Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2016, Blaðsíða 31
Vikublað 20.–21. desember 2016 Menning 27
Thoroddsen sem var
í námi í Kaupmanna-
höfn svo það lá beint
við að ég færi þangað.
Ég fór í framhaldsnám
í Listiðnaðarskólann í
Kaupmannahöfn og var
þar í textíldeild í þrjú ár.
Ég var mjög bjartsýn
þegar ég kom heim eftir
námið úti, ætlaði að
lifa á vefnaði og mála
á kvöldin, en það tókst
ekki á Íslandi. Lúðvíg
Guðmundsson skóla-
stjóri bauð mér kennslu
við Handíða- og myndlistar skólann.
Um tíma kenndi ég þrykk og
munsturgerð í deild sem hét List-
iðnaðardeild kvenna. Á þessum
tíma var allt svo kynskipt, það hefði
enginn karlmaður á Íslandi þorað
að fara í þær greinar sem þar voru
kenndar. Ég var kennari við skólann
í tólf ár með nokkrum hléum því ég
fór í stutt framhaldsnám í París. Árið
1975 ákvað ég svo að helga mig list-
sköpun.“
Verk í minningu dæmdra kvenna
Hvað einkennir verk þín?
„Myndlistarferill minn skiptist
í tímabil. Fyrst kom klaufalega
tímabilið þegar ég var að mála með
olíulitum og vatnslitum og teikna
með blýanti. Svo kom tímabil þegar
ég þrykkti myndverk og þegar ég
eignaðist lítinn vefstól fór ég að vefa
myndverk.
Upp úr 1970 vann ég nokkuð
mikið úr hrosshári og notaði einnig
vír, þráð, kopar og pappír. Svo kom
tímabil, sem stóð nokkuð lengi, þar
sem ég fór að þæfa ull. Það var alltaf
draumur minn að gera stór verk en
ég hafði aldrei haft bolmagn til þess.
Nú fór ég að geta það með því að búa
til í einingar og raða þeim saman.
Eftir það tímabil fór ég að vinna
með örnefni, bæði á pappír og ull.
Ég vann einnig mikið með tónlist
því tónlist hefur alltaf haft mikil
áhrif á verk mín. Ég var alin upp á
heimili þar sem var mikil tónlist,
föðurbróðir minn var organisti og
ég lærði sjálf svolítið. Tónlist var líka
sameiginlegt áhugamál okkar Jóns
Óskars, seinni manns míns. Ég vann
mikið með plexígler og ull og verk-
in fengu nöfn eins og blús, tokkata
og fúga.
Ég gerði líka tilraunir með að
skrifa í verkin því texti var mér alltaf
ofarlega í huga. Það voru kannski
áhrif frá Jóni Óskari og ég varð fyrir
beinum áhrifum af sumum verk-
um hans. Þegar hann var að skrifa
ævisögu Sölva Helgasonar þá hjálp-
aði ég honum að afla gagna. Við fór-
um í gegnum dómskjöl og þá rakst
ég á mörg mál um konur sem fengu
harða dóma.
Mér fannst þessi mál svo átakan-
leg. Þessar konur fóru út í fjós og
hlöðu til að fæða, eins og María
mey gerði á sínum tíma. Þær voru
síðan margar dæmdar fyrir að bera
börn sín út. Ég gerði verk í minningu
þeirra og eitt þeirra var sýnt í kirkju á
Spáni. Ég byggði í kringum líkneski
af Maríu mey, setti í kringum hana
glerplötur með nöfnum kvennanna
og árið sem börnin fæddust og svo
notaði ég ull sem tákn um hlýju og
samband við náttúruna.“
Kristín vinnur enn ötullega að
list sinni og segist nú mest nota blý-
ant en einnig mála með vatnslitum.
Meðal nýlegra verka hennar er ser-
ía sem hún gerði eftir ljóðum manns
síns, Jóns Óskars. Þar skrifar hún
upp ljóð með blýanti á pappír og til
verða ýmis form, þar á meðal vett-
lingur. n
Kristín „Þegar ég
var lítil og kom á bæi
þá skoðaði ég alltaf
myndir og man enn
í dag eftir myndum
sem voru á veggjum
á bæjunum í kring.“
Mynd Sigtryggur Ari
Ljóðaskrift Vi Skrifað ljóð eftir Jón Óskar
– gert með blýanti á pappír.
Á
frýjunardómstóll í Frakklandi
hefur staðfest tveggja ára skil-
orðsbundinn fangelsisdóm
yfir 77 ára rafvirkja, Pierre Le
Guennec, og eiginkonu hans fyrir að
stela 271 listaverki eftir Pablo Picasso.
Le Guennec starfaði sem rafvirki
á heimili Picasso snemma á áttunda
áratugnum, en listamaðurinn lést árið
1973. Árið 2010 tilkynnti hann um
eignina og þótti fundur svo margra
nýrra verka fréttnæmur á þeim tíma.
Le Guennec hélt því fyrst fram
að Picasso sjálfur, en síðar að
eigin kona hans,
hefði gefið hon-
um verkin. Þau
voru reyndar
bæði þekkt fyrir
mikla gjafmildi
en dómurinn
taldi þó ólíklegt að
þau hefðu gefið rafvirkjanum, sem
heimsótti þau aðeins til að setja upp
þjófavarnarkerfi, svo mörg verk.
Le Guennec þarf nú að skila
verkunum, sem eru metin á milli 8
og 9 milljarða króna, til dánarbús
Picasso. Rafvirkinn er enn fremur
frændi eiginkonu Maurice Bresnu,
einkabílstjóra og góðvinar Picasso,
sem hefur verið sakaður um að
stela hundruðum verka eftir lista-
manninn. n kristjan@dv.is
Stal 271 Picasso-verki
Rafvirki Picasso dæmdur fyrir að stela hátt 300 í listaverkum
( 893 5888
Persónuleg
og skjót
þjónusta
þú finnur
okkur á
facebook
Allt fyrir raftækni
Yfir 500.000 vörunúmer
Miðbæjarradíó ehf. - Ármúla 17, Reykjavík - www.mbr.is - S: 552-8636