Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Qupperneq 38
Helgarblað 20.–23. maí 201634 Fólk
Endalaust hægt að hugsa „ef“
Sælkeramatur fyrir upptekið fólk
L
æknirinn Martina Nardini og
hagfræðingurinn Rakel Eva
Sævarsdóttir reka ásamt eigin-
mönnum sínum veitingastað-
inn Borðið sem opnaði ný-
lega við Ægisíðu. Vinkonurnar ventu
kvæði sínu í kross fyrir tæpu ári síð-
an, hættu í fyrri störfum og pæla nú
í sætabrauði og sælkeraréttum allan
liðlangan daginn.
Veitingastaðurinn Borðið var
opnaður fyrir rúmum mánuði og var
staðnum ætlað að mæta eigin þörf-
um Martinu og Rakelar Evu, það er,
að elda hollan og góðan sælkeramat
fyrir upptekið fólk sem hefur ekki
tíma til að gera það sjálft. Úr varð að
þær eru í dag ennþá uppteknari en
áður og standa vaktina til þess að
þjónusta annað upptekið fólk á úlfa-
tímanum milli 16–20 alla virka daga.
Segjast þær ánægðar með að hafa
fylgt draumum sínum eftir.
„Við höfðum verið saman í mat-
arklúbbi en hittumst fyrir tilviljun á
matarmarkaðinum Krás síðastliðið
sumar. Þar byrjuðum við að ræða
eldgamla hugmynd sem við höfð-
um báðar gengið með í maganum.
Við ákváðum innan um allan sæl-
keramatinn á Krás að hittast ásamt
eiginmönnum okkar og ræða þessa
hugmynd af fullri alvöru. Við unnum
svo í hugmyndavinnu næstu vikurn-
ar en skömmu síðar vorum við búin
að kaupa húsnæðið og þá varð ekki
aftur snúið,“ segir Martina og eld-
móðurinn leynir sér ekki.
Hagfræðin nýttist
Borðið er fjölskyldufyrirtæki þar sem
þær stöllur ásamt eiginmönnum sín-
um hafa unnið allt frá grunni. Þar
er bæði verslun með sælkeramat-
vöru og hægt að sækja sér hægeld-
aðan kvöldverð á góðu verði. Martina
og Rakel sjá ekki eftir þeim miklu
breytingum sem þær gerðu á lífi sínu
til þess að gera Borðið að veruleika.
„Það er endalaust hægt að hugsa
ef þetta og hitt og ég viðurkenni al-
veg að nýlega hef ég hugsað hvað það
gæti verið fínt að vinna bara hefð-
bundna 9–5 vinnu þar sem ég get
sinnt börnunum mínum áhyggjulaus
eftir vinnu. En það varir bara í nokkr-
ar sekúndur því það er svo gaman
að gera og starfa við sitt eigið,“ segir
Rakel Eva, sem nýlega lauk meistara-
námi í nýsköpun og viðskiptaþróun
við Háskóla Íslands en Martina stefnir
á framhaldsnám í lýtalækningum. En
skyldi fyrri reynsla þeirra og menntun
hafa nýst við gerð Borðsins?
„Já, hagfræðin hennar Rakelar
hefur sannarlega nýst okkur,“ seg-
ir Martina brosandi um leið og hún
þvertekur fyrir að hún hafi mikið not-
að læknisfræðina á Borðinu. Þar hafi
sem betur fer ekki komið upp bráða-
ofnæmi en hún hefur þó plástrað
einn og séð um að sjúkrakassinn á
staðnum sé óaðfinnanlegur.
En Rakel gefur lítið fyrir það að
hagfræðin hafi komið að miklum not-
um.
„Ég tók einn skitinn bókhaldskúrs
árið 2000 og eitthvað, þannig að ég
get ekki sagt að ég sé sleip í þeim efn-
um. En auðvitað er öll reynsla góð og
mér finnst til dæmis meistaranám-
ið mitt hafa oft komið að góðum not-
um.“
Uppeldið haft áhrif
Martina nefnir líka að uppeldið hafi
haft mikil áhrif á þær en hún ólst sjálf
upp við veitingarekstur föður síns á
veitingastaðnum Ítalíu við Laugaveg.
„Nám okkar og reynsla hefur að
sjálfsögðu nýst með margs konar
hætti, eins og til dæmis að höndla
það að vinna undir pressu og halda
mörgum boltum á lofti. En mér
finnst líka uppeldið hafa hjálpað
mikið til. Heima hjá mér var stöðugt
verið að hugsa um mat og sætabrauð
allan daginn. Var það líka þannig hjá
þér Rakel?“ spyr Martina vinkonu
sína forvitin.
„Já, ekki spurning og sér í lagi í
seinni tíð, foreldrar mínir eru miklir
áhugamenn um góðan mat og mat-
argerð. Einnig hefur Friðrik, mað-
urinn minn, og tengdaforeldrar haft
mikil áhrif á mig enda er ég búin að
vera hluti af þeirra fjölskyldu hálfa
ævi mína,“ segir Rakel og hlær.
Aðspurðar um samstarfið lofa
þær hvor aðra og segja það hafa
gengið næstum hnökralaust.
„Fyrir vorum við ekkert alltaf
saman og ég held að það sé gott. Við
erum gamlir kunningjar úr MR og
vorum saman í matarklúbbi en við
vorum ekkert að hittast á hverjum
degi. En fyrst og fremst snýst þetta
um að vanda sig, vera alltaf hrein-
skilinn og tala skýrt hvert við annað,
sér í lagi þegar það er mikið álag og
mikð stress,“ segir Rakel.
Vinkonurnar eru augljóslega
brattar saman og að loknu viðtali
leggjast þær yfir fjórar nýjar upp-
skriftabækur sem Rakel kom með að
heiman. Nýjar bragðtegundir og nýir
réttir eru því greinilega í farvatninu
á heimilislega og fallega veitinga-
staðnum þeirra, Borðinu við Ægisíðu
123. n
„Nám okkar og
reynsla hefur að
sjálfsögðu nýst með
margs konar hætti eins
og til dæmis að höndla
það að vinna undir pressu
og halda mörgum bolt-
um á lofti.
Borðið Sælkeramatvara og hægeldaður kvöldmatur.
Fylgdu draum-
um sínum
eftir Rakel Eva og
Martina Nardini.
Mynd SigtryggUr Ari
Út fyrir
kassann
Kristín tómasdóttir
skrifar