Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Blaðsíða 6
Helgarblað 20.–23. maí 20166 Fréttir YOUR BEST CHOICE IN COLOR. HANNAH IS WEARING SHADE N° 3-65 PALETTE DELUXE NOW WITH LUXURIOUS OLEO-GOLD ELIXIR. TURN COLOR INTO A LUXURY. FOR UP TO 30% MORE SHINE.* EUROPE'S NO. 1 NEW A rion banki hefur feng­ ið Citigroup til að veita bankanum ráðgjöf í tengslum við undirbún­ ing fyrir sölu á allt að 87% eignarhlut Kaupþings í Arion banka. Gengið var frá samkomu­ lagi við bandaríska fjárfestinga­ bankann fyrr í þessum mánuði, samkvæmt heimildum DV, en Citi verður helstu stjórnendum og stjórn Arion banka til aðstoðar við söluferlið. Citi hefur á undanförnum árum komið að skuldabréfaútgáfum rík­ isins og íslensku bankanna á er­ lendum mörkuðum. Þannig var Citi, ásamt tveimur öðrum erlend­ um fjárfestingabönkum, með­ al annars ráðgjafi Arion banka þegar bankinn gaf út 300 milljóna evra skuldabréf í mars 2015 en þá var um að ræða fyrstu útgáfu ís­ lensks banka í evrum sem var seld til breiðs hóps fjárfesta, allt frá falli fjármálakerfisins 2008. Viðræður settar á ís Undir lok síðasta árs hóf hópur líf­ eyrissjóða, leiddur af stærstu lífeyr­ issjóðum landsins, óformlegar við­ ræður við slitastjórn Kaupþings um kaup á hlut í Arion banka. Í febr­ úar á þessu ári fengu síðan fjár­ málaráðgjafar sjóðanna, íslenska ráðgjafarfyrirtækið Icora Partners, aðgang að rafrænu gagnaherbergi til að kynna sér ítarlegar upplýs­ ingar um fjárhag og rekstraráætl­ anir bankans á komandi árum. Viðræðurnar voru hins vegar sett­ ar á ís eftir að slitastjórn Kaupþings lauk formlega störfum sínum eft­ ir nauðasamning og ný stjórn var kjörin til að stýra félaginu um miðj­ an mars síðastliðinn. Sú staða ætti núna að taka breytingum og væntingar eru um að söluferlið komist á skrið á næstu vikum og mánuðum. Þannig stend­ ur til, eins og áður hefur verið upp­ lýst um í DV, að stjórn Kaupþings ráði til sín íslenska ráðgjafa til að aðstoða félagið við sölu á hlutnum í Arion banka. Þau fjármálafyrirtæki sem hafa sóst eftir að veita Kaup­ þingi slíka ráðgjöf eru Arctica Fin­ ance, Virðing og Kvika fjárfestinga­ banki. Samkvæmt uppleggi Arctica Finance og Virðingar er gert ráð fyrir því að fyrirtækin vinni að verk­ efninu í sameiningu. Stórt ráðgjafarverkefni Eftir að gengið verður frá samkomu­ lagi við innlenda ráðgjafa til að að­ stoða við söluferlið munu þeir bætast í hóp með bandaríska fjár­ festingabankanum Morgan Stanley en hann hefur á síðustu árum starf­ að fyrir Kaupþing í tengslum við undirbúning að sölu á hlutnum í Arion banka. Ljóst er að um er að ræða gríðarlega stórt ráðgjafarverk­ efni sem gæti skilað þeim íslensku félögum sem munu aðstoða Kaup­ þing við söluferlið umtalsverðum tekjum. Algengt er að ráðgjafar við slíka sölu fái í þóknun greiðslu sem nemur 0,5% til 1% af söluandvirði. Miðað við bókfært eigið fé Arion banka í lok mars á þessu ári er 87% hlutur Kaupþings metinn á um 170 milljarða króna. Stjórnarformaður Kaupþings er bandaríski lögmaðurinn Alan J. Carr en aðrir sem skipa stjórnina eru Ótt­ ar Pálsson, hæstaréttarlögmaður og einn eigenda LOGOS, Paul Copley, breskur endurskoðandi, og Jó­ hannes Rúnar Jóhannsson, hæsta­ réttarlögmaður og fyrrverandi for­ maður slitastjórnar. Ásamt því að vera stjórnarmaður gegnir Paul Copley stöðu framkvæmdastjóra Kaupþings. Samkvæmt heimild­ um DV verður söluferlið á Arion banka einkum á forræði erlendra stjórnarmanna Kaupþings auk þess sem Bandaríkjamaðurinn John P. Madden mun starfa náið með stjórn bankans í tengslum við þá vinnu. Var hann fenginn til liðs við Kaup­ þing fyrir tilstuðlan Keith Magliana, sjóðsstjóra hjá vogunarsjóðn­ um Taconic Capital, langsamlega áhrifamesta eiganda Kaupþings. Ríkið á mikið undir Íslenska ríkið á sem kunnugt er mikilla hagsmuna að gæta við sölu á Arion banka vegna afkomuskipta­ samnings sem gerður var við kröfu­ hafa slitabúsins í fyrra samhliða því að þeir féllust á stöðugleikaskil­ yrði stjórnvalda. Ef hlutur Kaup­ þings verður seldur í samræmi við bókfært eigið fé Arion banka í árs­ lok 2015 þá mun ríkið fá um 113 milljarða króna í sinn hlut. Kröfu­ hafar Kaupþings myndu á móti fá um 55 milljarða króna og er þeim heimilt að skipta allri þeirri fjár­ hæð í erlendan gjaldeyri og flytja úr landi. Söluandvirðið sem renn­ ur til ríkisins verður hins vegar ríf­ lega 90 milljarðar ef hluturinn selst á gengi sem nemur 0,7 miðað við bókfært eigið fé en það er núna tæplega 193 milljarðar. Fyrir utan 87% eignarhlut Kaupþings þá á rík­ ið 13% hlut í bankanum. n Citi er ráðgjafi Arion við sölu á bankanum n Veitir ráðgjöf við undirbúning fyrir sölu á 87% hlut n Viðræður verið á ís Hörður Ægisson hordur@dv.is Mögulegt gengi við sölu** Það sem færi til stjórnvalda Það sem færi til kröfuhafa 0,6 85 16 0,7 91 27 0,8 96 38 0,9 104 47 1 113 55 Sala á 87% hlut í Arion banka* *Miðað við eigið fé Arion banka er sá hlutur bókfærður á 168 milljarða **Sölugengi miðað við bókfært eigið fé bankans. Samkvæmt afkomuskiptasamningi fær ríkið þriðjung af söluandvirði yfir 100 milljörðum. Ef hluturinn selst á meira en 140 milljarða fær ríkið helming umfram þá upphæð en þrjá fjórðu þess sem er yfir 160 milljarða. Frjósemi aldrei minni Frjósemi íslenskra kvenna hef­ ur aldrei verið minni en í fyrra. Þetta kemur fram í tölum Hag­ stofu Íslands. Í fyrra fæddust 4.129 börn en þau voru 4.375 árið áður. Fram kemur að yfirleitt sé miðað við að frjósemi þurfi að vera um 2,1 barn til að viðhalda mannfjöldanum til lengri tíma litið en í fyrra hafi hlutfallið verið 1,81. „Undanfarinn áratug hef­ ur frjósemi á Íslandi verið rétt um tvö börn á ævi hverrar konu.“ Tekið er fram að fæðingartíðni í Suður­Evrópu sé lægst í álfunni. Árið 2014 hafi fæðingartíðni ver­ ið 1,23 í Portúgal og um 1,30 á Grikklandi og Kýpur. Frambjóð- anda fipast Forsetaframbjóðandanum Guðna Th. Jóhannessyni urðu á þau mistök í gær að segja Ís­ land einu Norðurlandaþjóðina í úrslitum Evrópumeistaramóts­ ins í fótbolta karla sem fer fram í Frakklandi í sumar. Guðni ritar játningu þess efnis á Facebook­ síðu sinni og biðst forláts fyrir að hafa steingleymt Svíum, þeirri miklu íþróttaþjóð. Í færslunni minnist hann sænskra íþrótta­ hetja úr uppvextinum, eins og „Svíagrýlunnar“ í handbolt­ anum, Ingemars Stenmark og Björns Borg. Gárungarnir voru ekki lengi að bregðast við og birta ýmiss konar athugasemdir við færslu Guðna. Þar bar meðal annars á góma að mannlegt væri að skjátlast, en aðrir ræddu um millilandakrísur og að sagn­ fræðingur ætti nú að hafa þessa hluti á hreinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.