Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Síða 4
Helgarblað 20.–23. maí 20162 Fréttir N ýr Toyota Land Cruiser 150 GX-jeppi, sem keyptur var fyrir forstjóra Byggðastofn- unar á dögunum, kostaði 9.775.000 krónur. Eftir örút- boð ríkisstofnunarinnar vegna bif- reiðakaupanna var tilboði TK Bíla, eða Toyota umboðsins á Íslandi, tek- ið. Eins og fram kom í DV á miðviku- dag var nýi jeppinn keyptur til að leysa af hólmi jeppa sömu tegund- ar sem keyptur var fyrir forstjórann í febrúar 2012. Sá gamli var ekinn rúma 136 þúsund kílómetra. For- stjóri Byggðastofnunar, Aðalsteinn Þorsteinsson, er einn þeirra forsvars- manna ríkisstofnana sem hafa bif- reiðar til afnota samkvæmt ráðn- ingarsamningi. Þægindi og öryggi Í útboðslýsingu örútboðsins vegna kaupa á nýja jeppanum er útlistað hvernig jeppa stofnunin vildi fá til- boð í. Þar er einmitt tiltekið sér- staklega að bifreiðin þurfi að vera jeppi og að áætlaður akstur á ári sé 40 þúsund kílómetrar. Tekið er fram að jeppinn verði notaður í vinnu- ferðir forstjórans um allt land á öll- um árstímum. „Því er lögð sérstök áhersla á þægindi og öryggi í vetrar- akstri.“ Þetta rímar við það sem Herdís Á. Sæmundardóttir, stjórnarformaður Byggðastofnunar, sagði í samtali við DV í síðasta blaði. Lögð væri áhersla á að endurnýja bíla stofnunarinnar því bæði forstjórinn og starfsmenn þurfi að vera mikið á ferðinni allan ársins hring um allt land og séu mik- ið keyrðir. Svona átti jeppinn að vera Engin sérstök krafa er gerð um afl, tog eða hestöfl vélar í útboðslýs- ingunni en aðrir tæknilegir eiginleik- ar og útbúnaður tilteknir. Þannig þurfti vélarstærð jeppans að vera að hámarki 2,8 lítra dísil- vél. Jeppinn þurfti að vera sjálfskipt- ur, fjórhjóladrifinn með hátt og lágt drif og lágmarkshæð undir hon- um 22 sentímetrar. Hann þurfti að vera búinn spólvörn, sjálfvirkri mið- stöð, „cruise control“, leiðsögukerfi, handfrjálsum Bluetooth-búnaði fyr- ir síma, Bluetooth fyrir tónlist, með hita í sætum, tauáklæðum og ann- aðhvort perluhvítur að lit eða silfur- litaður. Hálf milljón í afslátt Tilboð Toyota í Kauptúni uppfyllti öll þessi skilyrði og varð perluhvítur jeppi fyrir valinu. Tilboð bílaum- boðsins hljóðaði, sem fyrr segir, upp á 9.775 þúsund krónur. Líkt og fram kom í DV á miðviku- dag kosta sjálfskiptir Land Cruiser 150 GX-jeppar með 2,8 lítra dísilvél rétt tæpar 10,3 milljónir króna án aukahluta. Ef miðað er við það verð er ljóst að Byggðastofnun, í gegnum örútboð og afsláttarkjör Ríkiskaupa, fékk um 500 þúsund króna afslátt af listaverði forstjórajeppans. Líkt og DV greindi frá á mið- vikudag reyna Ríkiskaup nú að selja gamla Land Cruiser-jeppa forstjóra Byggðastofnunar á vefnum Bílaupp- boð upp í kaupverðið á þeim nýja. Hæsta boð sem borist hefur í gamla jeppann á uppboðinu er 4,1 milljón króna en lágmarksverði er ekki náð. Ríkistoppar fá nýja bíla DV greindi nýlega frá því að fram- kvæmdastjóri ríkisstofnunarinn- ar Viðlagatrygging Íslands (VTÍ) hefði fengið nýjan Mercedes-Benz GLC-jeppling til afnota, sem hluta af starfskjörum hans. Sá jeppling- ur kostaði tæpar 7 milljónir króna en um var að ræða ríflega 9 millj- óna króna bíl. Í tilfelli VTÍ var verið að endurnýja tæplega fjögurra ára Volkswagen Tiguan R Line-jeppling sem ekinn er 85 þúsund kílómetra. Hann hefur eftir því sem DV kemst næst, ekki enn selst þrátt fyrir ít- rekaðar tilraunir til upp- boðs. n Gerum við Apple vörur iP one í úrvali Sérhæfum okkur í Apple Allskyns aukahlutir s: 534 1400 Nýi forstjórajeppinn kostaði 9,7 milljónir n Áhersla á þægindi og öryggi í vetrarakstri n Svona jeppa vildi Byggðastofnun Öryggi og þægindi Nýr Land Cruiser- jeppi forstjóra Byggðastofnunar kostaði 9.775 þúsund krónur en lögð var áhersla á þægindi og öryggi í vetrarakstri í útboðs- lýsingu. Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Ora-bollur innkallaðar Matvælafyrirtækið Ora hef- ur í samráði við Heilbrigðis- eftirlit Hafnarfjarðar og Kópavogs ákveðið að innkalla Ora Fiskboll- ur í karrísósu í 850 gramma um- búðum. Samkvæmt tilkynningu frá Matvælastofnun er ástæða inn- köllunarinnar sú að mistök urðu við hitun vörunnar hjá Ora og telst hún því ekki örugg til neyslu. Bollunum er dreift í öllum verslunum Krónunnar, Nóatúns, Nettó, Úrvals, Kaupfélags Skag- firðinga og versluninni í Hlíð- berg. Neytendur sem keypt hafa vöruna geta skilað henni þar sem þeir keyptu hana. Hættulegar vörur teknar úr umferð Á árinu 2015 fundust 36 hættu- legar vörur hér á landi sem til- kynntar höfðu verið í Rapex, til- kynningarkerfi landa Evrópska efnahagssvæðisins fyrir vörur sem uppfylla ekki þær öryggis- kröfur sem gerðar eru til mark- aðssetningar þeirra. Í fyrra bár- ust alls 2.123 tilkynningar um hættulegar vörur, flestar vegna leikfanga (27%), fatnaðar og fylgi- hluta (17%) og bifreiða (10%). Algengustu hætturnar fyrir neyt- endur voru efnahætta, líkams- tjón og köfnunarhætta, en flestar vörurnar komu frá löndum utan ESB, aðallega frá Kína. Neytendastofa sinnir því hlut- verki að kanna hvort þær vörur sem falla undir eftirlit stofnunar- innar finnist hér á markaði. Ef hættuleg vara finnst er haft sam- band við söluaðila eða framleið- anda sem tilkynnir um innköll- un. Flestar tilkynningarnar hér á landi í fyrra vörðuðu vélknúin ökutæki og barnavörur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.