Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2016, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2016, Blaðsíða 4
Vikublað 16.–18. ágúst 20164 Fréttir Óvíst hvenær bankinn stefnir vegna borgunar Formaður bankaráðs Landsbankans segir niðurstöðu um málshöfðun geta legið fyrir eftir nokkrar vikur n okkrar vikur gætu liðið þangað til stjórnendur Landsbankans ákveða hverjum verður stefnt í fyrir­ hugaðri málsókn vegna sölu bankans á eignarhlut hans í Borgun. Ákvörðun um málshöfðunina var tekin á fundi bankaráðs Landsbank­ ans á fimmtudag en formaður þess vill ekki svara því hvort einhugur hafi verið um hana. „Lögmenn bankans eru að undir­ búa málið og þetta mun ekki koma í ljós fyrr en stefnan verður birt. Það er búið að taka ákvörðun um að stefna og það var það sem verið var að til­ kynna. Hverjum verður stefnt kemur í ljós þegar vinnan heldur áfram og það gætu verið nokkrar vikur eða lengra í það,“ segir Helga Björk Eiríks­ dóttir, formaður bankaráðs Lands­ bankans, og vísar í fréttatilkynningu sem bankinn birti á föstudag. Getur engu svarað Samkvæmt tilkynningunni ákvað bankaráðið að höfða mál vegna sölunnar á 31,2% hlut bankans í greiðslukortafyrirtækinu á 2,2 millj­ arða króna. Bankinn seldi hlutinn í lokuðu söluferli til tveggja fjárfesta­ hópa í nóvember 2014. Eigendur Eignarhaldsfélagsins Borgunar slf. keyptu þá 24,96% hlut og félag á vegum stjórnenda Borgunar, BPS ehf., keypti 6,24%. Í hluthafahópi Eignarhaldsfélagsins Borgunar má meðal annars finna Stálskip ehf., fjár­ festingarfélag Guðrúnar Lárusdóttur, fyrrverandi útgerðarkonu í Hafnar­ firði, og fjölskyldu hennar, og Pei ehf. sem er í eigu Einars Sveinssonar, fjár­ festis og föðurbróður Bjarna Bene­ diktssonar, fjármála­ og efnahags­ ráðherra. Líkt og frægt er orðið samdi Landsbankinn ekki um viðbótar­ greiðslu vegna milljarðagreiðslunnar sem Borgun hefur innheimt vegna yfirtöku Visa Inc. í Bandaríkjunum á Visa Europe. Eins og kemur fram í til­ kynningu Landsbankans er það mat bankaráðsins að hann hafi farið á mis við fjármuni í viðskiptunum þar sem bankanum hafi ekki verið gefnar nauðsynlegar upplýsingar um áhrif Visa­samrunans. Rúnar Pálmason, upplýsingafull­ trúi Landsbankans, vildi engu bæta við tilkynninguna þegar blaðamaður óskaði eftir frekari upplýsingum. „Málið er í höndum lögfræðinga bankans og við munum ekki tjá okk­ ur um það frekar að svo stöddu. Það hefur ekki verið gefin út stefna í mál­ inu og ég get ekki svarað því hvenær það verður,“ sagði Rúnar. Engin aðkoma Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Banka­ sýslu ríkisins, sem fer með 98,2% hlut ríkisins í Landsbankanum, heyrði fyrst af ákvörðun bankaráðsins þegar fjölmiðlar fjölluðu um fréttatilkynn­ inguna á föstudag. „Við höfum engar upplýsingar fengið umfram þær sem hafa verið gerðar opinberar. Stjórnendur bank­ ans voru búnir að segja í einhvern tíma að þeir væru að huga að máls­ höfðun,“ segir Jón Gunnar og vísar í tilkynningu Landsbankans frá 16. mars síðastliðnum um að bankinn hefði falið lögmönnum að undirbúa málsókn vegna Borgunarsölunnar. Bendir Jón einnig á svarbréf Lands­ bankans til Bankasýslunnar um söluna á eignarhlutnum en í því kom fram að bankaráðið hefði til skoðun­ ar að höfða dómsmál vegna hennar. „Bankinn er sjálfstæður lögaðili og við munum ekki hafa neina að­ komu að þessu máli. Bankinn ákvað að höfða mál og við verðum ekki hluti af því. Við tökum enga afstöðu í mál­ inu. Við vissum að þeir væru að íhuga þetta en höfum ekki fengið frekari upplýsingar en hafa verið gerðar opin berar,“ segir Jón Gunnar. n Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Greiðslan hækkaði um milljarð Landsbankinn tekjufærði í nýbirtum árshlutareikningi sínum alls 3.480 milljónir króna vegna kaupa Visa Inc. á Visa Europe. Bankinn gerði fyrirvara um hlutdeild í greiðslum sem Valitor fékk í júní vegna samrunans þegar hann seldi Arion banka 38,62% hlut sinn í greiðslukortafyrirtækinu í desember 2014. Greiðslan til Landsbankans hækkaði því um rúman milljarð króna á öðrum árshluta þessa árs miðað við það sem stjórnendur hans gerðu ráð fyrir í ársreikningi fyrirtækisins fyrir árið 2015 sem kynntur var í febrúar síðastliðnum. „Hverjum verður stefnt kemur í ljós þegar vinnan heldur áfram. Boðar málshöfðun Stjórnendur Landsbankans tilkynntu um málshöfðun vegna Borg- unarsölunnar áður en búið var að taka ákvörðun um hverjum yrði stefnt. Borgun Landsbankinn hefur ekki gefið út hvort þeim stjórnendum Borgunar sem komu að kaupum á hlut bankans í greiðslu- kortafyrirtækinu verði stefnt. Mynd SiGtryGGur Ari … komdu þá við hjá okkur Ertu á leið í flug? Hafnargötu 62, KEflavíK / pöntunarsími 421 4457 Hádegis-tilboð alla daga 5 5 2 - 6 0 6 05 5 2 - 6 0 6 0 Ugly. is - smiðjUvegi 2 og l angarima 21

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.