Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2016, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2016, Blaðsíða 12
Vikublað 16.–18. ágúst 201612 Fréttir Verið ávallt velkomin Almar bakari Bakarí og kaffihús Sunnumörk Opið frá 7-18 mánudaga til laugardaga og sunnudaga frá 8-17 Brauðin í okkar handverksbakaríi fá rólega og góða meðhöndlun. Þau eru kælihefuð í allt að 18 tíma og því notum við engan viðbættan sykur, minna salt og minna ger í hvert og eitt brauð. Með þessari meðferð verða þau bragðbetri og hollari. Nýjasta brauðið er súrdeigsbrauðið sem er steinbakað og súrinn lagaður af bakaranum. Það heitir Hengill og er bragðmikið og öflugt brauð með þykkri skorpu. 36 á annnarri 32 á hinni IP Dreifing | www.hrefna.is | hrefna@hrefna.is | sími: 577-3408 Farðu nýjar leiðir og prófaðu ferskar sérvaldar hrefnulundir á grillið eða á pönnuna snöggsteiktar að hætti meistarakokka að sakna þeirra mjög og því pantaði ég far út til Spánar þann 9. apríl og ákvað að taka móður mína með sem leynigest. Ég tilkynnti börnunum mínum þetta í gegnum Facetime þann 4. apríl og voru þau mjög spennt að heyra að aðeins fimm dagar væru í að þau myndu hitta pabba sinn,“ segir Garðar. Að hans sögn átti dóttir hans erfitt með að halda aftur af gleðitárum þegar hún fékk fréttirnar. Þegar út var komið fór Garðar spenntur að heimili barnsmóður sinnar og barna ásamt móður sinni. „Ég hafði áður ítrekað reynt að ná í hana án árangurs. Þegar við kom­ um þá virtist enginn vera heima. Ég stökk yfir hlið til þess að hringja dyrabjöllunni en fékk ekkert svar. Við gengum síðan niður að klúbb­ húsi við nærliggjandi golfvöll til að athuga hvort börnin mín væru þar ásamt móður sinni en þegar við komum til baka að húsinu er lög­ reglubíll mættur á vettvang,“ segir Garðar. Að hans sögn vildu lögreglu­ mennirnir ólmir sjá vegabréf hans og þegar því var lokið kröfðust þeir þess að hann kæmi niður á lögreglustöð. Tungumálaörðugleikar komu að sögn í veg fyrir að Garðar skildi af hverju þjónar réttvísinnar ætluðust til þess en hann ákvað að hlýða. Hann fékk að keyra á eftir þeim ásamt móð­ ur sinni í bílaleigubíl en þegar hann kom á lögreglustöðina var hann um­ kringdur fimm lögreglumönnum og umsvifalaust handtekinn. „Ég var gjörsamlega forviða. Það eina sem ég fékk upplýsingar um var að það væri vegna ofbeldis og síðan var mér stungið í ógeðslega skítugan einangr­ unarklefa þar sem var niðamyrkur og ekkert til taks annað en ískaldur steinbekkur,“ segir Garðar. Nálgunarbann á sólarhring Alls liðu fjórar klukkustundir þangað til Garðar fékk að tala við lögmann og túlk. Á meðan beið móðir hans, gjör­ samlega í losti, á lögreglustöðinni. Hún komst þó í síma og hringdi í föð­ ur Garðars sem lagði þegar af stað frá Vestmannaeyjum og var kominn á vettvang sólarhring síðar. Í ljós kom að barnsmóðir Garðars hafði lagt inn kæru tveimur dögum fyrr, þann 7. apríl, fyrir að hóta henni og börn­ unum lífláti auk þess að beita hana andlegu ofbeldi í lengri tíma. Þá var einnig sérstaklega tekið fram að Garðar hefði kallað hana hóru, sem er ólöglegt á Spáni. Innan við sólarhring síðar, þann 8. apríl, hafði dómari dæmt Garðar í nálgunarbann gegn barnsmóður sinni og börnunum, bann sem hann átti að hafa gerst brotlegur gegn þegar hann hafði reynt að heim­ sækja fjölskylduna þann 9. apríl. „Ég fékk algjört áfall þegar ég heyrði þetta enda ásakanirnar uppspuni frá rótum. Í skýrslu lögreglu kom fram að sambýliskona mín hefði engar sannanir, hvorki afrit af samskiptum né vitni um hið meinta ofbeldi. Þá er falið klárt mannréttindabrot í því að mér hafi ekki verið tilkynnt um nálg­ unarbannið sem var grundvöllur þess að ég var handtekinn. Ég er ákveðinn í að ég mun leita réttar míns út af þessari meðferð,“ segir Garðar. Má ekki hafa nein samskipti við börnin sín Alls þurfti hann að dúsa í einangrunar­ klefanum í tvo sólarhringa. Það reyndist honum erfitt. „Ég var fluttur í annað fangelsi part úr degi. Þá í járn­ um í fylgd tveggja lögreglumanna, eins og stórglæpa maður. Síðan var ég aftur fluttur í sama einangrunar­ klefa. Þetta voru ótrúlegar aðstæður að vera í og ég skildi ekki upp né nið­ ur í hverju ég var lentur,“ segir Garðar. Eftir yfirheyrslu í dómshúsi var hann látinn laus en var tilkynnt að hann mætti ekki koma nær barnsmóður og börnum en 500 metra. „Ég má ekki hafa samband við þau í gegnum nein samskiptatæki, hvorki sms né tölvu­ póst, annars rýf ég nálgunarbannið og á í hættu að lenda aftur í steinin­ um,“ segir Garðar. Eini ljósi punktur ferðarinnar var sá að foreldrar hans fengu að hitta barnabörn sín undir eftirliti barnsmóðurinnar stutta stund og þar urðu fagnaðarfundir. „Þau fengu að vera með þau í klukku­ tíma. Þar spurðu þau mikið um mig en mín fyrrverandi fór fram á að því yrði svarað á þá leið að ég væri við vinnu á Íslandi. Það gerðu for­ eldrar mínir enda vildu þau tryggja að þau gætu hitt börnin aftur,“ seg­ ir Garðar. Faðir hans þurfti að ferð­ ast til Íslands aftur vegna vinnu og skömmu síðar brá móðir hans á það ráð að hitta barnabörn sín þegar þau komu úr skólanum. „Hún var búin að fá þau skilaboð frá barnsmóður­ inni að það yrðu ekki frekari heim­ sóknir. Mamma ákvað í samráði við mig að hlusta ekki á þetta og beið við skóla barnanna í lok skóladags ásamt íslenskri vinkonu, sem býr úti og reyndist okkur stoð og stytta. Mamma náði að hitta börnin og gefa þeim sumar gjafir og heimabakaða lagköku, sem þau höfðu sérstaklega beðið um frá Íslandi. Barnsmóður mína hafði borið að skömmu síðar, hún lét þetta yfir sig ganga á staðnum en þegar mamma hafði kvatt börn­ in og var komin til baka þar sem við gistum þá fékk hún símhringingu frá minni fyrrverandi þar sem öskrað var á hana að lögreglunni yrði sigað á mömmu og óskað eftir nálgunar­ banni ef þetta gerðist aftur. Það er síðasta skipti sem nokkur í fjöl­ skyldunni hefur hitt börnin eða heyrt í þeim,“ segir Garðar. Bið eftir stofnunum Í dag einkennir bið líf Garðars og á því er hann afar þreyttur. „Nálgunar­ banninu á Spáni var áfrýjað 14. apríl síðastliðinn og við bíðum eftir því að það verði tekið fyrir. Saksóknari og spænskir dómstólar hafa hent mál­ inu á milli sín og ekkert gerist. Á með­ an er mér neitað um öll samskipti við börnin mín sem ég þrái að sjá aftur,“ segir Garðar. Hann furðar sig einnig á vinnubrögðum íslenskra stofnana sem að hans sögn einkennast af full­ komnu tómlæti. „Þjóðskrá tók rúman mánuð í að tilkynna mér að lögheim­ ilisgjörningurinn yrði ekki ógiltur. Ég kærði það til innanríkisráðuneytisins en þaðan hefur lítið heyrst. Þá hef ég einnig óskað eftir aðstoð utanríkis­ ráðuneytisins út af deilunum en það virðist ekki ætla að snerta á þessu. Það eru fjölmörg dæmi þess að ráðu­ neytið aðstoði Íslendinga í forræðis­ deilum við erlenda ríkisborgara en þegar íslenskur ríkisborgari nánast stelur börnum frá öðrum íslensk­ um ríkisborgara þá er ekkert að gert. Það er verið að brjóta á mannréttind­ um barnanna með því að svipta þau samvistum við föður sinn en öllum virðist vera sama,“ segir Garðar. n Hafnaði boði um að segja sína hlið Garðar Heiðar hefur lagt fram marg- vísleg gögn til stuðnings sögu sinni. Meðal annars umsókn barnsmóður sinnar til Þjóðskrár, ákærur og dóm um nálgunarbann frá Spáni og vottorð um geðheilbrigði sitt, eitt frá geðlækni og annað frá sálfræðingi. Sérfræðingarnir eru á einu máli um að hann hafi þjáðst af miklu álagi á meðan sambandsslitin gengu yfir en að öðru leyti sé hann fullkomlega heil- brigður. Þá leyfði Garðar blaðamanni að lesa átakanlegt bréf sem hann skrifaði barnsmóður sinni þegar hann taldi fokið í flest skjól. DV setti sig í samband við barnsmóður Garðars en hún hafnaði boði um að stíga fram með sína hlið þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir. Garðar Heiðar Hefur ekki hitt börnin sín í tæpt hálft ár og hefur fengið nóg af seinagangi stjórnvalda við úrlausn sinna mála. MyNd ÞorMar ViGNir GuNNarssoN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.