Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Blaðsíða 20
Helgarblað 20.–23. maí 20162 Sumarbúðir og námskeið - Kynningarblað U ndanfarin ár hefur ferða- skrifstofan Mundo haslað sér völl með innihalds- ríkum ferðum þar sem menntun, skemmtun, menning og þjálfun eru í fyrir- rúmi. Óhætt er að fullyrða að flagg- skip Mundo séu sumarbúðirnar sem haldnar eru jafnt á Spáni sem í Reykjavík. Ef þú ert ungmenni á aldrinum 14 til 18 ára þá býðst þér annars vegar að taka þátt í sumar- búðum í Reykjavík eða í Aranda á Spáni þar sem þú lærir spænsku, lendir í ævintýrum og kynnist fullt af kátum og skemmtilegum krökk- um. Sumarbúðirnar í Reykjavík eru ókeypis en hinar eru það ekki. Sumarbúðir Mundo í Aranda á Spáni Alþjóðleg reynsla og færni skiptir höfuðmáli fyrir komandi kynslóð- ir því börnin okkar verða að kunna tungumál svo vel að þau nýtist þeim í starfi. Foreldrum reynist sér- lega auðvelt að gefa börnum rætur en málið vandast þegar kemur að því að ljá þeim vængi. Þá sjáum við allar þær hættur sem steðja að eft- irlitslausum unglingum í útlönd- um og veljum frekar að halda þeim heima. Mundo hannaði sumarbúð- irnar á Spáni með það fyrir augum að þar sé í boði allt sem ungling- um þykir skemmtilegt en að fyllsta öryggis sé gætt. Krakkarnir læra spænsku, fara á leiðtoganámskeið og lenda svo í alls kyns ævintýr- um sem innihalda skoðunarferð- ir, strandferðir, sundlaugarferð- ir, íþróttir og annað skemmtilegt. Sumarbúðirnar eru haldnar í Aranda dagana 10.–31. júlí og Zafra í júní. Uppselt er til Zafra en enn eru nokkur sæti laus til Aranda. Mundo vinnur í þessum bæjum í gegnum persónuleg sambönd sem tryggja að ungmennin fara inn á góð heimili. Þannig myndi 15 ára stelpa dvelja á heimili þar sem er 14–16 ára stelpa. Spænska stúlk- an tekur fullan þátt í dagskránni í sumarbúðunum en er á ensku- námskeiði á sama tíma og íslenska stelpan er á spænskunámskeiði. Nánari upplýsingar um sumarbúð- irnar má lesa á heimasíðu Mundo, http://mundo.is/sumarbud ir-a- spani/. Sumarbúðir Mundo í Reykjavík Mundo er í samvinnu við skóla í Madríd sem sendir hingað 26 ung- menni dagana 28. júní til 20. júlí. Þessa dagana leitum við að fjöl- skyldum á höfuðborgarsvæðinu sem vilja taka þátt í verkefninu með okkur. Sumarbúðirnar byggja á sambandi við fósturfjölskyldurn- ar þar sem báðir aðilar hagnast. Dæmi: Ef það er 15 ára strákur í fjöl- skyldunni þá hýsir fjölskyldan 14– 16 ára spænskan strák og hugsar um hann sem sitt eigið barn í þrjár vikur. Í staðinn býðst unglingnum í fjölskyldunni að sækja spænsku- námskeið og taka þátt í afar fjöl- breyttri dagskrá með hópnum allan tímann. Farið verður í vettvangs- ferðir, alls konar útidagskrá, eina útilegu, o.fl. Þetta er ævintýri! Mundo sér um unglingana frá 9–17 en fjölskyldan eftir það og um helgar. Unglingurinn kynnist 25 nýjum íslenskum krökkum á sama aldri og 26 spænskum. Frábært tækifæri fyrir unglinga til að víkka sjóndeildarhringinn og hafa gam- an af í leiðinni. Ekki hika við að hafa sam- band við okkur: margret@mundo. is og birna@mundo.is, ef þú hefur áhuga á að senda unglinginn þinn út eða taka Spánverja inn á heimil- ið í sumar. n Alþjóðleg menntun ungmenna – spænskunám, leiðtoganámskeið, ævintýri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.