Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2016, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2016, Blaðsíða 14
Vikublað 16.–18. ágúst 201614 Skrýtið 515 7900 | alskil@alskil.is | alskil.is D arkness Vlad Tepes, 25 ára gamall Englendingur, gæti við fyrstu sýn virst nokkuð venjulegur ungur maður sem hefur áhuga á þungarokki og fatastíl þeirra sem oft eru kallaðir gotharar. Það er hann ekki. Tepes sefur í sérsmíðaðri lík- kistu og drekkur blóð úr geitum, kindum og öðrum búfénaði. Englendingurinn blóðþyrsti, sem tók upp nafnið Darkness, eða myrkur, fyrir nokkrum árum, á sér þann draum að samborgarar hans taki honum eins og hann er þrátt fyrir að hann lifi lífi vampíru. Segist hann verða fyrir aðkasti sökum lífsstílsins sem hann tók upp fyrir þrettán árum. „Þótt ég sé vampíra þá vil ég að fólk komi fram við mig eins og aðra. Ég fór á krá með tveimur félögum mínum og var þá spurður hvort ég hefði verið misnotaður í æsku. Ég skammaðist mín svo fyrir að vera spurður svo persónulegrar spurn- ingar vegna þessa lífsstíls. Allir hafa sinn karakter og mér finnst ekki rétt að ég sé ofsóttur vegna míns,“ segir Tepes. Tepes, sem hefur búið í Black- burn síðustu fjögur ár, hefur líkt sinni slæmu reynslu við sögu Sophie Lancaster, tvítugrar stúlku frá Englandi sem var myrt fyrir að vera klædd eins og gothari. Móðir Sophie hefur lýst opinberlega yfir stuðningi við Tepes. Líkkista vampírunnar vegur 25 kíló en hann viðurkennir að hvít- laukur geri honum ekki mein. Einnig þoli hann vel sólarljós og aldrei hafi komið til þess að hold hans bráðni og afmyndist í góðu veðri. „Hluti af því að vera vampíra felst í þeirri trú minni að líkami minn sé lifandi en sál mín dauð. En ég held að fólk misskilji vampírur vegna kvikmynda og bóka um til dæmis Twilight-seríuna og Drakúla. n „Hluti af því að vera vampíra felst í þeirri trú minni að líkami minn sé lifandi en sál mín dauð. Drekkur blóð og sefur í líkkistu n Englendingurinn Darkness Vlad Tepes lífir lífi vampíru n Dreymir um samþykki með- borgara sinna Sálin dauð Það fer vel um Englendinginn unga í líkkist- unni sem hann lét sérsmíða. Blóð- þyrstur Darkness Vlad Tepes veit ekkert betra en að drekka blóð úr búfénaði. Er bíllinn klár fyrir sumarið? Við einföldum líf bíleigandans Ferðabox Reiðhjóla- grindur Þverslár

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.