Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Blaðsíða 9
Helgarblað 20.–23. maí 2016 Fréttir 9 Vafasamir leyndardómar miklum sannfæringarkrafti og virtist eiga auðvelt með að ná til þeirra sem áttu, af einhverjum ástæðum, undir högg að sækja,“ segir Haraldur. Tilraun til þjálfunar lífvarða Í greininni er einnig minnst á áætl- un Guðna um að halda lífvarðanám- skeið hérlendis sem vakti verulega athygli á sínum tíma. Námskeiðið var rándýrt og ætlaði Guðni að kenna mörg athyglisverð námskeið sjálfur, meðal annars glæfraakstur, meðferð sprengiefna og meðferð skotvopna. Sagð- ist hann ætla að byggja á eigin reynslu en í útvarps- viðtali við Guðna í tilefni af námskeiðinu kom fram að hann hafði starfað um fjögurra ára skeið sem líf- vörður í Svíþjóð. Hann vildi hins vegar ekki veita fjölmiðlum upplýsingar um hjá hverjum hann hafði starfað né hvar. Sig- urður Már grennslað- ist fyrir um þennan feril og komst að orði: „Þeir sem gleggst þekkja feril Guðna í Svíþjóð segja að þetta sé bull.“ Eftirgrennslan Sig- urðar leiddi í ljós að Guðni rak í stuttan tíma æfingastöð með Peter Olming og er haft eftir Peter að Guðni hafi log- ið hann fullan með sög- um um að hann hefði unnið sem lífvörður á Íslandi og rekið líf- varðaskóla þar. „Það er mín reynsla að ekki sé hægt að trúa orði af því sem hann segir,“ sagði Pet- er þessi við Pressuna en klykkt var út með að einu afskipti Guðna af „líf- varðarstörfum“, eftir því sem best var vitað, var að hann fór í viðtal vegna öryggisgæslu hjá Saab-verksmiðjun- um. Guðni varð að lokum að hætta við lífvarðanámskeiðið sitt og bar fyrir sig aðstöðu- og tímaleysi. Þessi draumur Guðna um frama í þjálfun lífvarða virðist hins vegar ekki hafa dáið út því í ágúst 2001 virðist hann hafa stofnað fyrirtækið The Edge Body Guard and SWAT services í Utah en engum sögum fer af starf- semi fyrirtækisins. „Ég er að gera rétt“ Í ljósi neikvæðrar umfjöllunar fór svo að Guðni skrifaði innblásna grein í Morgunblaðið, þann 18. jan- úar 1994, undir yfirskriftinni „Ég er að gera rétt“ þar sem hann í stuttu máli hafnaði öllum ásökunum og sagði að um samsæri íslenskra bar- dagalistamanna væri að ræða sem vildu halda einokun sinni á kennslu hérlendis. „Að lokum vil ég segja að samstaða bardagalistamanna á Ís- landi er fyrir neðan allar hellur. Sam- stöðuleysi stafar af öfund og þröng- sýni og hræðslu við samkeppni eða kannski hræðslu við að þessi litli heimur þeirra verður sprengdur upp af einhverju nýju og skemmti- legu, einhverju sem bardaga- listaaðilar á Íslandi hafa áhuga á,” skrifaði Guðni. Fræði byggð á 3.000 ára grunni Ári síðar flutti Guðni af landi brott, nánar tiltekið til Utah í Bandaríkjunum. Á þessum árum skildi hann við sænska eiginkonu sína en í vesturheimi kynntist hann annarri eigin- konu sinni, Eleanor „Laurie” Gudnason, sem var farsæl í við- skiptum og á kafi í margs kon- ar nýaldarfræðum. Þau stofn- uðu saman „Leyndardómaskóla Klettafjalla” sem er slæm þýð- ing á Rocky Mountain My- stery School. Í skólanum var boðið upp á ótrúlegan fjölda af mismunandi námskeiðum, gyðinga- og kristið kabbalah, must- erisriddaranámskeið, áruheilun, tantra-fræði, tarot-lestur auk þess sem nefna má námskeið í dreka-, vampíru-, víkinga- og egyptagaldri. Ekki má gleyma dýragaldri né held- ur námskeiðinu „12 kynþættir“ en þar er hægt að fræðast um þá tólf kynþætti sem fyrirfinnast á jörðinni. Fyrir utan mannfólkið þá eru það vampírur, álfar, hafmeyjur og sígaunar svo eitthvað sé nefnt. Í rauninni má segja að varla sé til sá angi af nýaldar- eða dulspekifræð- um sem skóli Guðna og Laurie hafi ekki snert á með einhverjum hætti. Námskeiðin voru yfirleittt kennd af Guðna sjálfum eða Laurie og saman ferðuðust þau síðan um öll Banda- ríkin og út fyrir landsteinana til þess að boða fagnaðarerindið. Skólinn stærir sig af því að vera eini skóli sinnar tegundar sem miðli þekkingu sem er komin beint frá Sólomon konungi og sé allt að þrjú þúsund ára gömul. Þá er því meðal annars haldið fram að sjálfur Jesús Kristur hafi verið handhafi „þekkingarinn- ar“. Hún hafi síðan ferðast manna á milli í töluðu máli allt þar til að þá- verandi handhafi þekkingarinnar, óskilgreindur amerískur indjána- höfðingi, hafi hitt Guðna á tiltekn- um stað þar sem þeir föðmuðust og þar með hafði Guðni öðlast hina dýr- mætu „þekkingu“. Þessa sögu seg- ir Sondra Shanye, fyrrverandi ein- lægur fylgismaður Guðna, í samtali við New York Press árið 2001. Einnig sagði hún þá sögu, sem Guðni sjálf- ur vísar óspart í, að hann hafi fæðst sem tvíburi og að bróðir hans hafi verið svo háþróuð vera að hann hafi yfirgefið þennan heim eftir aðeins 30 mínútur. Það hafi gert það að verkum að Guðni hafi fengið hæfileikann til þess að sjá inn í aðrar víddir, handan þess heims sem við þekkjum. Þannig hafi Guðni getað verið í sambandi við bróður sinn, alist upp með hon- um auk þess sem bróðir hans hafi komið honum í samband við fjöl- marga látna meistara, meðal annars sjálfan Merlín, sem gátu kennt hon- um eitt og annað. Shanye hefur sagt skilið við Guðna og hans fylgismenn síðan og hún svaraði ekki fyrirspurn DV um viðtal. Lygilegt ævihlaup Á gamalli heimasíðu Rocky Mount ain Mystery School má lesa sögu Guðna. Hún er reyfarakennd í meira lagi og í líkingu við þær sögur af Guðna sem sagðar hafa verið. Ef satt er þá hef- ur Guðni ekki setið auðum höndum í gegnum árin en fullyrðingar hans passa illa við þau ár sem hann dvaldi í Svíþjóð og Íslandi. Í nærmyndinni af Guðna kemur fram að hann hafi kennt Kabbalah síðan 1976, þá átján ára gamall, eftir að hafa verið und- ir handleiðslu ísraelsks rabbía en síðar hafi hann numið í fjölmörg ár hjá Reglu hinnar gullnu dögun- ar (e. Order of the Golden Dawn). Þá segist hann vera vígður prestur í fjölmörgum trúarbrögðum, meðal annars sé hann prestur egypsku gyðj- unnar Isis og drúídaprestur. Í kynn- ingunni segist Guðni einnig státa af doktorsgráðu í heimspeki sem og há- skólagráðu í sálfræði. Hann hafi verið útnefndur listamaður ársins í Svíþjóð sem og ljóðskáld ársins og viðskipta- maður ársins. Þá hafi hann fengið al- þjóðleg friðarverðlaun fyrir starf sitt í þágu mannkyns frá United Cultural World Society. Einnig sé hann fjór- faldur Evrópumeistari í karate auk þess hann telur upp þær fjölmörgu gráður og belti sem hann státar af í úrvali bardagaíþrótta. Þess má geta að DV hafði sam- band við Reglu hinnar gullnu dögun- ar í gegnum tölvupóst og var n Guðni Guðnason rekur alþjóðlegan galdraskóla n Skáldar gráður og viðurkenningar n Segir kvikmynd með David Hasselhoff í farvatninu n Gumar af vináttu við Bowie „Hann bjó hins vegar yfir miklum sannfær- ingarkrafti og virt- ist eiga auðvelt með að ná til þeirra sem áttu, af einhverjum ástæðum, undir högg að sækja. Heilaraskóli Á dögunum lauk fimm daga heilaranámskeiði fyrir einstaklinga sem þrá að starfa við heilun. Reikna má með að hver og einn þátttakandi hafi greitt að lágmarki um 250.000 fyrir námskeiðið auk þess sem nemendur hafa fjárfest í fjöl- mörgum námskeiðum fram að þessu. Guðni situr fyrir miðju hópsins. Pressan Blaðið var ekkert að skafa af hlutunum í umfjöllun sinni um Guðna. 515 7900 | alskil@alskil.is | alskil.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.