Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2016, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2016, Blaðsíða 16
Vikublað 16.–18. ágúst 2016 Heimilisfang Kringlan 4-12 6. hæð 103 Reykjavík fréttaskot 512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7000 512 7050 aðalnúmer ritstjórn áskriftarsími auglýsingar sandkorn 16 Umræða Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Guðni slær í gegn Guðni Th. Jóhannesson þykir vera á réttri leið í embætti forseta Íslands. Hann hefur lagt áherslu á að vera alþýðlegur forseti og það hefur sannarlega tekist. Nýjasta dæmi þess er að hann afþakkar fylgd úr landi, en fram að þessu hefur verið venja að einn af hand­ höfum forsetavalds fylgi forseta til og frá Keflavíkurflugvelli þegar hann fer utan í embættiserindum. Siðurinn hefur því verið lagður af. Bónuskóngur í kennslu Jakob Ásmundsson, sem lét af störfum sem forstjóri Straums fjárfestingabanka sumarið 2015, hefur störf á nýjum vettvangi næstkomandi haust en Jakob hefur fengið stöðu lektors við Við­ skiptafræðideild Háskóla Íslands þar sem hann mun kenna nám­ skeiðið hagfræði og stærðfræði fjármálamarkaða. Jakob var talsvert í fréttum á liðnu ári eftir að DV greindi frá því að eignaumsýslufélagið ALMC myndi greiða samtals meira en þrjá milljarða króna í bónus til Jakobs, sem var áður fjármálastjóri ALMC, og annarra lykilstjórnenda félagsins. Bónus­ greiðslan var innt af hendi í desember síðstastliðnum og fékk Jakob í sinn hlut mörg hundruð milljónir króna. Líkaminn lætur mig dansa Luis Lucas Antónió Cabambe er gagntekinn af dansi. – DV Sími: 562 5900 www.fotomax.is Yfirfærum yfir 30 gerðir myndbanda, slides og fleira Björgum minningum Persónulegar gjafir við öll tækifæri Allt til að merkja vinnustaðinn B ömmer“ og „tóm skel“ segir Össur Skarphéðinsson, hinn skeleggi þingmaður Samfylk­ ingarinnar um prófkjör Pírata. Þar hittir þingmaðurinn naglann á höfuðið. Píratar vilja vera öflug lýðræðisleg fjöldahreyfing en raunveruleikinn kann að vera annar – eða hver er skýringin á því að svo fáir aðrir en frambjóðendur og ættingjar þeirra og vinir sáu sér fært að taka þátt í prófkjörum flokksins? Tölurnar eru æpandi og ættu að hljóma eins og viðvörunarbjöllur í eyrum Pírata. Í prófkjöri Pírata í Norðausturkjördæmi voru 14 í framboði og 78 kusu. Í Suðurkjördæmi voru 25 frambjóðendur og 113 greiddu atkvæði. Á höfuðborgarsvæðinu voru frambjóðendur 105 og atkvæði greiddu 1033. Þessar tölur benda nú ekki beinlínis til þess að stuðningsmenn Pírata séu á hverju strái. Miklu fremur virtust kjósendur einskorðast við frænd­ garðinn og nánustu vini. Þátttakan var alls staðar slæm og fyrir utan höfuð borgarsvæðið var hún eins og í þokkalegri fermingar­ veislu eða fimmtugsafmæli. Kappsfullir frambjóðendur í prófkjöri, hvar í flokki sem þeir standa, leita vitaskuld til síns innsta hrings eftir stuðningi og það fólk sinnir kallinu og greiðir fjöl­ skyldumeðlimi og vini atkvæði. Þetta hefur greinilega gerst hjá Pírötum – og skera þeir sig þá í engu frá öðrum flokkum hvað það varð­ ar að smala sínum mönnum á kjör­ stað. Þarna eru hvorki ný né breytt vinnubrögð á ferð. Hins vegar er það svo að þeir sem fara í prófkjör hljóta að vonast eftir því að framboð þeirra mælist svo vel fyrir að það séu mun fleiri en bara ættingjar og vinir sem vilji styðja þá. Þetta hefur ekki gerst í prófkjörum Pírata. Það má vel hugsa sér, þótt það eitt og sér skýri ekki lélega þátttöku, að einhverjum hafi þótt kosningakerfið sem stuðst var við í prófkjörunum of flókið og því ekki náð að greiða atkvæði. Ef svo er þá er fjarska ein­ kennilegt að flokkur sem er sannar­ lega ekki gefinn fyrir bákn og skrif­ finnsku og fylgir gagnsæi skuli hvorki hafa mátt né getu til að koma upp skilvirku kosningakerfi. Hin litla þáttaka í prófkjörum Pírata er vandræðaleg staðreynd. Píratar hafa farið með himinskautum í skoðanakönnunum og munu örugglega auka fylgi sitt í næstu kosningum, hversu mikið er hins vegar afar óljóst. Það er engan veginn tryggt að það mikla fylgi sem mælst hefur í könnunum komist í höfn. Margt bendir einmitt til að svo verði ekki. Þau eru ansi mörg dæm­ in um það að flokkur sem hafi verið á fljúgandi ferð í skoðanakönnunum brotlendi í kosningum. Forsvars­ menn Pírata hafa sagt að þeir búist ekki við að ná því mikla fylgi sem skoðanakannanir sýna. Þar sýna þeir lofsvert raunsæi. Hin litla þátt­ taka í prófkjörum Pírata bendir til að yfirburðastaðan sem kannanir hafa sýnt sé ekki í hendi. Niður­ staðan gæti jafnvel orðið í ætt við „bömmer.“ n Frændgarður Pírata Íslenska þjóðfylkingin Þjóðernissinnar komu saman á Austurvelli á mánudag, þar sem þeir mótmæltu nýjum útlendingalögum – og mættu viðspyrnu. mynd ÞormAr ViGnir GunnArsson Leiðari Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is Myndin „Píratar vilja vera öflug lýð- ræðisleg fjöldahreyfing en raunveruleikinn kann að vera annar. Býsna miklar umbúðir um ekki neitt Árni Páll Árnason um kynntar aðgerðir í húsnæðismálum. – RÚV Ég trúi á almætti, skapara og endurfundi Guðni Th. Jóhannesson forseti er utan trúfélaga. – Í ræðu á Hólahátíð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.