Fréttablaðið - 13.06.2017, Page 14

Fréttablaðið - 13.06.2017, Page 14
fótbolti „Nálgunin að þetta sé skemmtilegt og krefjandi er nákvæmlega það sem ég vil heyra í kringum þennan leik,“ segir Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari en Ísland spilar vináttulandsleik við Brasilíu á Laugardalsvelli í kvöld. Þetta verður í fyrsta sinn sem landslið frá Brasilíu spilar á Íslandi og þetta er líka síðasti leikur íslenska liðsins fyrir EM. Það er því mikið undir hjá þeim stúlkum sem þurfa að sanna sig. Eitt af bestu liðum heims „Þetta er frábær prófraun fyrir okkur og góður vettvangur fyrir okkur til að sjá hvar við stöndum gegn þeim bestu. Þetta lið er svo sannarlega með þeim fremstu í heiminum,“ segir þjálfarinn sem óttast ekki að þetta skemmtilega verkefni verði að martröð á end- anum. „Ég geri það ekki. Við erum með okkar einkenni og leikstíl. Við þurf- um að halda í það og spila okkar leik af krafti. Verðum líka að vera með „attitjúd“ og láta vita af okkur. Þá veit ég að við munum halda aftur af þeim. Við þurfum líka að sýna hugrekki og vilja til þess að refsa þeim. Fótbolti snýst um að vinna og við þurfum að finna leið til þess á sama tíma og við erum að æfa okkur.“ Enginn vináttuleikur Freyr segir að það komi ekki til greina að láta brasilísku stúlkurnar bara hafa það huggulegt. Þær séu ekki bara í dekri og náttúruskoðun á Íslandi heldur þurfi þær að mæta alvöru liði. „Þetta er enginn vináttuleikur hjá okkur. Við erum mætt til þess að spila okkar leik og hann er fastur. Brassarnir þola það illa. Ef við gerum það aftur á móti ekki vel þá taka þær á okkur á móti því það er skap í þeim. Þá munu þær refsa okkur enda hafa þær meiri ein- staklingsgæði en við. Við þurfum að vera einbeittar allan tímann og til í að taka þennan slag,“ segir Freyr mjög ákveðinn. Vill sjá góða frammistöðu Ísland verður án Dagnýjar Brynjars- dóttur í leiknum en hún hélt aftur til Bandaríkjanna þar sem hún á að spila með félagsliði sínu um næstu helgi. „Ég átti ekki von á því að geta spil- að henni og er því ekkert svekktur. Ég er aftur á móti afar ánægður með stöðuna á henni. Hún er komin lengra heldur en ég átti von á. Allt lítur út fyrir að hún verði í topp- standi í júlí og við þurfum á því að halda,“ segir þjálfarinn, en hvað vill hann fá út úr þessum leik? „Fyrst og fremst vil ég að frammistaðan verði góð. Ef hún er góð og við töpum út af snilld Brassanna þá er það allt í góðu. Frammistaða og sigur myndi gefa okkur gríðarlega mikið og ekki síst sterkt sjálfstraust. Við viljum sjá blöndu af þessu en fyrst og fremst þarf frammistaðan að vera í lagi,“ segir Freyr en mun hann keyra á sínu sterkasta liði eða nýta leikinn til að skoða leikmenn sem eru við það að vera valdir í EM-hópinn? „Ég ætla að keyra þetta á þeim leik- mönnum sem eru 100 prósent leik- færir. Ef það væri fyrsti leikur á EM á morgun þá eru þetta leikmennirnir sem munu taka slaginn. Það verða engar tíu skiptingar í hálfleik en ég geri samt ráð fyrir 5-6 skiptingum út leikinn,“ segir Freyr en hvernig ætlar hann að stöðva Mörtu hina brasilísku? Stuð að glíma við Mörtu „Það verður stuð að glíma við hana. Hún er frábær sem og allar fjórar fremstu. Það verður veisla fyrir fólkið að sjá okkur glíma við þennan meistara. Við munum spila fast á hana og láta hana aðeins bíta í grasið. Við megum ekki selja okkur gegn henni. Hún var að æfa með Söru Björk og ég held hún hafi ekki fílað hana á æfingum. Sara er sennilega sú harðasta í bransanum og þær vita alveg út í hvað þær eru að fara. Það eru smá götubrassar í þeim. Þær geta klórað og tekið á því. Við gætum fengið flottan fót- bolta og líka slagsmál.“ henry@frettabladid.is Vilja að hún bíti aðeins í grasið Það verður sambastemning í Laugardalnum í kvöld er íslenska kvennalandsliðið spilar við Brasilíu. Með liði Brasilíu spilar ein besta knattspyrnukona allra tíma, Marta. Hún mun ekki fá neitt ókeypis í kvöld. Freyr Alexandersson hafði vökult auga með íslensku landsliðskonunum á æfingu liðsins á Laugardalsvellinum í gær. FréttAbLAðið/Anton brink 18.15 Ísland - brasilía Sport Í dag ýMir Fór tiL tÉkkLANDS Valsmaðurinn ungi og efnilegi ýmir Örn Gíslason var valinn í íslenska landsliðshópinn sem mætir tékk- landi í gríðarlega mikilvægum leik í undankeppni EM 2018 á miðvikudaginn. ýmir lék sína fyrstu A-landsleiki á Gjensidige Cup í Noregi um helgina og stóð sig með prýði. Annars var ekkert sem kom á óvart í vali landsliðs- þjálfarans Geirs Sveinssonar. Allir leikmennirnir í 17 manna hópi, fyrir utan ými og Aron Pálmars- son, spiluðu á HM í Frakklandi í janúar. ýmir sló í gegn á síðasta tímabili en hann átti stóran þátt í því að Valur varð Íslands- og bikar- meistari og komst í undanúrslit Áskorendabikars Evrópu. kr-iNGAr Í EVróPukEPPNi Íslands- og bikarmeistarar kr ætla að taka þátt í forkeppni FiBA Europe Cup næsta haust. Dregið verður í riðla 4. júlí en fyrstu leikir verða heima og að heiman 27. september og 4. október. Þetta er í fyrsta sinn síðan 2008 sem íslenskt félagslið tekur þátt í Evrópu- keppni. Þá spiluðu kr-ingar við Banvit frá tyrklandi. kr hefur verið sterkasta lið lands- ins undanfarin ár. kr-ingar hafa orðið Íslands- og deildarmeistarar fjögur ár í röð og bikarmeistarar undanfarin tvö ár. ætLAr Ekki Að FArA tiL kÍNA Diego Costa, markahæsti leik- maður Englandsmeistara Chelsea á síðasta tímabili, hefur útilokað að spila í kína á næsta tímabili. Costa fékk skilaboð frá Antonio Conte, knattspyrnustjóra Chelsea, á dög- unum þar sem stóð að krafta hans væri ekki lengur óskað hjá félag- inu. Costa vill helst fara aftur til Atlético Madrid en það gæti reynst flókið vegna félagaskiptabannsins sem spænska félagið er í. Costa hefur verið orðaður við kínversk félög en hann hefur engan áhuga á að fara til kína. „Ég útiloka að fara til kína. Ég verð að hugsa um HM,“ sagði hinn 28 ára gamli Costa. Ingibjörg dúxaði á móti Mörtu í haust. Verður gaman að sjá hvort hún haldi byrjunarliðssætinu og noti F-orðið aftur á þá bestu. Mist Rúnarsdóttir @MistRunarsdotti Marta er frábær karakter Í leik kvöldsins á Laugardalsvelli fá áhorfendur að sjá eina bestu knatt- spyrnukonu allra tíma, Mörtu. Marta hefur fimm sinnum verið valin besta knattspyrnukona heims og er enn í allra fremstu röð. Sara Björk Gunnarsdóttir þekkir vel til Mörtu eftir að hafa spilað með henni hjá sænska liðinu Rosengård þar sem þær urðu meistarar saman. „Þetta er frábær karakter. Liðsspilari og frábær fót- boltakona,“ segir Sara Björk er hún var beðin um að lýsa Mörtu. Hún segir Mörtu ekki líta stórt á sig né vera með einhverja stjörnu- stæla. „Hún er mikið á jörðinni miðað við peninga og verðlaunapeningana sem hún hefur unnið sér inn.“ Ekki FENGið NEiN tiLBoð Ekki er ljóst hvar Joe Hart, aðal- markvörður enska landsliðsins í fótbolta, spilar á næsta tímabili. Manchester City lánaði Hart til torino á síðasta tímabili en litlar líkur eru á að hann fari aftur til Ítalíu. City hefur lítið við Hart að gera enda félagið nýbúið að kaupa brasilíska markvörðinn Ederson fyrir metfé. Hart hefur þó ekki áhyggjur af því að City setji of háan verðmiða á sig. „Ég þarf að byrja á því að fá tilboð og ef þau koma get ég skoðað mín mál,“ sagði hinn þrítugi Hart um stöðuna. 1 3 . j ú n í 2 0 1 7 Þ R i Ð j U D A G U R14 S p o R t ∙ f R É t t A b l A Ð i Ð sport 1 3 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :2 1 F B 0 4 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 1 0 -A A F 8 1 D 1 0 -A 9 B C 1 D 1 0 -A 8 8 0 1 D 1 0 -A 7 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 0 s _ 1 2 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.