Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2016, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2016, Side 10
Vikublað 13.–15. september 201610 Fréttir A llar eignir Atorku Group hf. hafa verið seldar og gert er ráð fyrir að eignarhaldsfé- laginu verði slitið fyrir ára- mót. Hluthafar þess tóku ákvörðun um félagsslitin í júlí síð- astliðnum og gert er ráð fyrir að söluandvirði síðustu eignar Atorku verði greitt út við slitin. Þriggja manna stjórn Atorku var þá kjörin í skilanefnd félagsins. Meðlimur hennar segir kröfuhafana sem tóku félagið yfir í ársbyrjun 2010 hafa náð „ásættanlegum endurheimtum“. Sögu Atorku Group, sem var um árabil eitt af umsvifamestu fjár- festingarfélögum landsins og nær aftur til ársins 1990, lýkur því á næstu mánuðum. „Nú er búið að selja allar eignirn- ar og ferlið farið af stað sem gengur út á að greiða hluthöfum þá peninga sem þarna sitja eftir og slíta félaginu. Gangi allt eins og að er stefnt mun þetta félag tilheyra fortíðinni um áramótin,“ segir Einar Páll Tamimi, lögmaður og meðlimur í skilanefnd Atorku Group. „Ásættanlegt“ Einar Páll hefur ásamt Halldóri Bjarkari Lúðvígssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra fjárfestinga- bankasviðs Arion banka, setið í stjórn Atorku síðan kröfuhafarnir eignuðust allt hlutafé félagsins. Eigendahópur þess skiptist gróflega í þrjár blokkir; Íslandsbanka/Glitni, hóp sem telur yfir tuttugu lífeyris- sjóði, og aðra hluthafa og þar á með- al Arion banka. Einar sat í stjórninni fyrir hönd lífeyrissjóðanna, Halldór fyrir Arion banka og Snæbjörn Sig- urðsson, starfsmaður Íslandsbanka, fyrir sinn vinnustað. Atorka hefur síðustu sex ár gegnt hlutverki eignarhaldsfélags sem hef- ur séð um varðveislu og ráðstöfun á eignasafni þess. Síðasta eign félags- ins, hlutabréf í alþjóðlega flutninga- fyrirtækinu InterBulk, sem þáver- andi eigendur Atorku keyptu fyrst í vorið 2006, var seld í apríl síðastliðn- um. „Það var síðasta eignin sem félag- ið átti og var þyngst í sölu. Við höfum greitt þetta út eftir því sem eignir hafa fallið til. Miðað við mörg önnur félög eru menn að ná ásættanlegum endurheimtum miðað við hvernig eiginfjárstaðan var á félaginu þegar kröfuhafar tóku það yfir,“ segir Einar Páll. Metið á 37 milljarða Atorka Group var um árabil alþjóðlegt fjár festingarfélag sem keypti í fyrirtækjum sem voru talin hafa sérstök tæki- færi til vaxtar á heimsmark- aði. Félagið var skráð í Kaup- höll Íslands en það hét áður Íslenski hluta- bréfasjóðurinn og var stofnað árið 1990 af Landsbréf- um, dótturfélagi Landsbank- ans. Tólf árum síðar samþykktu hluthafar þess að breyta áherslum í rekstri og fór þá Þorsteinn Vilhelmsson, fyrr- verandi stjórnarformaður Atorku Group og síðar stærsti hluthafi fyrir- tækisins, inn í eigendahópinn. Þor- steinn hafði nokkrum árum áður selt hlut sinn í útgerðarfyrirtæk- inu Samherja sem hann keypti árið 1983 ásamt bróður sínum Krist- jáni Vilhelmssyni, núverandi fram- kvæmdastjóra útgerðarsviðs Sam- herja, og Þorsteini Má Baldvinssyni, forstjóra þess. Nafni félagsins var í kjölfarið breytt og tveimur árum síðar yfirtók Atorka Sæplast hf. sem lagði grunninn að plastframleiðslufyrirtæk- inu Promens. Atorka jók í kjölfarið áherslu sína á fjárfestingar erlendis. Hlutabréf Atorku náðu hæstu hæðum í október 2007 þegar verðmæti þeirra námu 37 milljörðum króna. Renewable Energy Reso- urces ehf. (RER), sem hélt utan um 41% eignarhlut Atorku í Geysi Green Energy og allt hlutafé í Eigendurnir fá greitt og slíta Atorku n Búið að selja síðustu eign Atorku Group n 26 ára sögu félagsins lýkur um áramótin „Gangi allt eins og að er stefnt mun þetta félag til- heyra fortíðinni um áramótin. Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Situr í skilanefndinni Lögmaðurinn Einar Páll Tamimi segir útlit fyrir að Atorku Group verði slitið um næstu áramót. Verum þjóðleg til hátíðabrigða Frakkastíg 10 | Sími 551 3160 | gullkistan@vortex.is | www.thjodbuningasilfur.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.