Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2016, Blaðsíða 6
Vikublað 16.–18. ágúst 20166 Fréttir
Fæst í öllum
helstu apótekum.
Þurr augu?
Augnheilbrigði
Tvöföld virkni
Sex sinnum lengri ending
Nýtt
Thealoz Duo® er ný aðferð við meðhöndlun
augnþurrks sem sækir innblástur beint til náttúrunnar.
Til þess að koma jafnvægi á tárafilmuna notum við nátt-
úrulegu efnin trehalósa, sem kemur á jafnvægi og verndar
frumurnar á yfirborði hornhimnunnar, og hýalúronsýru, sem
smyr yfirborð hornhimnunnar og gefur henni raka.
TREHALÓSI
Finnst í mörgum jurtum og hjálpar þeim
að þrífast við þurrar aðstæður. Trehalósi
verndar frumurnar og gerir þeim kleift
að starfa með fullum afköstum.
HÝALÚRONSÝRA
Er að finna í augunum og hefur
einstaka getu til að binda vatn.
Hjálpar til við að smyrja og viðhalda
táravökvanum á yfirborði augans.
án rotvarnarefna
Hluthafahópur
Verðbréfamið-
stöðvarinnar
n Arion banki
n Íslandsbanki
n Lífeyrissjóður verslunarmanna
n Gildi Lífeyrissjóður
n Almenni lífeyrissjóðurinn
n Sameinaði lífeyrissjóðurinn
n Lífsverk lífeyrissjóður
n Braml ehf. (í eigu Arnars Arinbjarnarsonar)
n G60 ehf. (í eigu Einars S. Sigurjónssonar)
n Lagahvoll slf. (í eigu Daða Bjarnasonar og
Jóhanns Tómas Sigurðssonar)
Verðbréfamiðstöðin mun rjúfa
einokunarstöðu nasdaq á nýju ári
n Einkafjárfestar með 30%
hlut í nýju félagi á sviði
verðbréfaútgáfu
n Hefur starfsemi
innan fárra
mánaða
S
tarfsemi Verðbréfamiðstöðv-
arinnar hf., félags sem hyggst
fara í samkeppni við Nasdaq
á Íslandi, mun að óbreyttu
hefjast á fyrstu mánuð-
um næsta árs en tveir viðskipta-
bankar og fimm lífeyrissjóðir fara
samanlagt með um 70% eignarhlut
í fyrirtækinu. Einkafjárfestar, meðal
annars Einar S. Sigurjónsson, fyrr-
verandi framkvæmdastjóri Verð-
bréfaskráningar Íslands á árunum
1998 til 2013, og Arnar Arinbjarnar-
son, fjárfestir og fyrrverandi yfir-
maður viðskiptaþróunar MP banka,
munu hins vegar eiga samtals 30%
hlut í félaginu, samkvæmt heimild-
um DV.
Með stofnun Verðbréfamið-
stöðvarinnar verður bundinn endi
á einokunarstöðu Nasdaq á þessum
markaði hér á landi en fyrirtækið,
sem er í eigu Eignarhaldsfélagsins
Verðbréfaþings sem er aftur í eigu
bandarísku kauphallarsamstæð-
unnar NasdaqOMX, hefur verið hið
eina með starfsleyfi sem verðbréfa-
miðstöð samkvæmt lögum um raf-
ræna eignaskráningu verðbréfa.
Eigendur Nasdaq á Íslandi hafa
hagnast verulega á rekstri félagsins
á undanförnum árum en hagnaður
þess eftir skatta á síðasta ári jókst
um 60 milljónir króna og nam sam-
tals tæplega 328 milljónum. Það
jafngildir um 54% ávöxtun á eigið
fé en það var 607 milljónir í árslok
2015.
Mætir yfirvofandi samkeppni
Það var Morgunblaðið sem greindi fyrst
frá því í nóvember í fyrra að unnið væri
að stofnun Verðbréfamiðstöðvarinnar,
undir forystu Einars S. Sigurjónssonar,
og að hluthafar fyrirtækisins yrðu með-
al annars Arion banki, Íslandsbanki og
nokkrir lífeyrissjóðir. Samkvæmt heim-
ildum DV er nú verið að ganga frá kaup-
um á tölvukerfi fyrir starfsemina, sem
ætti að klárast á næstu vikum, en gert
er ráð fyrir því að Verðbréfamiðstöðin
taki í kjölfarið til starfa snemma á næsta
ári eftir að fjármála- og efnahagsráðu-
neytið hefur samþykkt umsókn félags-
ins um starfsleyfi.
Verðbréfamiðstöðin hyggst bjóða
aðilum á þessum markaði, sem eru
einkum lífeyrissjóðir, fjármálafyrir-
tæki og hið opinbera, sömu þjónustu
og þeir kaupa núna af Nasdaq verð-
bréfamiðstöðinni á Íslandi en þar er
um að ræða útgáfu, vörslu og upp-
gjörs verðbréfa. Nasdaq tilkynnti fyrr
á árinu um lækkun á gjaldskrá fyrir-
tækisins en á meðal helstu breytinga
er að grunnvörsluþóknun, sem er
helsti tekjupóstur félagsins, lækkar
flatt um 10% auk þess sem viðbótar-
afsláttur er veittur til viðskiptavina
sem eru með verðbréf yfir 100 millj-
arða í vörslu hjá Nasdaq. Ljóst er því
að fyrirtækið hefur nú þegar stigið
skref til að mæta þeirri yfirvofandi
samkeppni sem er framundan á
þessum markaði.
Með 10% eignarhlut hver
Þau sem skipa stjórn Verðbréfamið-
stöðvarinnar hf. eru Gísli Kr. Heimis-
son, fyrrverandi framkvæmdastjóri
rekstrarsviðs MP banka, Vilmundur
Jósefsson, fyrrverandi formaður
Samtaka atvinnulífsins og stjórnar-
maður í Vodafone, og Sigþrúður
Ármann, lögfræðingur og fram-
kvæmdastjóri EXEDRA. Þeir bankar
og lífeyrissjóðir sem koma að stofn-
un félagsins sem hluthafar munu
allir fara með um 10% hlut hver en
sjóðirnir sem hafa skráð sig fyrir
áskriftum að hlutafé eru Lífeyr-
issjóður verslunarmanna, Gildi
lífeyris sjóður, Almenni lífeyrissjóð-
urinn, Sameinaði lífeyrissjóðurinn
og Lífsverk lífeyrissjóður.
Auk Einars S. Sigurjónssonar, sem
er jafnframt framkvæmdastjóri Verð-
bréfamiðstöðvarinnar, og Arnars
Arinbjarnarsonar þá eru héraðs-
dómslögmennirnir Jóhann Tómas
Sigurðsson og Daði Bjarnason
einnig hluthafar í fyrirtækinu í gegn-
um eignarhald sitt á lögmannsstof-
unni Lagahvoll. Áætlað er að þessi
hópur einkafjárfesta muni sem fyrr
segir fara samanlagt með um 30%
eignarhlut í félaginu. n
Kauphöll Íslands
Nasdaq verðbréfamið-
stöðin hefur um árabil
haft einokunarstöðu á
markaði með skráningu
verðbréfa. Það mun
breytast á nýju ári.
Önnur hver króna skilar
sér til baka í hagnað
Næstum önnur hver króna af heildarveltu Nasdaq verðbréfamiðstöðvarinnar skilar sér
til baka í formi hagnaðar hjá félaginu eftir skatta. Samkvæmt ársreikningi fyrirtækisins,
sem áður hét Verðbréfaskráning Íslands, voru tekjur þess samtals 692 milljónir króna
á árinu 2015. Samtals var hagnaður félagsins um 328 milljónir króna og hefur stjórn
þess ákveðið að nánast allur hagnaður síðasta árs, eða samtals 320 milljónir króna,
verði greiddur út sem arður til eigenda. Eigið fé fyrirtækisins var 607 milljónir króna í lok
síðasta árs og heildareignir liðlega 923 milljónir. Eiginfjárhlutfall Nasdaq verðbréfamið-
stöðvarinnar er því um 66%.
Þegar litið er til þeirrar gríðarlegu arðsemi sem reksturinn er að skila miðað við
eigið fé – rúmlega 54% – þarf ekki að koma á óvart að hópur fjárfesta hafi séð tækifæri
í því að reyna að sækja á þennan markað. Hagsmunaaðilar á verðbréfamarkaði hafa
jafnframt á undanförnum árum gagnrýnt að kostnaður við útgáfu verðbréfa í Kauphöll
Íslands sé of hár. Þannig kom meðal annars fram í tillögum frá sérstökum verðbréfahópi
Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF) um starfsumgjörð verðbréfamarkaðar í október 2014
að þrátt að fyrir grunnþóknanir væru svipaðar og í nágrannalöndum þá væri uppbygging
þóknana ólík sem orsakaði aukinn kostnað hjá íslenskum félögum. Þá taldi hópurinn
einnig að gjaldtaka Nasdaq verðbréfamiðstöðvarinnar vegna pörunar viðskipta væri of
há og í engu samræmi við það sem þekkist erlendis.
Hörður Ægisson
hordur@dv.is