Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2016, Blaðsíða 21
Vikublað 16.–18. ágúst 2016 Menning 21
Fiskur er okkar fag
- Staður með alvöru útsýni
Opið allt árið, virka daga,
um helgar og á hátíðisdögum
Kaffi Duus v/ Smábátahöfnina í Keflavík - Aðeins 5 mínútur frá Leifstöð, lítið við í leiðinni • Sími: 421 7080 • duus@duus.is • Opið frá kl. 10:30 - 23:00 alla daga
Allt það besta í íslenskri og indverskri matargerð
Lukas Kühne
Tvísöngur (Seyðisfjörður)
Hljóðskúlptúrinn Tvísöngur frá 2012 eftir þýska
listamanninn Lukas Kühne er staðsettur fyrir ofan
Seyðisfjarðarbæ. Hann samanstendur af fimm
sambyggðum, steinsteyptum hvelfingum af mis-
munandi stærð, hver hvelfing fyrir sig hefur eigin
tíðni sem samsvarar einum tóni í fimmundarsöng
og virkar sem magnari fyrir þann tón.
Gjörningaklúbburinn
Móðir jörð er að tæknivæðast
(við Vatnsfellsvirkjun)
Frá verki Finnboga er gott útsýni yfir verk Gjörn-
ingaklúbbsins, hitt verkið sem sigraði í samkeppni
Landsvirkjunar um listaverk við virkjunina. Verkið er
gróðurþríhyrningur sem hefur rafmagn til hitunar og
vatn til vökvunar. Þríhyrningurinn, sem er fullur af
íslenskum heiðagróðri, á jafnt að vísa í útlit vatns-
aflsvirkjana og „play“-takka á raftækjum.
Guðjón Ketilsson
Hvernig gengur? (Seyðisfjörður)
Símaklefi Guðjóns Ketilssonar frá 2004, sem nefnist
Hvernig gengur?, er minnisvarði um komu sæsíma-
strengsins til Seyðisfjarðar einni öld fyrr.
Jónína
Guðnadóttir
Hringiða
(við Kárahnjúka-
virkjun)
Hringiða er útilistaverk
og útsýnishringur
fyrir ofan hina ægilegu
Kárahnjúkavirkjun.
Verkið er hringlaga
platti eða stétt gerð
úr grjóti af svæðinu. Á
stéttina er ritaður texti
úr Völuspá og er letrið
smíðað úr áli.
Finnbogi Pétursson
Tíðni (í nágrenni Vatns-
fellsvirkjunar)
Listaverkið Tíðni frá 2005 stendur við
Vatnsfellsstöð á leiðinni upp á Sprengisand.
Verkið er 20 metra löng manngeng orgel-
pípa úr steini. Í henni er blágrýtisfjöður sem
myndar tón í norðanvindi, tíðnin er sú sama
og tíðni rafmagns 50 Hz.
Ragna Róbertsdóttir
Bakka-Bíó (Bakkadalur, Ketildölum)
Bíóbekkjum hefur verið komið fyrir í húsarúst sem hefur
staðið óhreyfð í áratugi við hús Rögnu í Bakkadal. Þar er
hægt að fá sér sæti og njóta þess magnaða sjónarspils
sem náttúran býður upp á. Innsetningin var afhjúpuð á
myndlistar sýningunni Places/Staðir í júlí 2016.
Sigurður Árni
Sigurðsson
Sólalda (á Sultar-
tangastöð)
Á steypuvegg fyrir ofan stöðvar-
hús Sultartangastöðvar í Þjórsá
eru sautján stálplötur sem standa
út úr veggnum í mismunandi
lengd. Verkið leikur sér að samspili
ljóss og skugga sem nær hámarki
á sumarsólstöðu.
Samúel Jónsson
– listaverk og
byggingar (Selárdalur
við Arnarfjörð)
Í Selárdal í Ketilsdalahreppi í Arnar-
firði eru mörg verk eftir Samúel
Jónsson, bónda og alþýðu listamann
– sem oft var nefndur listamaðurinn
með barnshjartað. Þar er meðal
annars kirkja sem hann hannaði og
smíðaði sjálfur og litríkar styttur af
mönnum og dýrum.
Jón Gunnar Árnason
Flateyjar-Freyr (Flatey)
Á Tortu á austasta stað Flateyjar stendur Flateyjar-Freyr frá
1973, útskorinn rekaviðardrumbur með myndarlegan trélim,
eftir Jón Gunnar sem dvaldi eins og fleiri listamenn oft í eynni á
áttunda áratugnum. Gestir taka sig oftar en ekki til og hengja
þara og skeljar á goðið – og þá hefur komið fyrir að óprúttnir
aðilar hafi stolið síspenntu trétyppinu.
Jason Rhoades, Paul
McCarthy
Macy's (Eiðar) Rhoades og
McCarthy, tveir af þekktustu mynd-
listarmönnum seinni hluta 20. aldar-
innar, settu saman upp útibú banda-
rísku verslunarkeðjunnar Macy‘s á
Eiðum. Þar stendur verslunin enn, ein
og yfirgefin í íslenskri náttúru.
Haukur Halldórsson og Erling
Thoroddsen – Heimskautsgerðið
(Raufarhöfn) Hugmyndin að Heimskautsgerðinu
á Melrakkaás við Raufarhöfn kom frá Erling Thoroddsen
hótel stjóra en Haukur Halldórsson listamaður teiknaði
gerðið. Heimskautsgerðið, sem er að hluta innblásið af
Stone henge í Bretlandi og dvergatali Völuspár, myndar
hring sem er rúmlega 50 metrar í þvermál, með fjórum
hliðum, sem vísa í höfuðáttirnar, ásamt bendisteini í miðju.
Eva Ísleifsdóttir
Hooked / Kræktur
(Bíldudalur)
Stórum öngli hefur verið krækt í
höfnina í Bíldudal. Verkið var sett
upp sem hluta af myndlistarsýn-
ingunni Places/ Staðir í júlí 2016.
10
12
11
15
14
18
13
17
9
19
20
16
8
9
13
16
18Roni Horn
Some Thames
(Akureyri)
17
Sigurður
Guðmundsson
Eggin í Gleðivík (Djúpavogi)
Kristján
Guðmundsson
Útlínur (Seyðis-
fjörður)
Kristinn E. Hrafnsson
Iceland‘s bell (Akureyri)
Stefán Jónsson
Kjarval I (Fjallamjólk)
(Akureyri)