Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2016, Síða 18
Helgarblað 6.–9. maí 20162 Besti ísinn í bænum - Kynningarblað
R
ekin hefur verið ísbúð að
Laugalæk 8 síðan árið 1961
og óhætt er að segja að hús
ið sé „íssögulegur stað
ur“ eins og Lóa Bjarnadótt
ir, núverandi eigandi búðarinnar,
tekur til orða. Um tíma voru þarna
tvær ísbúðir hlið við hlið. Lóa ólst
upp í hverfinu, raunar við hliðina
á ísbúðunum tveimur, og seg
ist hafa borðað tvo ísa á dag. „Þetta
var kannski aðalísstaðurinn í bæn
um fram til sirka 1990. Mig grunaði
aldrei á þessum tíma að ég ætti eft
ir að verða íssali, hvað þá íssalinn á
þessum stað,“ segir Lóa.
„Árið 2009 var gamla ísbúðarhús
næðið í niðurníðslu. Þá fékk ég þessa
hugmynd að opna ísbúð. Margir
sögðu að við værum gengin af göfl
unum, en þetta var fyrsta ísbúðin
sem opnuð var eftir hrun,“ segir Lóa.
Til að gera langa sögu stutta fóru
viðtökurnar fram úr björtustu von
um og Ísbúðin Laugalæk er vinsæl
sem aldrei fyrr. Sérstaða hennar í dag
felst í tvennu. Annars vegar að stað
urinn er að hálfu leyti undir pylsu
veitingum og hins vegar eru það
heimagerðu íssósurnar sem þykja
einstakar.
Pylsugerðina frumþróaði eigin
maður Lóu, Sascha Trajkovic, en
hann er Þjóðverji. Er þar um að ræða
ekta þýskar Bratwurst.
„Pylsurnar innihalda svínabóg
og krydd og það er allt og sumt. Þær
innihalda ekkert vatn og eru algjör
lega án aukaefna. Pylsurnar eru
annars vegar bornar fram í brauði
á hefðbundinn hátt eins og við Ís
lendingar þekkjum, og hins vegar
sem Currywurst, á bakka með karrí
sósu og salötum sem við gerum sjálf,
og brauðið til hliðar. Currywurst er
þjóðarréttur Þjóðverja en við erum
eini staðurinn á Íslandi sem býður
upp á þær,“ segir Lóa.
Pylsurnar eru seldar undir fram
leiðslunafninu Reykjavik Sausage
Company en fyrirtækið er það sama.
Íssósurnar eru heimagerðar
sósur án allra aukaefna og bragð
tegundirnar eru jarðarberja, hind
berja, ananas, mangó, kókós, ban
ana og kirsuberja. Auk þess eru í
boði hefðbundnar sósur, heit og köld
súkkulaðisósa, heit og kvöld kara
mellusósa, lakkríssósa og pipar
myntusósa.
Innréttingar í Ísbúðinni Lauga
læk þykja aðlaðandi. Lögð er áhersla
á persónulega og góða þjónustu.
Gott kaffi er í boði á staðnum er öðr
um þræði hverfiskaffihús. Það er því
einstaklega notalegt að setjast þarna
niður og njóta veitinganna.
Sem fyrr er Ísbúðin Laugalæk
staðsett að Laugalæk 8 og síminn
er 561 2244. Opið er alla daga frá kl.
11.00 til 23.30. n
Sérstaðan felst í ljúffengum
pylsum og einstökum íssósum
Ísbúðin Laugalæk:
Mynd Sigtryggur Ari