Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Blaðsíða 38
Helgarblað 20.–23. maí 201634 Fólk Endalaust hægt að hugsa „ef“ Sælkeramatur fyrir upptekið fólk L æknirinn Martina Nardini og hagfræðingurinn Rakel Eva Sævarsdóttir reka ásamt eigin- mönnum sínum veitingastað- inn Borðið sem opnaði ný- lega við Ægisíðu. Vinkonurnar ventu kvæði sínu í kross fyrir tæpu ári síð- an, hættu í fyrri störfum og pæla nú í sætabrauði og sælkeraréttum allan liðlangan daginn. Veitingastaðurinn Borðið var opnaður fyrir rúmum mánuði og var staðnum ætlað að mæta eigin þörf- um Martinu og Rakelar Evu, það er, að elda hollan og góðan sælkeramat fyrir upptekið fólk sem hefur ekki tíma til að gera það sjálft. Úr varð að þær eru í dag ennþá uppteknari en áður og standa vaktina til þess að þjónusta annað upptekið fólk á úlfa- tímanum milli 16–20 alla virka daga. Segjast þær ánægðar með að hafa fylgt draumum sínum eftir. „Við höfðum verið saman í mat- arklúbbi en hittumst fyrir tilviljun á matarmarkaðinum Krás síðastliðið sumar. Þar byrjuðum við að ræða eldgamla hugmynd sem við höfð- um báðar gengið með í maganum. Við ákváðum innan um allan sæl- keramatinn á Krás að hittast ásamt eiginmönnum okkar og ræða þessa hugmynd af fullri alvöru. Við unnum svo í hugmyndavinnu næstu vikurn- ar en skömmu síðar vorum við búin að kaupa húsnæðið og þá varð ekki aftur snúið,“ segir Martina og eld- móðurinn leynir sér ekki. Hagfræðin nýttist Borðið er fjölskyldufyrirtæki þar sem þær stöllur ásamt eiginmönnum sín- um hafa unnið allt frá grunni. Þar er bæði verslun með sælkeramat- vöru og hægt að sækja sér hægeld- aðan kvöldverð á góðu verði. Martina og Rakel sjá ekki eftir þeim miklu breytingum sem þær gerðu á lífi sínu til þess að gera Borðið að veruleika. „Það er endalaust hægt að hugsa ef þetta og hitt og ég viðurkenni al- veg að nýlega hef ég hugsað hvað það gæti verið fínt að vinna bara hefð- bundna 9–5 vinnu þar sem ég get sinnt börnunum mínum áhyggjulaus eftir vinnu. En það varir bara í nokkr- ar sekúndur því það er svo gaman að gera og starfa við sitt eigið,“ segir Rakel Eva, sem nýlega lauk meistara- námi í nýsköpun og viðskiptaþróun við Háskóla Íslands en Martina stefnir á framhaldsnám í lýtalækningum. En skyldi fyrri reynsla þeirra og menntun hafa nýst við gerð Borðsins? „Já, hagfræðin hennar Rakelar hefur sannarlega nýst okkur,“ seg- ir Martina brosandi um leið og hún þvertekur fyrir að hún hafi mikið not- að læknisfræðina á Borðinu. Þar hafi sem betur fer ekki komið upp bráða- ofnæmi en hún hefur þó plástrað einn og séð um að sjúkrakassinn á staðnum sé óaðfinnanlegur. En Rakel gefur lítið fyrir það að hagfræðin hafi komið að miklum not- um. „Ég tók einn skitinn bókhaldskúrs árið 2000 og eitthvað, þannig að ég get ekki sagt að ég sé sleip í þeim efn- um. En auðvitað er öll reynsla góð og mér finnst til dæmis meistaranám- ið mitt hafa oft komið að góðum not- um.“ Uppeldið haft áhrif Martina nefnir líka að uppeldið hafi haft mikil áhrif á þær en hún ólst sjálf upp við veitingarekstur föður síns á veitingastaðnum Ítalíu við Laugaveg. „Nám okkar og reynsla hefur að sjálfsögðu nýst með margs konar hætti, eins og til dæmis að höndla það að vinna undir pressu og halda mörgum boltum á lofti. En mér finnst líka uppeldið hafa hjálpað mikið til. Heima hjá mér var stöðugt verið að hugsa um mat og sætabrauð allan daginn. Var það líka þannig hjá þér Rakel?“ spyr Martina vinkonu sína forvitin. „Já, ekki spurning og sér í lagi í seinni tíð, foreldrar mínir eru miklir áhugamenn um góðan mat og mat- argerð. Einnig hefur Friðrik, mað- urinn minn, og tengdaforeldrar haft mikil áhrif á mig enda er ég búin að vera hluti af þeirra fjölskyldu hálfa ævi mína,“ segir Rakel og hlær. Aðspurðar um samstarfið lofa þær hvor aðra og segja það hafa gengið næstum hnökralaust. „Fyrir vorum við ekkert alltaf saman og ég held að það sé gott. Við erum gamlir kunningjar úr MR og vorum saman í matarklúbbi en við vorum ekkert að hittast á hverjum degi. En fyrst og fremst snýst þetta um að vanda sig, vera alltaf hrein- skilinn og tala skýrt hvert við annað, sér í lagi þegar það er mikið álag og mikð stress,“ segir Rakel. Vinkonurnar eru augljóslega brattar saman og að loknu viðtali leggjast þær yfir fjórar nýjar upp- skriftabækur sem Rakel kom með að heiman. Nýjar bragðtegundir og nýir réttir eru því greinilega í farvatninu á heimilislega og fallega veitinga- staðnum þeirra, Borðinu við Ægisíðu 123. n „Nám okkar og reynsla hefur að sjálfsögðu nýst með margs konar hætti eins og til dæmis að höndla það að vinna undir pressu og halda mörgum bolt- um á lofti. Borðið Sælkeramatvara og hægeldaður kvöldmatur. Fylgdu draum- um sínum eftir Rakel Eva og Martina Nardini. Mynd SigtryggUr Ari Út fyrir kassann Kristín tómasdóttir skrifar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.