Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2016, Page 19
Vikublað 13.–15. september 2016 Lífsstíll 15
I
ngibjörg Ásta Pétursdóttir er
mörgum kunn en hún rekur Hótel
Flatey á Breiðafirði og rak í langan
tíma Mensu Café og Mensu veislu-
þjónustu. Nú er komin út fyrsta
matreiðslubók Ingibjargar, Mensa, og
undirtitill er Matur, minningar og litlir
hlutir sem skipta máli. Crymogea gef-
ur út þessa óvenjulegu matreiðslu-
bók en auk uppskriftanna er í bókinni
sögð saga Ingibjargar sjálfrar. Bókin
er ríkulega myndskreytt en fjöldi ljós-
myndara kom að verkinu og þar eru
einnig myndir úr fjölskyldualbúmi
Ingibjargar.
„Bókin var í smíðum í mörg ár og
elstu myndirnar í henni voru teknar
fyrir tólf árum af frönskum ljós-
myndara. Ég hreifst af náttúrumynd-
um hans sem ég sá á sýningu hér á
landi og spurði hann hvort hann
vildi taka matarmyndir fyrir mig í
matreiðslubók. Ég eldaði og hann
tók myndir en vinnan náði aldrei
lengra. Það var svo miklu flóknara
að gera bók en ég hafði gert mér
grein fyrir,“ segir Ingibjörg. „Svo leið
og beið og ekkert bar til tíðinda fyrr
en vinur minn Ámundi Sigurðsson
sem er grafískur hönnuður sagðist
vilja gera bók með mér. „Sjáum til,“
sagði ég sem hafði alltaf svo mikið að
gera. Það liðu nokkur ár en svo hitti
ég Ámunda og konu hans í stórversl-
un og við tókum tal saman. Þá kom
maðurinn minn aðvífandi og spurði:
„Eruð þið að tala um að búa til bók?“
Við Ámundi litum hvort á annað og
sögðum: „Já, gefum út bók.“
Um uppskriftirnar segir Ingibjörg:
„Þær eru mjög klassískar og ég
reyndi að hafa þær ekki of flóknar. Ég
bjó í Frakklandi í tólf ár og þarna eru
til dæmis klassískir franskir réttir, eins
og hani í rauðvínssósu sem margir
halda að sé mjög flókið að gera. Ég
hélt það líka í upphafi og í fyrstu upp-
skrift sem ég sá að þeim rétti stóð:
Kauptu hana hjá kaupmanninum og
fáðu hjá honum blóð úr hananum
til að dekkja sósuna. Þetta hljómaði
ekki beint einfalt! Í dag notar maður
kjúkling í þessa uppskrift og rauðvín
sem litar sósuna. Þarna er líka upp-
skrift að kanínu í sinnepssósu sem
er mjög góður matur. Svo er upp-
skrift að paellu, graflaxi og ýmiss
konar bökum, svo ég nefni einhver
dæmi um uppskriftir. Sögur og alls
kyns fróðleikur fylgir svo með upp-
skriftunum. Þetta er matreiðslubók
með uppskriftum og minningum.
Hún er fjölbreytt og frábærlega vel
sett saman hjá Ámunda. Ég er alsæl
með útkomuna.“ n
Matur og minningar
n Ingibjörg Ásta sendir frá sér óvenjulega matreiðslubók n Ekki bara uppskriftir
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
„ Í fyrstu uppskrift
sem ég sá að
þeim rétti stóð: Kauptu
hana hjá kaupmanninum
og fáðu hjá honum blóð
úr hananum til að dekkja
sósuna. Þetta hljómaði
ekki beint einfalt.
Ingibjörg Ásta
Pétursdóttir
„Þetta er mat-
reiðslubók með
uppskriftum og
minningum.“
Mynd SIgtryggur ArI
5 5 2 - 6 0 6 05 5 2 - 6 0 6 0
Ugly. is - smiðjUvegi 2 og l angarima 21
LUDVIKSSON EHF - LEDLJÓS
www.ledljos.com * www.ledljós.is * ludviksson@ludviksson.com
S; 565 8911 - 867 8911
V I Ð E R U M Ó D Ý R A R I
E N Þ I G G R U N A R
INNFELLD LEDLJÓS
UTANÁLIGGJANDI LEDLJÓS
FLURLAMPAR - GÖTULÝSING - KASTARAR - TURNAR - SKIPAKASTARAR
LED ljós - spara 80-92% orku
LED ljós spara 80-92% orku
LUDVIKSSON EHF - LEDLJÓS
www.ledljos.com * www.ledljós.is * ludviksson@ludviksson.com
S; 565 8911 - 867 8911
V I Ð E R U M Ó D Ý R A R I
E N Þ I G G R U N A R
INNFELLD LEDLJÓS
UTANÁLIGGJANDI LEDLJÓS
FLURLAMPAR - GÖTULÝSING - KASTARAR - TURNAR - SKIPAKASTARAR
LED ljós - spara 80-92% orku