Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Síða 20
Helgarblað 20.–23. maí 20162 Sumarbúðir og námskeið - Kynningarblað
U
ndanfarin ár hefur ferða-
skrifstofan Mundo haslað
sér völl með innihalds-
ríkum ferðum þar sem
menntun, skemmtun,
menning og þjálfun eru í fyrir-
rúmi. Óhætt er að fullyrða að flagg-
skip Mundo séu sumarbúðirnar
sem haldnar eru jafnt á Spáni sem
í Reykjavík. Ef þú ert ungmenni á
aldrinum 14 til 18 ára þá býðst þér
annars vegar að taka þátt í sumar-
búðum í Reykjavík eða í Aranda á
Spáni þar sem þú lærir spænsku,
lendir í ævintýrum og kynnist fullt
af kátum og skemmtilegum krökk-
um. Sumarbúðirnar í Reykjavík eru
ókeypis en hinar eru það ekki.
Sumarbúðir Mundo í
Aranda á Spáni
Alþjóðleg reynsla og færni skiptir
höfuðmáli fyrir komandi kynslóð-
ir því börnin okkar verða að kunna
tungumál svo vel að þau nýtist
þeim í starfi. Foreldrum reynist sér-
lega auðvelt að gefa börnum rætur
en málið vandast þegar kemur að
því að ljá þeim vængi. Þá sjáum við
allar þær hættur sem steðja að eft-
irlitslausum unglingum í útlönd-
um og veljum frekar að halda þeim
heima. Mundo hannaði sumarbúð-
irnar á Spáni með það fyrir augum
að þar sé í boði allt sem ungling-
um þykir skemmtilegt en að fyllsta
öryggis sé gætt. Krakkarnir læra
spænsku, fara á leiðtoganámskeið
og lenda svo í alls kyns ævintýr-
um sem innihalda skoðunarferð-
ir, strandferðir, sundlaugarferð-
ir, íþróttir og annað skemmtilegt.
Sumarbúðirnar eru haldnar í
Aranda dagana 10.–31. júlí og Zafra
í júní. Uppselt er til Zafra en enn
eru nokkur sæti laus til Aranda.
Mundo vinnur í þessum bæjum í
gegnum persónuleg sambönd sem
tryggja að ungmennin fara inn á
góð heimili. Þannig myndi 15 ára
stelpa dvelja á heimili þar sem er
14–16 ára stelpa. Spænska stúlk-
an tekur fullan þátt í dagskránni
í sumarbúðunum en er á ensku-
námskeiði á sama tíma og íslenska
stelpan er á spænskunámskeiði.
Nánari upplýsingar um sumarbúð-
irnar má lesa á heimasíðu Mundo,
http://mundo.is/sumarbud ir-a-
spani/.
Sumarbúðir Mundo í Reykjavík
Mundo er í samvinnu við skóla í
Madríd sem sendir hingað 26 ung-
menni dagana 28. júní til 20. júlí.
Þessa dagana leitum við að fjöl-
skyldum á höfuðborgarsvæðinu
sem vilja taka þátt í verkefninu
með okkur. Sumarbúðirnar byggja
á sambandi við fósturfjölskyldurn-
ar þar sem báðir aðilar hagnast.
Dæmi: Ef það er 15 ára strákur í fjöl-
skyldunni þá hýsir fjölskyldan 14–
16 ára spænskan strák og hugsar
um hann sem sitt eigið barn í þrjár
vikur. Í staðinn býðst unglingnum
í fjölskyldunni að sækja spænsku-
námskeið og taka þátt í afar fjöl-
breyttri dagskrá með hópnum allan
tímann. Farið verður í vettvangs-
ferðir, alls konar útidagskrá, eina
útilegu, o.fl. Þetta er ævintýri!
Mundo sér um unglingana frá
9–17 en fjölskyldan eftir það og um
helgar. Unglingurinn kynnist 25
nýjum íslenskum krökkum á sama
aldri og 26 spænskum. Frábært
tækifæri fyrir unglinga til að víkka
sjóndeildarhringinn og hafa gam-
an af í leiðinni.
Ekki hika við að hafa sam-
band við okkur: margret@mundo.
is og birna@mundo.is, ef þú hefur
áhuga á að senda unglinginn þinn
út eða taka Spánverja inn á heimil-
ið í sumar. n
Alþjóðleg menntun ungmenna
– spænskunám, leiðtoganámskeið, ævintýri