Fréttablaðið - 16.01.2017, Blaðsíða 16
Drengjakórinn hans Geirs er að finna taktinn
Strákarnir okkar spiluðu tvo háspennuleiki um helgina. Miðað við færin sem gáfust í leikjunum tveimur er svekkjandi að uppskeran hafi aðeins verið eitt stig. Þetta stig
gæti þó orðið dýrmætt og strákarnir eiga enn möguleika á því að komast í sextán liða úrslit. Ísland fær núna eins dags hvíld áður en að leiknum gegn Angóla kemur.
handbolti Þetta var alvöru helgi hjá
strákunum okkar. Tveir háspennu-
leikir sem gætu hafa aukið sölu á
sprengitöflum heima. Á laugardag-
inn spiluðu strákarnir við sterkt lið
Slóvena og máttu sætta sig við eins
marks tap, 26-25.
Í gær spiluðu strákarnir svo við
Túnis og gerðu jafntefli, 22-22, í
háspennuleik. Það var leikur sem
strákarnir áttu að vinna en það hefði
svo sannarlega verið góður bónus
að fá stig líka gegn Slóveníu. Helvítis
herslumuninn, eins og strákarnir
sögðu, vantaði aftur á móti. Uppsker-
an er bara eitt stig og strákarnir þurfa
líklega að vinna síðustu tvo leiki sína
til þess að komast í sextán liða úrslit.
Fá að gera sín mistök
Það var í raun ómögulegt að vita hvað
liðið myndi gera í þessum leikjum og
á þessu móti. Frammistaðan gegn Sló-
veníu var framar mínum björtustu
vonum og við höfum séð liðið taka
mörg jákvæð skref í Metz. Við höfum
líka séð að það vantar ýmislegt upp á.
Þetta mót er aftur á móti til þess að
blóðga menn og láta aðra axla meiri
ábyrgð. Ég er mjög hrifinn af því sem
Geir er að gera. Leyfir ungu mönn-
unum að spila og gera sín mistök. Það
er virðingarverð afstaða.
Líkt og með Ómar Inga Magnússon
í gær. Hann gerði nokkur skelfileg
mistök en fékk traustið til að halda
áfram. Hann skoraði líka góð mörk og
sýndi hvað hann er sterkur karakter.
Ef honum hefði verið kippt strax af
velli fyrir sín mistök hefði hann ekki
fengið mikilvæga og nauðsynlega
reynslu. Hana verður að sækja á mót
eins og þetta.
Markvarslan og varnarleikurinn
hefur verið vonum framar í fyrstu
þremur leikjunum. Það er mjög
ánægjulegt. Hvoru tveggja mætti þó
vissulega vera stöðugra. Það koma
enn of langir kaflar þar sem er engin
markvarsla og vörnin hriplek.
Stirð sókn
Sóknarleikurinn hefur hikstað oft og
var það viðbúið. Enginn Aron Pálm-
arsson og nýir menn að axla ábyrgð.
Rúnar Kárason hefur gert það einkar
vel. Óragur við að taka ábyrgðina og
láta vaða er á þarf að halda. Hann
hefur einnig verið að skila fínum
varnarleik. Sérstaklega í leiknum
gegn Túnis.
Ólafur Guðmundsson hefur að
sama skapi því miður ekki staðið
undir væntingum. Hann er enn að
gera allt of mörg mistök og frammi-
staða hans hingað til hefur valdið
vonbrigðum. Hann var þó frábær
í vörninni í gær og gefst ekki upp.
Heldur áfram að djöflast og gefa allt
sem hann á. Því miður hefur þetta
flotta viðhorf ekki skilað nægu.
Arnór Atlason hefur verið betri en
Línumaðurinn Arnar Freyr Arnarsson kastar sér inn í teiginn, slær boltann í markið og kemur Íslandi 22-21 yfir undir lokin gegn Túnis. Mark Arnars dugði þó ekki til sigurs því Túnisar jöfnuðu metin mínútu fyrir leikslok og tryggðu sér annað stigið. FréTTAbLAðið/AFP
A-riðill
HM-dagskráin
19.45 Pólland - rússland A-riðill
16.45 Slóvenía - Makedónía B-riðill
19.45 Spánn - Angóla B-riðill
16.45 Ungverjaland - Síle C-riðill
19.45 Króatía - H.-rússland C-riðill
16.45 Egyptaland - barein D-riðill
19.45 Danmörk - Svíþjóð D-riðill
brasilía - Pólland 28-24
Noregur - rússland 28-24
Frakkland - Noregur 31-28
brasilía - Japan 27-24
Stig þjóða: Frakkland 6, Noregur 4, Brasilía
4, Rússland 2, Pólland 0, Japan 0.
HM 2017
b-riðill
Túnis - Spánn 21-26
Angóla - Makedónía 22-31
Ísland - Slóvenía 25-26
Ísland - Mörk (skot): Bjarki Már Elísson 7
(8), Rúnar Kárason 6 (10), Arnór Atlason 4
(4), Arnór Þór Gunnarsson 3 (4), Guðjón
Valur Sigurðsson 3/3 (4/4), Ólafur Guð-
mundsson 2 (6), Arnar Freyr Arnarsson
(1), Gunnar Steinn Jónsson (1), Janus Daði
Smárason (2).
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 11/2
(29/4, 38%), Aron Rafn Eðvarðsson 2 (10/2,
20%).
Hraðaupphlaup: 4 (Bjarki Már Elísson 3,
Rúnar Kárason 1).
Mörk Slóveníu (skot): Marko Bezjak 6/2
(7/2), Miha Zarabec 4 (5), Vid Kavticnik 4/2
(7/3), Matej Gaber 3 (3), Blaz Janc 3 (3),
Borut Mackovšek 3 (3), Darko Cingesar 2 (3),
Gašper Marguc 1 (4/1), Matevz Skok (1), Nik
Henigham (1), Jure Dolenec (4).
Varin skot: Matevz Skok 12/1 (33/3, 36%),
Uhr Kastelic 3 (7/1, 43%).
Ísland - Túnis 22-22
Ísland - Mörk (skot): Guðjón Valur Sigurðs-
son 5 (9/1), Ómar Ingi Magnússon 4/1 (6/1),
Rúnar Kárason 4 (10), Ólafur Guðmundsson
3 (6), Janus Daði Smárason 2 (2), Arnar Freyr
Arnarsson 2 (2), Arnór Atlason 2 (4), Arnór
Þór Gunnarsson (1), Ásgeir Örn Hallgríms-
son (1).
Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 9 (17/1,
53%), Björgvin Páll Gústavsson 4/1 (17/3,
23%).
Hraðaupphlaup: 10 (Guðjón Valur 5, Rúnar
2, Ólafur Guðmundsson 2, Ómar Ingi)
Ómar Ingi Magnússon 1.
Mörk Túnis (skot): Amine Bannour 12/3
(18/3), Oussama Boughanmi 5 (6/1), Aymen
Toumi 2 (3), Sobhi Saied 1 (3), Wael Jallouz 1
(4), Mosbah Sanai 1 (5), Issam Tej (1).
Varin skot: Makrem Missaoui 18/1 (40/2,
45%).
Stig þjóða: Slóvenía 4, Makedónía 4, Spánn
4, Ísland 1, Túnis 1, Angóla 0.
Besti maður Íslands
Bjarki Már Elísson kom inn í
byrjunarliðið fyrir fyrirliðann
Guðjón Val og stóð sig
frábærlega í sínum
fyrsta leik á
stórmóti. Bjarki
nýtti 7 af 8
skotum sínum
og bjó til
höfuðverk
fyrir Geir
þjálfara.
Mörk úr leikstöðum Mörk úr leikstöðum
Hættulegustu mennirnir
Mörk + stoðsendingar
8 Rúnar Kárason 6+2
7 Bjarki Már Elísson 7+0
6 Arnór Atlason 4+2
6 Ólafur Guðmundsson 2+4
4 Arnór Þór Gunnarsson 3+1
3 Guðjón Valur Sigurðsson 3+0
Hvað gekk vel
og hvað illa?
Tölur íslenska liðsins í helstu
tölfræðiþáttum í saman-
burði við mótherjana.
Varin skot markvarða -2
Mörk með langskotum +1
Mörk úr hornum +1
Mörk af línu +1
Hraðaupphlaupsmörk -2
Mörk úr annarri bylgju -1
Gegnumbrotsmörk -2
Tapaðir boltar -5
Varin víti markvarðar +1
3 Tapaðir boltar íslenska liðsins á
síðustu fimm mínútunum.
3 Lína
3
2
1
5
Gegnumbrot
3 Víti
Hraðaupphlaup
4+2
Markvarsla
13/39
3 1
3 Lína
1
1
1 Víti
Hraðaupphlaup
7+3
Markvarsla
13/34
0
Ísland – slóvenÍa 25-26 (8-11)hm 2017Frakklandi
Tímalína: Gangur leiksins n Ísland yfir n Ísland undir
1 10 20 30 40 50 604-36-77-54-74-42-2 1 10 20 30 40 50 605-43-53-4
Ísland – túnis 22-22 (11-13)
Besti maður Íslands
Aron Rafn Eðvarðsson kom í
íslenska markið í hálfleik og
varði 9 af 17 skotum sem á
hann komu eða
yfir 50 prósent.
Eitt þeirra var
lokaskot Túnis
sem tryggði
íslenska
liðinu
stig.
Tímalína: Gangur leiksins
SAGT EFTir LEiKiNN GEGN SLóVENÍU
Þetta er ótrúlega
svekkjandi
„Þetta er ótrúlega
svekkjandi. Við
áttum séns
á að komast
tveimur yfir
en ég klúðraði
þá dauðafæri,“
sagði Arnór Þór
Gunnarsson eftir Slóveníuleikinn.
„Þetta er auðvitað hörkulið en mér
finnst samt sem áður að við eigum
að taka þá. Þeir eru ekkert eðlilega
fljótir þessir gæjar og teknískir en
í seinni hálfleiknum vorum við
aðeins of seinir til baka þegar þeir
voru að taka hröðu miðjuna.“
SAGT EFTir LEiKiNN GEGN TúNiS
Fórum hrikalega illa að
ráði okkar
„Við fórum hrika-
lega illa að
ráði okkar í
þessum leik og
gerðumst sekir
um svakaleg
mistök,“ sagði
Rúnar Kárason eftir
leikinn gegn Túnis. „Við töpum
þessum leik bara sjálfir og erum
heilt yfir ekki að fara nægilega vel
með sóknirnar okkar. Ég veit ekki
hvort að skotin okkar hafi verið
svona léleg eða markmaðurinn
svona góður, boltinn fór allavega
ekki inn.“
Ungverjala. - Króatía 28-31
Síle - Þýskaland 14-35
Sádi-Arab. - Hv.-rússl. 26-29
Stig þjóða: Þýskaland 4, Króatía 4, Síle 2,
Hvíta-Rússl. 2, Ungverjal. 0, Sádí-Arabía 0.
Egyptal. - Danmörk 28-35
Argentína - Svíþjóð 17-35
barein - Katar 22-32
Stig þjóða: Svíþjóð 4, Danmörk 4, Katar 2,
Egyptaland 2, Barein 0, Argentína 0.
Henry B. Gunnarsson
henry@frettabladid.is
D-riðill
C-riðill
1 6 . j a n ú a r 2 0 1 7 m Á n U d a G U r16 s p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
2
-1
9
9
4
1
D
1
2
-1
8
5
8
1
D
1
2
-1
7
1
C
1
D
1
2
-1
5
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
5
6
s
_
1
5
1
2
0
1
7
C
M
Y
K