Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Blaðsíða 26
Helgarblað 20.–23. maí 201622 Fólk Viðtal
Mekka íssins
Erum í miðbæ
Hveragerðis
Ís í vél, 4 tegundir | Kúluís
Pinnaís | Krap | Bragðarefur
Ísfrappó | Sælgæti | Franskar
Samlokur | Gos | Snakk
Bland í poka | Pylsur | Kaffi
Opnunartími
mán-fim 10 - 21 / fös 10 - 22
lau 12 - 22 og sun 12 - 21 Breiðamörk 10, Hveragerði
Hugleikur útskýrir afstöðu sína að-
eins betur. „Ef Davíð yrði kosinn yrði
það eins og þegar Lannister-ættin tók
við járnhásætinu í Game of Thrones.
Maður hugsaði bara „ókei, vondi ræð-
ur núna“. Það yrði alla vega áhugavert
og eitthvað nýtt fyrir grínista. Ólafur
er frekar einhver af Baratheon-ætt-
inni. Stannis eða Renley eða einhver
sem maður gleymir jafn óðum, svona
miðjumoðspólitíkus sem maður veit
ekki alveg hvað stendur fyrir. Davíð
Lannister er svo miklu skýrari. Ef hann
verður forseti mun hann gera eitthvað
galið og segja eitthvað sturlað opin-
berlega. Það eru allar líkur á að hann
missi vitið í miðju embætti og því
mundi ég ekki endilega vilja missa af.
Hann yrði sannkallaður „mad king“.“
Hugleikur segist þó ekki munu
kjósa Davíð. „Skemmtilegast væri að
fá Andra í embættið. Hann hefur sama
krúttfaktor og Daenerys Targaryen.
Hann er svo mikið á móti óréttlæti upp
að því marki að það verður eiginlega
óraunsætt. Hann skrifaði útópíska
bók, Draumalandið, og er þess vegna
útópisti eins og ég. Sem útópisti ætti
ég að kjósa hann. Það er svo mik-
il uppgjöf í raunsæi. Ég hef samt eina
reglu þegar ég kýs. Að kjósa þann sem
ógnar íhaldinu mest og í þessu tilfelli
er það Guðni.“
Nú er blaðakonan alveg heilluð
af Game of Thrones-líkingum lista-
mannsins. Hvar skyldi Guðni eiga
heima í þeim heimi?
„Er hann ekki bara geldingurinn,
þessi sköllótti, Lord Varys, sem veit allt
og er búinn að fylgjast með valdinu í
langan tíma? Aðilinn á bak við tjöldin
sem skilur pólitíkina betur en þeir sem
hafa verið í henni með beinum hætti.“
En Elísabet Jökulsdóttir, hvar lendir
hún í þessu öllu?
„Hún er í besta falli wildlings-stelp-
an, Ygritte. Náttúrubarnið sem er alltaf
uppi á jökli. Ég fíla hana og mundi vilja
sjá hana í baráttunni. Hinar konurnar
hef ég ekki kynnt mér.“
Karlar fá hvatningu
Hvað er samt málið með þessa kynja-
skiptingu í kosningabaráttunni?
„Það gæti haft eitthvað að gera með
tímana sem við lifum á. Það er fullt
af frambærilegum konum sem gætu
boðið sig fram, en á sama tíma eru
bæði Davíð og Ólafur í baráttunni.
Þeir tala um að nú þurfi sterkan leið-
toga þessa síðustu og verstu tíma –
sem er asnalegt og leiðinlegt orðalag
– leiðtogi er svo hræðilegt og ljótt orð.
Og síðustu og verstu tímar hafa verið í
gangi síðustu 1.000 árin eða svo. Alveg
eins og í Game of Thrones, veturinn er
alltaf að koma. Þetta er hin fullkomna
pólitíska allegoría. Allir í valdastöðu
eru að reyna að stjórna öllum hin-
um, og reyna að öðlast fylgi með því
að minna stöðugt á að veturinn sé að
koma. Veturinn er þá efnahagurinn
eða múslimar eða hvað sem hægt er
að nota til að stjórna litla manninum
og ógna – nýta sér fáfræði almenn-
ings. Þess vegna held ég að svona
karlpungar haldi völdum. Þeir fá
miklu meiri hvatningu í samfélaginu
heldur en konur. Sama ástæða ligg-
ur að baki því að við sjáum ekki fleiri
konur í gríni. Þær fá ekki eins mikla
hvatningu til að gera grín. Eins og í
svo mörgu fá karlar meiri hvatningu
til að ota sínum tota og vera öðrum
körlum fyrirmyndir.“
Viðmælandi minn er frægur og
dáður karlmaður. Hvatti enginn
hann til að bjóða sig fram til forseta?
„Einu sinni gerði ég grín að þessu í
pistli. En maður eins og ég vinnur
ekki forsetakosningar. Það hljómar
ekki sem skemmtileg vinna að taka
í höndina á öðrum þjóðarleiðtogum
og eiga endalaus leiðinleg samtöl við
diplómata. Það hlýtur að vera versta
starf í heimi, en ég tek ofan af fyrir
þeim sem nenna því.
Annars finnst mér að forseti eigi að
vera klappstýra þjóðarinnar, einhver
sem allir fíla. Mér fannst leiðinlegt að
Linda P. skyldi ekki bjóða sig fram, því
hlutfallslega hlýtur flestum að þykja
vænt um hana. Allir muna eftir ein-
hverju þjóðarstolti þegar hún varð
Ungfrú heimur. Það var auðvitað áður
en fólk byrjaði að spá í að ráði hversu
fáránlegur hlutur fegurðarsamkeppn-
ir eru. Í hugum okkar tengist Linda
sameiningu og stolti. Ég er alls ekki
á því að forseti eigi að vera pólitíkus,
og eiginlega finnst mér ekki einu sinni
að pólitíkusar eigi að vera stjórnmála-
menn. Að vera góður í stjórnmálum
þýðir til að mynda að vera góður í að
svara ekki spurningum, og í því að
segja eitt og meina annað. Það er ekki
gott. Við þurfum að fá einhvern í for-
setastól sem getur farið til útlanda og
tekið í höndina á fólki án þess að líta
út eins og hálfviti á sama tíma, og helst
þarf viðkomandi að kunna eitthvað
smá í ensku.“
Líf einhleypingsins
Jæja, Hugleikur, vendum nú okkar
kvæði í kross og tölum um eitthvað
persónulegra. Ég hef séð þig á Tinder,
hvernig gengur þar?
„Ég segi nei við næstum allar stelp-
ur núna. Líklega vegna þess að ég er
miklu minna graður en þegar ég byrj-
aði á Tinder fyrir ári síðan. Nú er þetta
í besta falli til að stytta mér stundir á
klósettinu. Um daginn svaraði ég ekki
nógu hratt og einhver stelpa sagði að
ég væri ekki góður í Tinder. En væri
það eitthvað gott að vera góður í Tind-
er? Mér fyndist það bara krípí að vera
svoleiðis player. Það er miklu svalara
að vera lélegur á Tinder. Ég hef hitt
stelpur sem ég sá fyrst á Tinder. Það
var samt ekki beinlínis Tinder-deit því
ég hitti þær fyrir slysni á djamminu
eftir að ég sá þær þar. Þetta er kannski
kosturinn við Tinder á Íslandi, þú sérð
einhvern á appinu sem þú hittir svo
á djamminu. Eiginlega er það mjög
praktískt. Ég er á því að fólk eigi ekki
að taka Tinder alvarlega, heldur reyna
að takast sjálft á við þann ormapytt
sem líf einhleypings á Íslandi er, án
hjálpartækja.“
Hugleikur er barnlaus og hefur
verið einhleypur í eitt og hálft ár. Fram
að því segist hann hafa verið rað-kær-
asti. „Ég hef átt sjö kærustur, held ég,
og núna er ég bara að máta lífið án
þess að vera helmingur af kærustu-
pari. Mig dreymir ekki sérstaklega um
börn, en ef það gerðist væri það frá-
bært. Ég er heldur ekki að leita mér að
konu, en ef einhver bjánalega frábær
kona dettur í fangið á mér væri það
líka frábært eða hugsanlega hræðilegt.
Líklega hræðilegt.“
En frægðin, er hún ekki frábær fyr-
ir kvenhylli?
„Ég kann ekki að reyna við, svo mín
aðferð er að standa úti í horni og vera
frægur. Best finnst mér þegar konur
taka fyrsta skrefið. Oftast er ég reynd-
ar alveg grunlaus og ef ég er ekki viss
geri ég frekar ráð fyrir því að það sé
ekki verið að reyna við mig. Ég kann
að meta skýr skilaboð.“
Þarna erum við Hugleikur held-
ur betur sammála. Ég ákveð að spyrja
hann hvaða þrjú atriði honum þyki
mikilvægust í fari væntanlegrar kær-
ustu. Hann byrjar á að horfa upp í
loft, strjúka hökuna og hugsa sig um.
Svo segir hann „sko, hún á ekki ...“ hin
frakka blaðakona grípur fram í og bið-
ur hann í staðinn um að telja upp það
sem hún á að vera. Alheimurinn skil-
ur nefnilega ekki neikvæðar staðhæf-
ingar.
„Já, þú meinar það. Í fyrsta lagi
verður hún að hafa sjálfstæðan vilja.
Ekki reyna að þóknast mér. Einu sinni
bauð ég stelpu að koma með mér á
Star Wars-frumsýningu. Eftir langa
Facebook-þögn svaraði hún og sagð-
ist ekki þola Star Wars. Það fannst mér
mjög kynþokkafullt. Ekki að hún væri
antí-nörd, heldur að hún reyndi ekki
að þykjast til að þóknast mér. Það er
kúl. Í öðru lagi þarf mér að finnast hún
aðlaðandi, en það getur verið hvað
sem er sem gerir fólk aðlaðandi. Í
þriðja lagi þarf hún að vera fyndin eða
skemmtileg. Það skemmtilegasta sem
maður gerir er að hlæja. Það er betra
en kynlíf. Þetta líkamlega grunnvið-
bragð er algjör galdur. Ef maður getur
hlegið með manneskju, er það í raun
atriði númer eitt. Einhvern tíma var ég
spurður hvað ég vildi í konu og sagði
að hún ætti að vera sæt og skemmti-
leg. „Bíddu, af hverju ekki gáfuð?“ var
þá spurt á móti. En það er það sama,
að vera skemmtileg og gáfuð. Í minni
bók fer alls ekki saman að vera leiðin-
legur og gáfaður. Það er bara ekki
hægt.“
Höfnunin nauðsynleg
Hugleikur segist taka að sér of mörg
verkefni og fara of sjaldan í frí. Hann
tekur sér frí á 4–5 ára fresti og langar
að bæta úr því.
„Margir eru betri en ég í að skipu-
leggja lífið, eins og maður þarf að gera
til að komast í sumarfrí. Ég er nýbúinn
að ráða mér aðstoðarkonu sem er um-
boðskonan mín og sér um bókanir og
annað slíkt. Hún er búin að auðvelda
líf mitt um allavega 38 prósent. Ég er
um þessar mundir talsvert í veislum
og á árshátíðum með uppistand, svo
er ég með grínsýninguna Icetralia á
Rósenberg næstu fimmtudaga ásamt
ástralska grínistan-
um Jonathan Duffy, og mánaðarlega
á Húrra. Ég reyni líka að mæta á opnu
uppistandskvöldin á Gauknum til að
æfa mig. Það er nefnilega ekki hægt
að æfa uppistand heima hjá sér, eina
leiðin er að prófa sig áfram fyrir fram-
an áhorfendur.
Sjálft uppistandið er æfingin, því
brandarar þurfa að virka fyrir framan
hóp af fólki. Húmor er þannig að sam-
hengið stjórnar öllu um árangurinn.
Málið er ekki hvað þú segir, heldur
hvernig, hvenær, við hvern og í hvaða
samhengi. Þarna liggur líka skýringin
á því að sumir mega segja ákveðna
hluti en aðrir ekki. Það sem er sjúklega
fyndið hjá einum getur hljómað mjög
asnalega hjá öðrum. Ég hef líka séð
grínista sem mér finnast ekki fyndnir,
en þeir ná salnum og það er það sem
gildir. Svo þýðir ekki að kenna salnum
um ef illa gengur – ábyrgðin er alltaf
þín.“
Hugleikur segist hafa bombað
rúmlega tvisvar á ævinni. Að bomba
er það kallað þegar uppistand mis-
heppnast algjörlega.
„Versta skiptið var í Grundarfirði.
Ég var þar að kynna hljómsveitir og
ákvað að taka smá uppistand. Það var
skelfilegt. Meðalaldurinn var hærri
en ég er vanur, fólk nennti ekki að
hlusta og það var mikið af Pólverjum
á staðnum sem skildu lítið. En það er
nauðsynlegt að upplifa þetta. Að fara
upp á svið og reyna að vera fyndinn er
eitt það mest ógnvekjandi sem mað-
ur getur gert, en það er nauðsynlegt
að upplifa höfnunina til að hætta að
hræðast hana. Það er hægt að halda
áfram og standa sig betur næst.“ n
„Að nota
útlendingahatur til
að öðlast styrk er afskap-
lega lúalegt.
„Ég er á því að fólk
eigi ekki að taka
Tinder alvarlega, heldur
reyna að takast sjálft á
við þann ormapytt sem
líf einhleypings á Íslandi
er, án hjálpartækja.
Hann er á Tinder ...
... en finnst ekki töff að vera
góður í Tinder.
Mynd SigTryggur Ari
Trump og Framsókn liggja
vel við höggi Í pólitísku gríni
skýtur Hugleikur í allar áttir.
Mynd SigTryggur Ari