Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Blaðsíða 30
Helgarblað 20.–23. maí 201626 Menning Eyravegi 23, Selfossi - S: 555 1314 - ha@hannyrdabudin.is Póst-sendum um allt land Allt til hanny rða160 garnt egundir Fágaðri útgáFa aF ÖlstoFugæja Bryan Ferry heillar í Hörpu s tundum finnst manni sem Bryan Ferry standi í námunda við þá stóru. En staðreyndin er sú að hann er heldur seinheppinn. Með hljómsveitinni Roxy Music var hann einn af frumkvöðlum glamrokksins, en David Bowie tók fljótlega fram úr og varð framsæknasta rokkstjarna áttunda áratugarins og stærri popp- stjarna á þeim níunda líka. Bowie hafði auk þess af honum fyrirsætuna Amanda Lear, sem birt- ist með svartan jagúar framan á For Your Pleasure-plötunni, og á end- anum samstarfsmanninn Brian Eno líka. Meðspilarinn Eno samdi Windows-stefið og framleiddi U2, á meðan Mick Jagger stakk af með annarri kærustu Ferrys, Jerry Hall. Loks gerði Bryan Ferry á hátindi fer- ilsins þau skelfilegu mistök að láta taka mynd af sér í suður-amerískum kúrekabúningi. „How Gauche Can a Gaucho Get?“ skrifaði tónlistarblaðið NME og næstu fimm árin eða svo tók enginn hann alvarlega í Bretlandi. Ferry tókst þó einu sinni að ná í fyrsta sætið í heimalandinu, en það var eina smáskífulagið sem hann samdi ekki. Það var útgáfa af Lennon-laginu „Jealous Guy“ sem rauk upp vinsældalistana á sam- úðaratkvæðum rétt rúmum mánuði eftir að Lennon var skotinn. Það lag fékk að sjálfsögðu að óma í Hörpu á mánudagskvöld, eins og öll kvöld þegar Ferry á í hlut. Þræll ástarinnar Tónleikarnir hófust á titillagi nýju plötunnar „Avonmore“ en fóru fyrst almennilega af stað með tvennunni „Slave to Love“ og „Don‘t Stop the Dance“. Hér er strax splæst í vinsæl- ustu lögin, en dampi er haldið með hinu ágæta en illa titlaða „Oh Yeah“. Þetta er Ferry eins og við þekkjum hann, sem segir konunni að betra sé að sitja áfram í bílnum eða fara í bíó, þræll ástarinnar sem bíður hennar á venjulega staðnum, talsvert fágaðri útgáfa af Ölstofugæja. Svo kemur lag af plötunni Dylanesque, þó ekki sé ljóst að Bryan Ferry að syngja Bob Dylan sé endilega það sem heimurinn þarfn- ast. Óli Palli spurði hann um daginn hvort hann hefði hitt Dylan, Ferry sagði nei, en hefði þó séð hann á tónleikum. Kannski eins gott að hann hafi aldrei kynnt Dylan fyrir kærustunni. Flestir Ferry-tónleikar eru öðr- um líkir. Hann segir ekki mikið við áhorfendur en gott ef hann er ekki frekar kynþokkafullur á gömlu spóa- leggjunum, ekki síst þegar hann situr við hljómborðið. Í þetta sinn fá bak- raddasöngvararnir ekki að skyggja á hann, ólíkt því sem gerðist þegar McDonalds-systurnar voru með í för og þessir virðast einmitt ráðn- ir til að gera það ekki. Þó yfirgefur hann sviðið um stund á meðan hinn þokkafulli saxófónleikari Jorja Chal- mers tekur yfir í löngum instrúm- ental kafla. Refaveiðimaður í bobba Þegar Ferry snýr svo aftur raðar hann út slögurunum og salurinn er á fót- um þar eftir, en íslenskir áhorfend- ur hafa verið upp á sitt besta síðan þeir uxu upp úr sveitaballsstemn- ingunni. Sérstaklega eftirminnilegt er lagið „If There Is Something“, sem sjálfur Bowie flutti á einni af sínum síðri plötum. Breska popppressan hefur sér- staklega gaman af að níða Ferry, verkamannasoninn sem þykist vera yfirstéttarmaður, og ekki skán- aði það þegar sonur hans var hand- tekinn fyrir að mótmæla til stuðn- ings refaveiðimönnum. En það er óþarft að gera grín, kvöldstund með Bryan Ferry er tíma vel var- ið og ég játa að ég fékk gæsahúð minnst einu sinni. n Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Tónlist Bryan Ferry Tónleikar í Eldborg 16. maí 2016 Kynþokkafullur á spóaleggjum Bryan Ferry lék á als oddi á tónleikum í Hörpu á mánu- dagskvöld. „stundum finnst manni sem Bryan Ferry standi í námunda við þá stóru. En stað- reyndin er sú að hann er heldur seinheppinn. tinna vann í Cannes Netverjar völdu bestu stuttmyndahugmyndina K vikmyndagerðarkonan og leikkonan Tinna Hrafnsdótt- ir sigraði pitch-keppni Shorts TV í Cannes á fimmtudag með stuttmynd sína, Katharsis. Í keppn- inni geta aðstandendur stuttmynda lagt fram hugmyndir sínar og svo kýs almenningur um bestu hugmyndina á netinu. Verðlaunaféð er fimm þús- und evrur eða tæpar 700 þúsund krónur. Katharsis fjallar um smábæjar- prestinn Guðmundu, sem hefur allt frá því að hún dansaði vangadans á unglingsaldri við pilt í sókninni, elskað hann í laumi. Hún óttast þó að gera eitthvað í málinu, þar til hún rekst loks á hann á karókí-bar og dansar við sama lagið. Eins og kvikmyndavefurinn Klapptre.is greinir frá hefur hátíð- in verið haldin þrisvar og í öll þrjú skiptin hafa íslenskar konur hlotið verðlaunin. Árið 2014 var það Eva Sigurðardóttir og 2015 var það Anna Sæunn Ólafsdóttir. n kristjan@dv.is Fær 5.000 evrur Tinna Hrafnsdóttir fagnar sigrinum í Cannes á fimmtudag. Metsölulisti Eymundsson 11.–18. maí 2016 Allar bækur 1 KakkalakkarnirJo Nesbø 2 Dalalíf IGuðrún Árnadóttir frá Lundi 3 Þjóðaplágan Íslam Hege Storhaug 4 Hugrekki saga af kvíða Hildur Eir Bolladóttir 5 Dalalíf IIGuðrún Árnadóttir frá Lundi 6 Iceland In a BagÝmsir höfundar 7 30 Uppgötvanir sem breyttu sögunni Kolbeinn Óttarsson Proppé 8 Gæfuspor - Gildin í lífinu Gunnar Hersveinn 9 VélmennaárásinÆvar Þór Benediktsson 10 Skúli skelfir og bölv-un mannætunnar Francesca Simon Jo Nesbø

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.