Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2016, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2016, Blaðsíða 20
Vikublað 16.–18. ágúst 201620 Menning avis.is 591 4000 Frá 1.650 kr. á dag Vissir þú að meðal heimilisbíll er notaður í eina klukkustund á dag Langtímaleiga er þægilegur, sveigjanlegur og skynsamlegur kostur Á R N A S Y N IR NOTAÐU ÞITT FÉ SKYNSAMLEGA Leynilistasafnið Listaverk leynast víðar en á söfnum og í stofnunum. Útilistaverk hafa orðið æ al- gengari á Íslandi á undanförnum árum og áratugum, ekki aðeins styttur af fyrir- mennum eða minnismerki á torgum bæja heldur ýmiss konar umhverfisverk sem smíðuð eru inn í og leika sér með náttúruna og umhverfið í kringum sig. DV svipaðist um eftir leyndum listaverkum víðs vegar um land og komst að því að nokkrir af þekktustu myndlistarmönnum heims eiga verk, misvel falin í íslenskri náttúru. Meðfylgjandi er kort sem listelskir ferðalangar geta notað til að finna nokkrar af þessum földu perlum á ferð sinni um landið. Listinn er alls ekki tæmandi og eru lesendur hvattir til að senda blaðamanni ábendingar um fleiri slík verk, eða benda á þau í athugasemdakerfi dv.is. Sigurjón Ólafsson – Hávaðatröll og lágmyndir (á Búrfellsvirkjun) Vatnsaflsvirkjanir eru einhver stærstu inngrip í óspillta náttúru sem um getur. Hefð hefur skapast fyrir því að setja upp listaverk á eða við þessi tröllauknu mannvirki, kannski sem annað dæmi um ægilegan sköpunarkraft mannsins og umbreytingu hans á náttúrunni. Búrfellsvirkjun var fyrsta stórframkvæmd opinbera virkjunarfyrirtækisins Landsvirkjunar, en hún var fullgerð 1969. Á framhlið stöðvarhússins er stór lágmynd eftir Sigurjón Ólafsson og fyrir framan það er einnig verkið Hávaðatröllið eftir hann. Hreinn Friðfinnsson Third House (Hafnarfjörður) Málmgrind lítils kofa hefur verið komið fyrir á óþekktum stað í hrauninu fyrir utan Hafnarfjörð. Verkið er frá 2011 en á rætur sínar að rekja til ársins 1974 þegar Hreinn byggði lítinn kofa á röngunni – bárujárn að innan og veggfóður að utan – á þessum sama stað í hrauninu. Hreinn hefur aldrei viljað gefa upp nákvæma staðsetningu á húsinu, því hann vill að fólk rambi óvænt á það. Richard Serra – Áfangar (Viðey) Verkið Áfangar eftir bandaríska myndlistarmanninn Richard Serra, einn virtasta listamann samtímans, samanstendur af 18 stuðlabergssúlum sem standa tvær og tvær saman og mynda hring um Viðey. Það er góður göngutúr að rölta milli allra súlnanna. Þorgerður Ólafsdóttir Strandstóll (Hjalteyri) Árið 2014 var stór strandstóll úr timbri með góðu útsýni yfir fjörðinn byggður sem hluti af sýningunni Phishing the Landscape, sem haldin var í Verksmiðjunni á Hjalteyri. Todd McGrain Geirfuglinn (Reykjanes) Bronsstytta af geirfugli eftir bandaríska myndlistarmanninn Todd McCrain stendur á Valahnúki og horfir fuglinn til Eldeyjar en talið er að síðasti geirfuglinn hafi verið drepinn þar. Verkið er hluti af stærra verkefni sem helgað er útdauðum fuglum. Verkið er hins vegar mjög umdeilt þar sem það þykir óþægilega líkt verki Ólafar Nordal frá 1998, styttu af geirfugli sem stendur í flæðarmálinu við Skerjafjörð í Reykjavík. Claudio Parmiggiani Íslandsviti (Sandskeið) Tólf metra hár viti ítalska listamannsins Claudio Parmiggiani frá 2000 stendur á Sandskeiði rétt fyrir utan Reykjavík og lýsir þar dag og nótt út í tómið. Það fer ekki mikið fyrir vitanum, en hann sést vel frá þjóðveginum. Yoko Ono Imagine Peace Tower (Viðey) Annað verk í Viðey er ljóskastari japönsku listakonunnar Yoko Ono, Imagine Peace Tower, sem varpar sterkri ljóssúlu upp í himininn samfellt frá sólarlagi til miðnættis frá fæðingardegi eiginmanns hennar Johns Lennon, 9. október, til dánardags hans, 8. desember. Steinunn Þórarins- dóttir – Voyage (Vík) Voyage, eða ferðalag, er koparstytta sem hallar sér og horfir út á sjóinn við Reynisfjöru. Hún á sér systurstyttu í hafnarbænum Hull í Englandi, en mikil tengsl hafa verið milli bæjanna á síðustu árhundruðum. 1 2 5 4 3 6 8 7 1 2 34 5 6 7 10 11 12 14 15 19 20 Hreinn Friðfinnsson The Light (Ísafjörður) Ragnar Kjartansson (eldri) Bárður Snæfellsás (Arnarstapa) Sigurður Guðmundsson Minning um ástvini í fjarlægð (Ólafsvík)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.