Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2016, Qupperneq 13
Vikublað 13.–15. september 2016 Fréttir 13
Retor Fræðsla - Hlíðasmára 8, Kópavogi - Sími: 519 4800 - www.retor.is
Íslensku-
kennsla
fyrir erlent
starfsafl
36 á annnarri
32 á hinni
IP Dreifing | www.hrefna.is | hrefna@hrefna.is | sími: 577-3408
Farðu nýjar leiðir og prófaðu ferskar sérvaldar
hrefnulundir á grillið eða á pönnuna
snöggsteiktar að hætti meistarakokka
Bjóða lífeyrissjóðum að kaupa
20–40% hlut í arion Banka
n Kaupþing vill selja innan næstu tveggja mánaða n Kröfuhafar kaupi 10–20% hlut n Stjórnandi hjá Kaupþingi í stjórn Arion
Komi sú staða upp að til standi að
selja einhvern hlut Kaupþings í Arion
banka til fjárfesta á mun lægra verði
en bókfært eigið fé bankans þá geta
íslensk stjórnvöld gripið til þess ráðs að
stíga inn í söluferlið og nýtt sér ákvæði
um forkaupsrétt. Í dag á ríkið fyrir 13%
hlut í Arion banka á meðan eignarhlutur
Kaupþings er 87%.
Samkvæmt þeim stöðugleikaskilyrð
um sem kröfuhafar Kaupþings féllust á í
tengslum við nauðasamning slitabúsins
í fyrra, eins og áður hefur verið upplýst
um í DV, er að finna skilmála sem veita
stjórnvöldum heimild til að ganga inn
í kaup á hlut í bankanum í því skyni að
verja fjárhagslega hagsmuni ríkisins
við sölu á Arion banka. Þannig mætti
ímynda sér að stjórnvöld kysu að sitja
ekki aðgerðarlaus hjá ef Kaupþing
hyggst til dæmis selja hlut til lífeyris
sjóða og annarra fjárfesta á genginu 0,6
miðað við bókfært eigið fé.
Íslenska ríkið á sem kunnugt er mik
illa hagsmuna að gæta við sölu á Arion
banka vegna afkomuskiptasamnings
sem gerður var við kröfuhafa slitabúsins
samhliða því að þeir féllust á stöðug
leikaskilyrði stjórnvalda. Ef hlutur
Kaupþings verður seldur í samræmi við
bókfært eigið fé Arion banka, eins og
það var um mitt þetta ár, þá mun ríkið fá
um 117 milljarða króna í sinn hlut. Hlut
hafar Kaupþings myndu á móti fá um
56 milljarða og er þeim heimilt að skipta
allri þeirri fjárhæð í erlendan gjaldeyri
og flytja úr landi. Söluandvirðið sem
rennur til ríkisins verður hins vegar 85
milljarðar ef hluturinn selst á gengi sem
nemur 0,6 miðað við núverandi bókfært
eigið fé bankans. Hæstaréttarlögmað
urinn Steinar Þór Guðgeirsson, sem var
formaður skilanefndar Kaupþings á
árunum 2008 til 2012 og hefur unnið
sem ráðgjafi Seðlabankans síðustu
misseri, er sérstakur eftirlitsmaður inni
í Kaupþingi og á að tryggja að ekki verði
gengið á hagsmuni ríkisins í söluferlinu.
Bandaríkjamaðurinn John P. Madden, sem
tók til starfa í framkvæmdastjórn Kaup
þings fyrr á þessu ári, mun taka sæti í stjórn
Arion banka á á hluthafafundi bankans sem
fer fram næstkomandi fimmtudag. Verður
stjórn bankans þá í kjölfarið skipuð átta
manns. John P. Madden verður þriðji erlendi
stjórnarmaður Arion banka og jafnframt
sá eini í stjórn bankans með bein tengsl við
Kaupþing. Ásamt því að vera einn af æðstu
stjórnendum Kaupþings þá situr hann
einnig í stjórn norska olíufélagsins Noreco.
John P. Madden, sem stýrði um árabil
framtakssjóðum hjá Arcapita Group í
London, var ráðinn til Kaupþings fyrir
tilstuðlan Keith Magliana, sjóðsstjóra vog
unarsjóðsins Taconic Capital, áhrifamesta
hluthafa Kaupþings, eftir að slitabúið
kláraði nauðasamninga undir lok síðasta
árs. Skipan hans í stjórn Arion banka, sem
á sér nokkurn aðdraganda, er til
marks um að stjórnendur og hlut
hafar Kaupþings vilji hafa meira
afgerandi áhrif innan stjórnar
bankans samhliða því að þeir
vinna að því að selja 87% hlut
félagsins á næstu misserum,
að sögn þeirra sem þekkja vel til
innan Kaupþings.
Eignarhlutur Kaupþings í Arion
banka er verðmætasta eign félags
ins. Eftir að hafa skilað tæplega
50 milljarða króna
hagnaði á árinu 2015
þá hefur afkoma
bankans það sem
af er þessu ári valdið vonbrigðum. Þannig
var hagnaður bankans á fyrri árshelmingi
9,8 milljarðar króna samanborið
við 19,3 milljarða á sama tímabili
fyrir ári. Tekjur af fjárfestinga
starfsemi voru undir vænting
um og þá þurfti bankinn að
bókfæra umtalsvert tap af
hlutabréfaeign sinni í skráðum
félögum. Hagnaður bankans
af reglulegri starfsemi minnk
aði um fimm milljarða frá fyrra ári
og var 2,8 milljarðar á fyrstu sex
mánuðum ársins. Arðsemi
eigin fjár af reglulegri
starfsemi var því
aðeins 2,8% á
tímabilinu.
John Madden í stjórn Arion banka
meðal annars í sér að bjóða sjóðun-
um að kaupa 20 til 40% hlut í bank-
anum. Sumir lífeyrissjóðanna telja
hugmyndir Kaupþings um að stefna
að því að selja stóran hlut í bank-
anum innan næstu tveggja mánaða
ekki koma til að ástæðulausu. Þær
séu til marks um að Kaupþing telji
mikilvægt að ganga frá sölu áður en
ný ríkisstjórn tekur við völdum eftir
kosningar til Alþingis þar sem hlut-
hafar félagsins óttist hvaða áhrif það
hefði fyrir verðmæti bankans og
söluferlið almennt ef næsta stjórn
verður undir forystu Pírata. Stjórn-
endur og ráðgjafar Kaupþings gefa
hins vegar lítið fyrir slíka umræðu,
samkvæmt heimildum DV. Kaup-
þing sé einfaldlega tilbúið að hefja
formlegt söluferli á hlut sínum í
Arion banka og þrátt fyrir væntingar
um að stíga stórt skref við að selja
verulegan eignarhlut strax í nóvem-
ber næstkomandi þá hafi sú tíma-
setning ekkert með boðaðar alþing-
iskosningar að gera.
Undir tímapressu
Rétt eins og greint var frá í DV í síð-
ustu viku þá hefur Kaupþing fengið
Benedikt Gíslason, fyrrverandi að-
stoðarmann og ráðgjafa fjármála- og
efnahagsráðherra, til liðs við sig sem
ráðgjafa við söluferlið á Arion banka.
Benedikt var einn helsti ráðgjafi ís-
lenskra stjórnvalda við vinnu að
áætlun um losun fjármagnshafta síð-
ustu ár og bætist hann í hóp fulltrúa
frá bandaríska fjárfestingarbankan-
um Morgan Stanley sem hefur um
talsvert skeið unnið að undirbún-
ingi að sölu á eignarhlut Kaupþings
í bankanum.
Ekki þarf að koma á óvart að
stjórnendur Kaupþings vilji núna
hefja sem fyrst sölu á hlut félags-
ins í Arion banka. Eigendur Kaup-
þings hafa ríka hagsmuni af því
að þeim takist að selja stóran hlut
í Arion banka áður en kemur að
fyrsta gjalddaga á 84 milljarða
króna veðskuldabréfi sem Kaup-
þing gaf út til stjórnvalda sem hluta
af stöðug leikaframlagi slitabúsins
undir lok síðasta árs. Skuldabréfið
er til þriggja ára, sem er í samræmi
við þann tímaramma sem hluthaf-
ar Kaupþings hafa til að selja bank-
ann, og ef þeir hafa ekki greitt inn á
bréfið fyrir janúar 2018 þarf Kaup-
þing að inna af hendi samtals um
níu milljarða króna til ríkisins. Sú
fjárhæð jafngildir vaxtakostnaði
af skuldabréfinu yfir tveggja ára
tímabil.
Skuldabréfið ber 5,5% vexti og er
Kaupþingi aðeins heimilt að greiða
upp bréfið fyrir andvirði af sölu á
hlut félagsins í Arion banka. Áætlan-
ir stjórnenda Kaupþings gera ráð fyr-
ir að félagið verði búið að greiða upp
skuldabréfið áður en kemur að fyrsta
gjalddaga þess og því er ljóst að þeir
þurfa að selja hlut í bankanum fyrir
að lágmarki 84 milljarða króna áður
en sá tímapunktur rennur upp í árs-
lok 2017.
Heildareignir Kaupþings námu
um mitt þetta ár samtals 475 millj-
örðum króna og er 87% hlutur í
Arion banka verðmætasta eign fé-
lagsins. Stærsti einstaki hluthafi
Kaupþings, og jafnframt langsam-
lega áhrifamesti eigandi félagsins,
er bandaríski vogunarsjóðurinn
Taconic Capital en það er sjóðsstjór-
inn Keith Magliana sem fer fyrir fjár-
festingu sjóðsins í Kaupþingi. n
Ríkið með forkaups-
rétt að hlut Kaupþings
Keith Magliana
Fékk John P. Madden
til Kaupþings.
Steinar Þór Guðgeirsson Eftirlits
maður ríkisins inni í Kaupþingi