Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Blaðsíða 21
Helgarblað 20.–23. maí 2016 Kynningarblað - Sumarbúðir og námskeið 3
Sumarbúðirnar Ástjörn 70 ára
S
umarbúðirnar Ástjörn í
Kelduhverfi eru fyrir drengi
og stúlkur á aldrinum 6–12
ára og 13–15 ára unglinga.
Börn koma í sumarbúðirn-
ar alls staðar að af landinu, en flest
koma frá Norðurlandi og úr Reykja-
vík. „Mörg börnin sem koma til
okkar eiga foreldra sem voru í sum-
arbúðum hjá okkur þegar þeir voru
börn og það er mjög ánægjulegt því
það sýnir að foreldrarnir vilja veita
börnunum sínum það sem þau sjálf
upplifðu hér,“ segir Árni Hilmars-
son forstöðumaður.
Flest börnin koma í einn flokk,
en sum dvelja lengur. Flokkarnir
eru 8 og 10 dagar. Tjörnin og birki-
skógurinn umhverfis sumarbúðirn-
ar er endalaus uppspretta leikja og
útiveru. Má nefna t.d. knattspyrnu-
og körfuboltavöll, kvöldvökur, söng,
Biblíutíma, föndur, alls kyns leiki
og keppnir í skóginum og víðar,
íþróttahús í næsta nágrenni, sund í
tjörninni eða fjöruferð á góðviðris-
dögum, hestaleigu og margt fleira.
Landvörður kemur og fræðir börn-
in um þjóðgarðinn. Bátar eru af
ýmsum gerðum: Árabátar, kajakar,
kanóar, hjólabátar og skútur. „Hjá
okkur er stærsti bátafloti í sum-
arbúðum á Íslandi, en við erum
með um 30 báta af öllum gerðum,
meira að segja svokallaða sökkvi-
báta!“ segir Árni, en það eru bátar
sem börnin mega sökkva á góðviðr-
isdögum þegar synt er í tjörninni.
Hornsílaveiðar eru sívinsælar.
Ástjörn hefur þá sérstöðu að þær
eru einu sumarbúðirnar á Íslandi
sem eru í þjóðgarði, Vatnajökuls-
þjóðgarði, rétt hjá Ásbyrgi í Keldu-
hverfi. Einnig hefur Ástjörn þá sér-
stöðu að þvottahús er á staðnum
þar sem allt er þvegið af börn-
unum og fara þau því heim með
hrein föt í töskunni, mörgum
foreldrum til mikillar ánægju.
70 ára afmæli – opið hús
laugardaginn 16. júlí
Sumarbúðirnar Ástjörn hafa
starfað síðan 1946 og eru því
70 ára á þessu ári. Búðirnar
hafa frá upphafi verið reknar
á kristilegum grunni. Kristin
gildi og viðhorf eru mjög mik-
ilvægur þáttur í starfinu.
Algengt er að starfsfólk Ástjarn-
ar og sjálfboðaliðar sem koma að
starfinu hafi sjálfir dvalið sem börn
í sumarbúðunum og er ómetanlegt
fyrir Ástjörn að eiga slíkt bakland
sem leggur starfinu lið.
Skráning og upplýsingar er í
síma 462-3980, á heimasíðunni
astjorn.is og einnig á Facebook.
Netfang er astjorn@astjorn.is
Í tilefni af 70 ára afmælinu verð-
ur opið hús í sumarbúðunum Ás-
tjörn laugardaginn 16. júlí. Allir eru
velkomnir að skoða og sjá, kynna
sér starfsemina og einfaldlega njóta
sín í einstöku umhverfi. Opið hús
verður allan daginn en veitingar
verða frá kl. 14 til 18. n
Markmiðið að efla þroska einstak-
lingsins til líkama, sálar og anda
S
umarbúðir KFUM og KFUK
eru vinsæll valkostur barna
og unglinga á hverju sumri.
Flestir dvalarflokkar eru
5–7 daga langir og er boðið
upp á fjölbreytt úrval aldursskiptra
flokka fyrir krakka á öllum aldri.
Það er margt í boði í sumarbúðun-
um og tíminn flýgur áfram við leik
og störf.
„Hópleikir, íþróttir, útivera, list-
sköpun, bátsferðir, söngur, leik-
rit og svo ótal margt fleira er með-
al þess sem krakkarnir fá að gera í
sumarbúðunum og að sjálfsögðu
er það líka breytilegt eftir aldri og
að einhverju leyti ólíkt á milli sum-
arbúða,“ segir Jóhann Þorsteins-
son, æskulýðsfulltrúi hjá KFUM og
KFUK.
Sumarbúðir KFUM og KFUK eru
fimm talsins, Vatnaskógur, Vind-
áshlíð, Kaldársel, Ölver og Hóla-
vatn. Að auki býður félagið upp
á leikjanámskeið í Kópavogi og í
Reykjanesbæ þar sem krakkarnir
geta komið að morgni og farið heim
síðdegis. Nú þegar hafa tæplega tvö
þúsund börn verið skráð fyrir sum-
arið en búast má við að um þúsund
börn bætist í þann hóp áður en fjör-
ið byrjar í júní.
Saga sumarbúða KFUM og
KFUK er tæplega hundrað ára og
það er því næsta öruggt að starfið
byggir á mikilli reynslu, „en mark-
miðið er alltaf það sama, að efla
þroska einstaklingsins til líkama,
sálar og anda,“ segir Jóhann.
Allar frekari upplýsingar um
sumartilboð KFUM og KFUK má fá
í síma 588-8899 og á heimasíðu fé-
lagsins kfum.is. n
Einu sumarbúðirnar sem eru í þjóðgarði
Sumarbúðir KFUM, Vatnaskógur, Vindáshlíð, Ölver, Hólavatn og Kaldársel