Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Blaðsíða 16
Helgarblað 20.–23. maí 201616 Fréttir Thealoz inniheldur trehalósa sem er náttúrulegt efni sem finnst í mörgum jurtum og dýrum sem lifa í mjög þurru umhverfi. Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna hornhimnunnar gegn þurrki. Droparnir eru án rotvarnarefna og má nota með linsum. Þurrkur í augum? Thealoz augndropar Fæst í öllum helstu apótekum. Ég hef verið að glíma við augnþurrk. Ég nota Thealoz gervitár af því mér finnst þau smyrja augun vel, þau eru með langvarandi virkni, unnin úr náttúrulegum efnum og þau eru laus við öll aukaefni sem mér þykir kostur. Heiðdís Björk Helgadóttir K astljós vísar því á bug að lít- ill áhugi hafi verið fyrir því að fá hlið Júlíusar Vífils Ingvars- sonar, fyrrverandi borgarfull- trúa Sjálfstæðisflokks, þegar fjallað var um eftirlaunasjóð foreldra hans í Kastljósinu á miðvikudagskvöld. Júl- íus Vífill sagði við Morgunblaðið eftir þáttinn að hann hefði í samtölum við blaðamenn Kastljóss leiðrétt margt af því sem þar myndi koma fram. „En það var bersýnilega lítill áhugi fyrir því að fá nema eina bjagaða hlið á málinu.“ Þessu hafnar Kastljós á Facebook. „Kastljós hefur margítrekað reynt að fá svör og viðbrögð Júlíusar Vífils við því sem til umfjöllunar var í þætti gærkvöldsins. Það hefur verið gert í símtölum og með tölvupósti. Júlíusi voru sendar ítarlegar spurningar í kjölfar símtals hans og fréttamanns. Þar voru borin undir hann efnisat- riði umfjöllunar Kastljóss í öllum meginatriðum, greint frá þeim gögn- um sem Kastljós hafði aflað, borin undir hann frásögn systkina hans og óskað viðbragða. Þrátt fyrir ítrekanir í tölvupósti og mörg símtöl, neitaði hann að svara nokkru af þeim spurn- ingum eða bregðast við þeim efnis- atriðum sem undir hann voru bor- in.“ Kastljós segir að Júlíus hafi þvert á fullyrðingar sínar kosið að svara engum spurningum. Kastljós birti svo afrit af tölvupósti sem sendur var til Júlíusar á mánudag. Þar eru bornar upp margar spurningar og Júlíusi gefinn tæpur sólarhringur til að svara þeim. Fram kemur að hann hafi engum svarað. n Stórmeistarar etja kappi í Kópavogi Hjörvar Steinn mætir goðsögninni Nigel Short í sex skáka einvígi um helgina H elgina 21.–22. maí mæt- ast stórmeistararnir Hjörv- ar Steinn Grétarsson og Nigel Short í einvígi sem Skákfélagið Hrókurinn skipuleggur í samstarfi við Mót-X. Einvígið fer fram í Salnum í Kópa- vogi og fá keppendur aðeins 25 mín- útna umhugsunartíma á hverja skák, sem býður upp á miklar sviptingar, klukkubarning og spennu. Alls tefla meistararnir sex skákir, fyrst þrjár á laugardaginn og síðan seinni þrjár á sunnudaginn. Umdeilt undrabarn Nigel Short er einn þekktasti stór- meistari heims. Hann var undra- barn í skák sem vakti mikla athygli í Bretlandi á sínum tíma og síðar varð hann yngsti alþjóðlegi meistari sögunnar, aðeins fjórtán ára gamall. Stórmeistari varð hann 19 ára gamall og í kjölfarið skipaði hann sér í flokk bestu skákmanna heims. Hápunkt- inum var náð árið 1993 þegar hann vann sér rétt til þess að skora á sjálf- an Garry Kasparov um heimsmeist- aratitilinn í skák, þar sem hann þurfti að lúta í gras. Short lifir athyglisverðu lífi og er afar umdeildur meðal skákmanna þar sem hispurslaus skrif hans um skák og skákmenn hafa hneykslað kollega hans og reitt suma til reiði. Short skilgreindi sjálfan sig sem ólífubónda í Grikklandi einu sinni en þar hefur hann haldið heim- ili ásamt þarlendri eiginkonu sinni. Hann er þó sífellt á faraldsfæti og hefur sett sér það markmið að ferð- ast til allra landa á jarðarkringlunni. Þá hefur hann staðið uppi sem sig- urvegari á fjórða tug skákmóta í sex heimsálfum en hann hefur leit- að logandi ljósi að tækifæri til þess að tefla á skákmóti sem skipulagt er á Suðurskautslandinu. Það gæti ræst fyrr en seinna. Þá ber að geta þess að í lokahófi einvígisins, sem fram fer á skemmistaðnum Húrra á sunnudagskvöldið, mun Short síð- an stíga á svið sem söngvari í skák- rokkbandinu b4 ásamt vel völdum íslenskum tónlistarmönnum. Það verður eflaust athyglisverð stund! Stórmeistari tuttugu ára Hjörvar Steinn Grétarsson er eitt mesta efni sem komið hefur fram hérlendis en hann fæddist sama ár og Short glímdi við Kasparov um heimsmeistaratitilinn. Hjörv- ar Steinn skaraði fram úr jafnöldr- um sínum frá fyrstu tíð og erfitt er að halda tölu á öllum þeim Reykjavík- ur-, Íslands- og Norðurlandameist- aratitlum sem hann hefur sankað að sér í gegnum árin. Að- eins tvítugur að aldri var hann útnefndur stórmeistari í skák og er núna næststigahæsti skákmaður landsins með 2.580 stig. „Það er mikill feng- ur að heimsókn Shorts og mjög spennandi að sjá glímu hans við Hjörvar Stein. Short er einhver litríkasti og frumlegasti skákmað- ur heims og hefur ver- ið í sviðsljósinu frá því hann var barn. Hann teflir afar skemmtilega og því mega áhorfendur á MótX- einvíginu búast við fjöri og svipt- ingum. Einvígið fer fram við bestu hugsanlegu aðstæður í Salnum í Kópavogi og ég hvet áhugamenn á öllum aldri til að koma og fylgjast með veislunni. Það er ókeypis inn og við bjóðum unga skákáhuga- menn sérstaklega velkomna,“ segir Hrafn Jökulsson, forseti skákfélags- ins Hróksins. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Hjörvar Steinn Grétarsson Stórmeistarinn ungi fær verðuga áskorun um helgina. Nigel Short Stórmeistarinn breski þótti á sínum tíma undrabarn í skák. Einvígi í Kópavogi Listamaðurinn Halldór Baldursson teiknaði þessa mynd af köppunum í tilefni einvígisins. Miklar skemmdir í eldsvoða Eldur kom upp í bifreiðaverk- stæði við Fjölnisgötu á Akureyri skömmu eftir miðnætti aðfara- nótt fimmtudags. Verkstæðið er í einu bili í stóru húsnæði. Mikill eldur var í húsinu. Eldur- inn breiddist hratt út og barst í þrjú bil til viðbótar. Einn maður var við vinnu á verkstæðinu og komst hann út af sjálfsdáðum og lét slökkvilið vita. Að sögn Vig- fúsar Bjarkasonar, varðstjóra hjá slökkviliðinu á Akureyri, urðu miklar skemmdir á húsinu. Elds- upptök eru ókunn en rannsókn er í höndum lögreglu. Birta tölvupóst til Júlíusar Kastljós hafnar orðum Júlíusar Vífils Helgi Seljan Vann umfjöllunina í Kastljósi í gærkvöldi. MyNd ÁSGEir M. EiNarSSoN Júlíus Vífill ingvarsson Fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins. MyNd SiGtryGGUr ari Hugarafl í alþjóðlegu samstarfi Á dögunum fengu samtökin Hugarafl fulltrúa rúmensku sam- takanna Minte Forte í heimsókn. Fundað var um starf og hug- myndir og í ljós kom að þrátt fyrir fjarlægð í landfræðilegum skiln- ingi deila samtökin hugsjónum og hugmyndafræði. Bæði samtökin vinna að vald- eflingu þeirra sem hafa þurft að nýta sér geðheilbrigðisþjón- ustu og starf fer fram á jafningja- grunni. Í kjölfar heimsóknarinn- ar var sótt um Erasmus+ styrk til að hefja vinnu við mótun náms- efnis fyrir þá sem starfa með ungu fólki á aldrinum 14–18 ára. Fjögur Evrópulönd munu vinna saman að verkefninu, auk Íslands og Rúmeníu eru það Spánn og Portúgal. Verði umsóknin sam- þykkt hefst verkefnið í haust og mun standa í tvö ár.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.