Fréttablaðið - 16.01.2017, Síða 14
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 512 5000.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Lýður Björnsson
Sléttuvegi 31, Reykjavík
Lést að Hrafnistu 9.janúar 2017.
Útförin fer fram frá Bústaðarkirkju
19.janúar kl:13:00
Sigríður H. Bjarnadóttir
Sævar Lýðsson Valgerður Jónsdóttir
Guðlaug Lýðsdóttir Bjarni Guðmundsson
Þröstur Lýðsson Klara Sigurðardóttir
Afabörn og langafabörn.
Bróðir okkar,
Sigurjón Þórarinsson
frá Eiðum,
Keilugranda 10,
lést á líknardeild LSH í Kópavogi
mánudaginn 9. janúar.
Útförin fer fram frá Seltjarnarneskirkju
í dag 16. janúar kl. 13.
Systkini hins látna.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Karlotta Sigurbjörnsdóttir
Háholti 11, Keflavík,
lést á Hrafnistu, Nesvöllum,
laugardaginn 7. janúar. Útförin fer fram
frá Keflavíkurkirkju, föstudaginn
20. janúar kl. 13.00.
Margrét Hallsdóttir Níels Carsten Bluhme
Sigurbjörn Júlíus Hallsson Stefanía Hákonardóttir
Hallur Metúsalem Hallsson Margaríta Hallsson
Ragnar Kristbjörn Hallsson Inga Lóa Steinarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og
samúð vegna andláts og útfarar
ástkærs eiginmanns míns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Þorkels Kjartanssonar
frá Austurey.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Inga Snæbjörnsdóttir
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og ástvinur,
Guðmundur Guðnason
frá Háholti, Gnúpverjahreppi,
Mosarima 21, Reykjavík,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn
10. janúar. Útförin fer fram frá
Grafarvogskirkju miðvikudaginn 18. janúar kl. 13.00.
Reynir Guðmundsson
Árni Guðmundsson Friðborg Helgadóttir
Birgir Guðmundsson Lilja Theodórsdóttir
Ágústa Anna Valdimarsdóttir
og fjölskyldur.
Kær eiginmaður minn og faðir okkar,
Emanúel Morthens
lést á Vífilsstöðum 17. desember.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Þorbjörg Ó. Morthens
Þórey Morthens, Ólafur Morthens, Björn Morthens
Ástkær móðir okkar,
Gróa Þorleifsdóttir
Kleppsvegi 46,
lést á Droplaugarstöðum 3. janúar.
Útförin fer fram frá Áskirkju
föstudaginn 20. janúar klukkan 15.
Sigríður Kjartansdóttir
Jón Þór Kjartansson
Þorleifur Kjartansson
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma
og langalangamma,
Unnur Sigurðardóttir
Lækjasmára 2, Kópavogi,
sem lést mánudaginn 9. janúar á
Landakoti, verður jarðsungin frá Neskirkju
þriðjudaginn 17. janúar kl. 13.00.
Sigurður Ingi Tómasson
Bjarnína Agnarsdóttir Jón Magnússon
Óðinn Agnarsson
Ragnar Agnarsson
og fjölskyldur.
„Átta manns fórust og sjö var enn
saknað klukkan tvö í nótt eftir að tvö
hundruð metra breitt snjóflóð féll á
Súðavík við Ísafjarðardjúp snemma í
gærmorgun og tók með sér fimmtán
hús í miðju þorpinu.“
Þetta eru inngangsorð forsíðufrétt-
ar Morgunblaðsins sem birtist þann
17. janúar árið 1995. Daginn áður, fyrir
22 árum, féll snjóflóð á bæinn. Í hús-
unum fimmtán voru 26 manns og fórust
fjórtán þeirra. Þar af átta börn. Hins
vegar tókst að bjarga tólf.
Húsin sem flóðið féll á stóðu flest
utan þeirra marka sem skilgreind voru
sem hættusvæði vegna snjóflóða.
Lýsingar af þessum harmleik sem lesa
mátti í fyrrnefndu tölublaði Morgun-
blaðsins segja meðal annars frá því að í
einu húsi við Túngötu hafi húsmóðirin
verið sofandi „í svefnherbergi sínu
ásamt yngsta barni sínu, tveggja ára
gömlum dreng, þegar flóðið féll og lagði
húsið í rúst“.
Snjóflóðið var eitt mannskæðasta
snjóflóð Íslandssögunnar. Vegna óveð-
urs var landleiðin á milli Ísafjarðarbæjar
og Súðavíkur ófær. Björgunarlið, læknar,
lögreglumenn og sjálfboðaliðar voru því
fluttir frá Ísafirði og nágrannasveitum
sjóleiðis. Átti Djúpbáturinn Fagranes
stóran þátt í því verkefni.
„Eins og alþjóð veit þá höfum við ekki
ferjubryggju á ísafirði og því erfitt um vik
fyrir okkur. Það er því allt sem hjálpast
að hér til að gera þetta eins erfitt og
hægt er," hafði Morgunblaðið eftir Hjalta
Hjaltasyni, skipstjóra Fagraness.
Þ etta g e r ð i st : 1 6 . ja n úa r 1 9 9 5
Snjóflóð fellur á Súðavík
Kirkjugarðurinn í Súðavík. Fréttablaðið/Pjetur
Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur og
fyrrverandi forstöðumaður þjóðhátta
deildar Þjóðminjasafns Íslands, fagnar 85
ára afmæli í dag. Árni er þekktur fyrir skrif
um íslenskar hátíðir, siði og þjóðtrú. Hefur
hann skrifað rit á borð við sögu daganna,
Þorrablót á Íslandi, Hræranlegar hátíðir og
sögu jólanna. saga daganna var jafnframt
doktorsritgerð hans sem hann varði árið
1993.
„eiginlega mun ég ekkert halda upp á
sjálfan daginn,“ segir Árni, aðspurður um
hvernig hann hyggist fagna afmælisdeg
inum. „Ég og kona mín, ingibjörg Helga
dóttir, eigum sameiginlegt 160 ára afmæli
með 75 daga millibili og munum halda upp
á það með náinni fjölskyldu í lok janúar,“
bætir hann við.
Hann segir að um sama leyti muni koma
út greinasafn eftir hann. Það beri heitið
Í hálfkæringi og alvöru. ritið er saman
safn greina um ýmis efni sem hafa birst í
tímaritum og afmælisritum. Hið íslenska
bókmenntafélag mun gefa bókina út sem
verður um 300 síður.
Árna er einna minnisstæðastur þrítugs
afmælisdagurinn. „Mér er einna minnis
stæðast þegar ég varð þrítugur og var einn
míns liðs við háskólakennslu suður í Þýska
landi,“ segir hann.
Þó segir Árni bestu afmælisgjafirnar ekki
hafa borist þann dag. Þær bárust annars
vegar á 59 ára afmælisdaginn þegar hann
eignaðist dótturdóttur og á 74 ára afmælis
daginn þegar hann eignaðist langafadóttur.
Árni hefur átt farsælan feril og meðal
annars gefið út fyrrnefnd rit auk margra
annarra. Þó segir hann eitt standa upp úr.
„Ætli það sé ekki þegar ég fékk viðeigandi
starf við Þjóðminjasafnið 36 ára,“ segir Árni.
thorgnyr@frettabladid.is
Barnabarn og barnabarnabarn
bestu afmælisgjafirnar
Árni Björnsson þjóðháttafræðingur er 85 ára í dag. Hann mun halda upp á afmælið í
lok mánaðar. Hann minnist þrítugsafmælisins þegar hann var einn í Þýskalandi.
Árni og kona hans, ingibjörg Helgadóttir, ætla að halda upp á afmæli sín í sameiningu í lok
janúar. Fréttablaðið/GVa
1 6 . j a n ú a r 2 0 1 7 M Á n U D a G U r14 t í M a M ó t ∙ F r É t t a B L a ð i ð
tímamót
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
2
-1
E
8
4
1
D
1
2
-1
D
4
8
1
D
1
2
-1
C
0
C
1
D
1
2
-1
A
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
1
5
1
2
0
1
7
C
M
Y
K