Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2016, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2016, Qupperneq 19
Vikublað 13.–15. september 2016 Lífsstíll 15 I ngibjörg Ásta Pétursdóttir er mörgum kunn en hún rekur Hótel Flatey á Breiðafirði og rak í langan tíma Mensu Café og Mensu veislu- þjónustu. Nú er komin út fyrsta matreiðslubók Ingibjargar, Mensa, og undirtitill er Matur, minningar og litlir hlutir sem skipta máli. Crymogea gef- ur út þessa óvenjulegu matreiðslu- bók en auk uppskriftanna er í bókinni sögð saga Ingibjargar sjálfrar. Bókin er ríkulega myndskreytt en fjöldi ljós- myndara kom að verkinu og þar eru einnig myndir úr fjölskyldualbúmi Ingibjargar. „Bókin var í smíðum í mörg ár og elstu myndirnar í henni voru teknar fyrir tólf árum af frönskum ljós- myndara. Ég hreifst af náttúrumynd- um hans sem ég sá á sýningu hér á landi og spurði hann hvort hann vildi taka matarmyndir fyrir mig í matreiðslubók. Ég eldaði og hann tók myndir en vinnan náði aldrei lengra. Það var svo miklu flóknara að gera bók en ég hafði gert mér grein fyrir,“ segir Ingibjörg. „Svo leið og beið og ekkert bar til tíðinda fyrr en vinur minn Ámundi Sigurðsson sem er grafískur hönnuður sagðist vilja gera bók með mér. „Sjáum til,“ sagði ég sem hafði alltaf svo mikið að gera. Það liðu nokkur ár en svo hitti ég Ámunda og konu hans í stórversl- un og við tókum tal saman. Þá kom maðurinn minn aðvífandi og spurði: „Eruð þið að tala um að búa til bók?“ Við Ámundi litum hvort á annað og sögðum: „Já, gefum út bók.“ Um uppskriftirnar segir Ingibjörg: „Þær eru mjög klassískar og ég reyndi að hafa þær ekki of flóknar. Ég bjó í Frakklandi í tólf ár og þarna eru til dæmis klassískir franskir réttir, eins og hani í rauðvínssósu sem margir halda að sé mjög flókið að gera. Ég hélt það líka í upphafi og í fyrstu upp- skrift sem ég sá að þeim rétti stóð: Kauptu hana hjá kaupmanninum og fáðu hjá honum blóð úr hananum til að dekkja sósuna. Þetta hljómaði ekki beint einfalt! Í dag notar maður kjúkling í þessa uppskrift og rauðvín sem litar sósuna. Þarna er líka upp- skrift að kanínu í sinnepssósu sem er mjög góður matur. Svo er upp- skrift að paellu, graflaxi og ýmiss konar bökum, svo ég nefni einhver dæmi um uppskriftir. Sögur og alls kyns fróðleikur fylgir svo með upp- skriftunum. Þetta er matreiðslubók með uppskriftum og minningum. Hún er fjölbreytt og frábærlega vel sett saman hjá Ámunda. Ég er alsæl með útkomuna.“ n Matur og minningar n Ingibjörg Ásta sendir frá sér óvenjulega matreiðslubók n Ekki bara uppskriftir Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is „ Í fyrstu uppskrift sem ég sá að þeim rétti stóð: Kauptu hana hjá kaupmanninum og fáðu hjá honum blóð úr hananum til að dekkja sósuna. Þetta hljómaði ekki beint einfalt. Ingibjörg Ásta Pétursdóttir „Þetta er mat- reiðslubók með uppskriftum og minningum.“ Mynd SIgtryggur ArI 5 5 2 - 6 0 6 05 5 2 - 6 0 6 0 Ugly. is - smiðjUvegi 2 og l angarima 21 LUDVIKSSON EHF - LEDLJÓS www.ledljos.com * www.ledljós.is * ludviksson@ludviksson.com S; 565 8911 - 867 8911 V I Ð E R U M Ó D Ý R A R I E N Þ I G G R U N A R INNFELLD LEDLJÓS UTANÁLIGGJANDI LEDLJÓS FLURLAMPAR - GÖTULÝSING - KASTARAR - TURNAR - SKIPAKASTARAR LED ljós - spara 80-92% orku LED ljós spara 80-92% orku LUDVIKSSON EHF - LEDLJÓS www.ledljos.com * www.ledljós.is * ludviksson@ludviksson.com S; 565 8911 - 867 8911 V I Ð E R U M Ó D Ý R A R I E N Þ I G G R U N A R INNFELLD LEDLJÓS UTANÁLIGGJANDI LEDLJÓS FLURLAMPAR - GÖTULÝSING - KASTARAR - TURNAR - SKIPAKASTARAR LED ljós - spara 80-92% orku

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.