Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Blaðsíða 24
Helgarblað 20.–23. maí 201620 Fólk Viðtal » Loftsíur » Smurolíusíur » Eldsneytissíur » Kælivatnssíur » Glussasíur Baldwin® hefur sérhæft sig í smur-, loft- og hráolíusíum. Við bjóðum upp á Baldwin® síur í flestar gerðir þungavinnu- og sjóvéla á hagstæðum verðum. Verkstæði og viðgerðarþjónusta Aðalsmerki Bætis er verkstæðið og viðgerðarþjónustan. Á verkstæði okkar erum við með öll tæki til endurbyggingar á allt að 1750 hestafla vélum. Túrbínur Bætir ehf. býður upp á viðgerðarþjónustu fyrir flestar gerðir túrbína. Sími 567-2050 - Smiðshöfði 7 - 110 Reykjavík V ið byrjum á að tala aðeins um sjónvarpið. Aðdáendur Hulla-þáttanna eru margir og mismunandi. Kannski var þetta líka í fyrsta sinn sem íslensk fullorðinsteiknimynda- sería sló í gegn. „Sigurjón Kjartans- son hafði einhverra hluta vegna trú á mér og kallaði mig á fund fyrir nokkrum árum til að ræða hugmynd- ir um teiknaða sjónvarpsþætti. Ég átti að koma með hugmynd, og mætti til hans með tvær. Önnur var alvöruhug- myndin, en hin var ömurleg aukahug- mynd. Það á maður víst alltaf að gera á svona fundum til að auka líkur á að góða hugmyndin verði framkvæmd. Slæma hugmyndin er blekking, en fær framleiðandann til að finna að hann stjórni einhverju.“ Aðalhugmynd Hulla voru þættir sem fjölluðu um tölustafi í Talnalandi. Sem sagt í stíl við bækur Bergljótar Arnalds?, spyr ég. „Já eiginlega. Þetta var mjög skrít- in hugmynd um tölurnar núll og einn sem eru vinir og lenda í vandræð- um því þeir eru alltaf að gera ein- hverja slæma hluti. Aukahugmyndin var síðan um einhvern Hulla í mið- bæ Reykjavíkur, og mér datt aldrei í hug að Sigurjón myndi verða hrifinn af henni. En það var hann og áður en ég vissi var ég búinn að skrifa seríu eitt með vinum mínum og hún orðin að veruleika. Sigurjón féll sem sagt ekki fyrir þessari blekkingu.“ Teiknimyndapersónan Hulli, og vinir hans, sló í gegn hjá þjóðinni, og svartur húmorinn féll í kramið. „Það var ekki fyrr en fyrsti þátturinn birt- ist á skjánum að ég sá að þetta virkaði sem teiknimynd.“ En skildi fólk húmorinn, hvort sem það horfði á Hulla á Lindargötu eða í Lindahverfi? „Já, ég held að Hulli hafi geng- ið vel í fólk, óháð bakgrunni og bú- setu. Annars getur maður ekki ann- að en bara skrifað það sem manni finnst sjálfum fyndið. Ef maður reyn- ir að þóknast neytandanum dettur maður strax niður í meðalmennsku. Hugleikur Dagsson situr á Kexinu og vinnur í Macbook-tölvunni sinni. Hann er mjög hipsteralegur, í gallabuxum, svörtum jakka með pönkaramerki í barminum og vitaskuld svörtu gleraugun á nefinu. Ragnheiður Eiríksdóttir geng- ur í salinn með sína Macbook-tölvu, og sín svörtu hipsteragleraugu, og spyr hvað hann sé að bedrífa. „Ég er bara að vinna í dóti fyrir seríu tvö af Hulla sem verður í sjónvarpinu í september.“ Svartur húmor Hugleikur segir grín sitt vera umhugsunar- lausa kaldhæðni. Mynd Sigtryggur Ari„Ef Davíð yrði kos- inn, yrði það eins og þegar Lannister-ætt- in tók við járnhásætinu í Game of Thrones. „Maður á að gera grín að öllum“ ragnheiður Eiríksdóttir ragga@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.