Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Blaðsíða 40
Helgarblað 20.–23. maí 2016
39. tölublað 106. árgangur Leiðbeinandi verð 684 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Ætlar hann
að sópa
Degi burt?
G
uðmundur Ólafsson, Lobbi,
á 40 ára edrúafmæli í dag,
föstudaginn 20. maí. Hann
fór í fyrstu meðferðina sem
boðið var upp á hérlendis eftir
svokölluðu Minnesota-módeli.
„Reyndar var þessi tiltekna aðferð
fundin upp í Rússlandi. Þeir áttu
svo mikið af fyllerísbílstjórum og
sendu þá á námskeið til að læra um
alkóhólismann og drykkjuna,“ segir
Lobbi í samtali við DV. „Það sýndi
sig að þetta virkaði. Meðferðin var
svo þróuð á Hazelden í Minnesota,
og þangað komu Betty Ford og alls
konar annað fínt fólk.“
Ekki orðið misdægurt
Hazelden-stofnunin, sem í dag heit-
ir Hazelden-Betty Ford stofnunin,
var sett á laggirnar árið 1949, en fram
að þeim tíma voru úrræði fyrir alkó-
hólista í Bandaríkjunum léleg og fá.
Þarna var í fyrsta sinn komin með-
ferðarstofnun, sérsniðin fyrir alkó-
hólista, þar sem mannleg reisn var
höfð í hávegum. Fram að því höfðu
margir sem þjáðust af sjúkdómnum
lent í fangelsum, heimilisleysi eða
inni á lokuðum geðdeildum.
Á Íslandi var Minnesota-módelið
tekið í notkun á Vífilsstöðum. Þang-
að fór Lobbi, frelsaðist frá drykkju og
hefur að sögn ekki orðið misdægurt
síðan.
Lobbi getur ekki sagt að hann hafi
langað í sopa þessa fjóra áratugi síð-
an hann sagði endanlega bless við
Bakkus. „Ég hitti vini reglulega og við
ræðum þessi mál. Þannig fær maður
spegilmynd af sjálfum sér og nær að
ráða við andann. Þetta snýst nefni-
lega um að hafa yfirhöndina and-
lega. n
ragga@dv.is
Lobbi fagnar áratuga edrúmennsku
Hagfræðinginn hefur ekki langað í sopa í fjörutíu ár og ekki orðið misdægurt
Uppfinningahorn
Bylgju
n Grínistinn og uppistandarinn
Bylgja Babýlons er komin
með nýja þætti á Youtube.
Aðdáendur Bylgju hafa beðið
milli vonar og ótta síðan hún
og Anna Hafþórsdóttir hættu
gerð þáttanna Tinna og Tóta,
þar sem þær léku ljósabrúnar
lífsstílsgyðjur og gáfu áhorfendum
góð ráð. Nýi þátturinn hennar
Bylgju heitir Uppfinningahornið,
en í fyrsta þættinum kynnir hún
byltingarkennda
pökkun á mjólk.
Þeir sem vilja
fylgjast með
Bylgju Babýlons
ættu að láta
sér líka við
samnefnda
síðu á
Facebook.
Gísli gramur
n Sjónvarpsstjarnan Gísli Mart-
einn Baldursson sendi sínum
gömlu kollegum hjá Reykja-
víkurborg tóninn á Twitter á
fimmtudag. Gísla var réttilega
gramt í geði yfir ástandi gang-
stétta í borginni, sem enn eru
víða ósópaðar og þaktar sandi
eftir veturinn.
„Eruð þið alveg hætt að sópa
gangstéttir? Það er ansi langt
síðan snjóa leysti og
gangstéttir enn
ósópaðar,“ skrif-
ar Gísli og merkir
Reykjavíkurborg
í færslunni til að
tryggja að skilaboð-
in komist til skila.
Upp með
sópinn,
Dagur!
Listagyðjan talar
n Tónlistarkonan Þórunn Ant-
onía vill útdeila listamannalaun-
um til fleiri en nú er gert. Þessu
greindi hún frá í langri Facebook-
færslu á fimmtudag. Ástæðan
er sú að Þórunni, sem kallar sig
listagyðjuna í færslunni,
finnst að fleiri eigi að
geta einbeitt sér að
því sem þeir séu
„bestir í, í stað þess
að eyða tíman-
um í ástríðulausa
peningasöfnun
einhversstaðar
annarsstað-
ar“.
Lobbi er kátur Enda á hann stórafmæli í edrúmennsku.