræn og
skilar afbragðsvel tærum
og lifandi stíl Calvino.“
Auk Brynju voru til-
nefnd til verðlaunanna
þau Aðalsteinn Ásberg
Sigurðsson fyrir Nýsnævi
– safn ljóðaþýðinga eftir 15 höf-
unda, Ásdís R. Magnúsdóttir fyrir
Rangan og réttan – þrjú ritgerðar-
söfn eftir Albert Camus, Jón Hallur
Stefánsson fyrir skáld-
söguna Spámennina frá
Botnleysufirði eftir Kim Leine og
Silja Aðalsteinsdóttir fyrir Grimms-
ævintýrin, í útgáfu og endursögn
Phillips Pullman. n
Brynja Cortes hlaut
þýðingaverðlaunin
Leikandi og ljóðræn þýðing á skáldsögu Italo Calvino
Verðlaunuð Brynja Cortes
tekur við íslensku þýðinga-
verðlaununum 2015.
Barnabókaverð-
laun Reykja-
víkur veitt
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,
Salka Guðmundsdóttir og
Linda Ólafsdóttir hljóta
Barnabókaverðlaun Reykjavíkur
2016, en verðlaunin voru veitt
í fyrsta skipti í Höfða síðasta
dag vetrar. Ragnhildur hlaut
verðlaunin fyrir Koparborgina,
sem var valin besta frumsamda
íslenska barnabókin, Salka hlaut
verðlaunin fyrir bestu þýðingu á
barnabók yfir á íslensku, en hún
þýddi bækurnar Skuggahliðin
og Villta hliðin eftir breska
höfundinn Sally Green. Þá
hlaut Linda verðlaunin fyrir
myndskreytingu sína á bókinni
Ugla og Fóa og maðurinn sem
fór í hundana eftir Ólaf Hauk
Símonarson.
Fagráð velur úr 29 tillögum að framlagi til Feneyjatvíæringsins 2017
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Egill Sæbjörnsson Margrét H Blöndal
Gjörningaklúbburinn