Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2016, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2016, Side 8
Vikublað 16.–18. ágúst 20168 Fréttir Þingmenn setið eftir í launaskriði n Hækkað um 130 þúsund krónur á mánuði á kjörtímabilinu en ekki fylgt vísitölu launa Þ rátt fyrir að kjararáð hafi hækkað grunnlaun þing- manna um rúm sjö prósent í sumar og þau hækkað um ríflega 21 prósent á núver- andi kjörtímabili þá hafa laun þing- manna engu að síður setið eftir sé miðað við þróun launavísitölu frá mars 2013 til júní 2016. Sagði launin of lág Karl Garðarsson, þingmaður Fram- sóknarflokksins, bættist á sunnu- daginn í hóp þeirra þingmanna sem stigið hafa fram á umliðnum árum og lýst þeirri skoðun sinni að laun sín væru of lág. Þingmenn sem í gegnum tíðina hafa viðrað þá skoðun hafa oft komist að því að hún er ekki vinsæl meðal almennings. „Ég er þeirrar skoðunar að laun þingmanna eru of lág,“ sagði Karl í útvarpsþættinum Sprengisandi á sunnudag þar sem hann upp- lýsti einnig að hann væri á stríp- uðum launum sem þingmaður og fengi rúmar 500 þúsund krónur út- borgaðar, og ekkert fyrir nefndasetu ólíkt því sem margir virtust halda. Þá bætti hann við að það orkaði tvímæl- is að embættismenn í ríkisstofnunum væru með kannski 50 prósent hærri laun en ráðherrar, svo dæmi væri tek- ið. Launastrúktúrinn væri óeðlilegur. Þingmenn setið eftir Þingfararkaup, það er grunnlaun þingmanna, er í dag 762.940 krónur eftir ákvörðun kjararáðs um 7,15 prósenta almenna hækkun á laun- um þeirra sem undir ráðið heyra, 1. júní síðastliðinn. Í mars 2013, mánuði fyrir síðustu þingkosningar, var þingfarar- kaup 630.024 krónur. Þrátt fyrir að mánaðar launin hafi á þessum rúmu þremur árum hækkað um rúmar 130 þúsund krónur á mánuði, eða 21 prósent, þá segir það ekki alla söguna, því launaskrið hefur verið í þjóðfélaginu á þeim tíma og virðast þingmenn ekki hafa fylgt því. Ef tekið er tillit til þróunar launa- vísitölu á sama tímabili þá hefur hún hækkað um 27 prósent á sama tímabili, samkvæmt vef Hagstofu Íslands. Hefðu grunnlaun þing- manna fylgt launavísitölu á um- ræddu tímabili ættu þau að vera 804.540 krónur á mánuði, eða rúm- um 40 þúsund krónum hærri en þau eru í dag. Burtséð frá tilfinningu fólks eða skoðunum á launakjörum þingmanna, þá sýnir þetta að þau gætu verið hærri þó að þingmenn séu fjarri því að vera láglaunafólk. Til samanburðar þá má geta þess að meðalheildarlaun félagsmanna VR samkvæmt launakönnun félagsins voru 548 þúsund krónur á mánuði í fyrra. Kemur reglulega upp Við grunnlaun þingmanna geta síð- an bæst margvíslegar álagsgreiðslur og sporslur sem geta hækkað grunn- laun þeirra nokkuð. Til dæmis fær þingmaður, sem ekki er ráðherra en er formaður flokks sem fékk þrjá eða fleiri þingmenn kjörna, 50 prósenta álagsgreiðslu ofan á þingfararkaup- ið. Formenn fastanefnda fá greitt 15 prósenta álag á þingfararkaup sem og formenn þingflokka, að ógleymd- um húsnæðis- og dvalarkostnaði sem þingmenn utan höfuðborgar- svæðisins eiga rétt á. Sem fyrr segir er Karl ekki fyrsti þingmaðurinn til að gera athugasemdir við laun þingmanna. Tryggvi Þór Herbertsson, þáver- andi þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins, sagði árið 2010 að lág laun þing- manna opnuðu á spillingu. Á Beinni línu hjá dv.is árið 2012 sagði hann að ein milljón á mánuði væri hæfi- leg launatala fyrir þingmenn. Í fyrra gerði Sigurður Örn Ágústsson, vara- þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lág laun þingmanna að umtalsefni í ræðu sinni á þingi og kvaðst óttast atgervisflótta úr stjórnmálum. n Hæstu launin í Noregi Grunnlaun þingmanna í nokkrum nágrannalöndum n Noregur: 75.577 NOK eða 1.084.756 kr. n Bretland: 6.246 GBP eða 952.515 kr. n Danmörk: 52.076 DKK eða 923.150 kr. n Svíþjóð: 62.400 SEK eða 870.230 kr. Birt með þeim fyrirvara að hér er aðeins verið að bera saman grunnlaun um- reiknuð í íslenskar krónur miðað við gengi viðkomandi gjaldmiðla. Þættir á borð við kaupmátt launa í hverju landi hafa ekki verið teknir með í reikninginn. Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Setið eftir Þegar þing var sett árið 2013 var þingfararkaup 630.024 krónur en er í dag 762.940 krónur. Þrátt fyrir hækkunina hefur þing- fararkaup ekki fylgt þróun launavísitölu og þingmenn því setið eftir. MyND Sigtryggur Ari Karl garðarsson Þingmaður Framsóknarflokksins segist þeirrar skoðunar að laun þing- manna séu of lág og óeðlilegt sé að embættismenn ráðuneyta séu í einhverjum tilfellum mun launahærri en ráðherrar. MyND Sigtryggur Ari „Ég er þeirrar skoðunar að laun þingmanna eru of lág. Fallegir að innan sem utan Gluggagerðin framleiðir fyrsta flokks tréglugga og hurðir þar sem saman fer fallegt útlit, góð ending og vandaður frágangur. Gluggagerðin | Súðarvogi 3–5 | 104 Reykjavík | Sími 566 6630 | gluggagerdin.is SÉRSMÍÐAÐIR ÍSLENSKIR GLUGGAR Vandaðir gluggar sem hannaðir eru til að þola íslenska veðráttu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.